Boltastelpur

Systur eru úti að leika sér, en ættu að vera á fótboltaæfingu. Ekki Valsæfingu, heldur Víkings!

Tara nágranni æfir fótbolta með Víkingi. Pabbi hennar er svo harður Víkingur, að hann hikar ekki við að beita brögðum til að fjölga í liðinu. Jafnvel mútum!Smile Fyrr í vikunni komu þær systur heim með þau skilaboð, að þær ætluðu að prófa að fara á æfingu með Töru á fimmtudag og svo fengju þær allar að fara á McDonald's á eftir!

Þær voru spenntar í dag, áttu að fá að ganga á æfinguna úr skólanum. Ég fór niður í skóla, tók skólatöskurnar þeirra og lét þær hafa æfingatöskur, með fótboltaskónum, sokkum, stuttbuxum og bol. Það mátti alls ekki vera Vals-bolurinn þeirra, ég hafði fengið mjög ströng fyrirmæli um það. Þær ætluðu greinilega ekki að verða fyrir aðkasti á Víkingsæfingu.

Svo var æfingin felld niður! Merkilegt nokk, þá held ég að það hafi ekki fengið mjög á þær. Þær voru skoppandi úti í garði hjá Töru rétt áðan og virtust afar kátar. Þær fá nefnilega að fara á McDonald's á eftir þrátt fyrir allt LoL

Ég ætla að nýta tækifærið, elda eitthvað einfalt og gott fyrir mig og Kötu og svo er planið að við borðum og tölum saman á meðan systur eru fjarverandi. Það er fullorðins, svona til tilbreytingar Wink Ég hef ekki tölu á öllum máltíðunum við þetta borð sem hafa farið í að útskýra hvernig dagblöð eru búin til, af hverju fólk borðar með hnífi og gaffli, hvort sé nú betra, mjólk eða vatn með matnum, hvernig farið sé að því að búa til efni sem föt eru saumuð úr, hver fattaði fyrstur upp á osti o.s.frv.

Kata spyr voða lítið um svona hluti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Hjálmar

... alltaf gaman að líta á blog-heima hér  

Gísli Hjálmar , 21.2.2008 kl. 21:16

2 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Já það er nauðsynlegt að eiga stundir fyrir sig og elskuna sína. Eins og börnin manns eru nú yndisleg!

Hjá okkur hjónum hét þetta í gamladag að "vera í breiki". Svo var reglulega bankað og spurt hvort breikið væri búið...

Núna þurfum við oft að dekstra þær til að setjast hjá okkur og spjalla 

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 22.2.2008 kl. 11:57

3 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Og talandi um matmálstíma samtöl: Anna Kristín var mjög illa áttuð þegar hún var yngir. Hún þurfti að hafa rosalega mikið fyrir að skilja uppi, niðri, undir, hliðina á o.s.frv.

Þá var ekkert venjulegt samtal yfir matarborðið heldur í þessa átt:

Viltu rétta mér hrísgrjónin sem ERU VIÐ HLIÐINA Á FATINU

Settu skeiðina FYRIR OFAN DISKINN

Ekki setja glasið FYRIR AFTAN DISKINN

Viltu sækja bókina SEM ER UNDIR BORÐINU

Með ofuráherslu á athöfnina. Smátt og smátt kom þetta en hún á samt erfitt enn með að átta sig...

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 22.2.2008 kl. 13:10

4 identicon

Hvað er að gerast þarna !!!!!! Þurfum við að fara að koma í heimsókn. Eru smáliðin farin að múta með maca usssss.

Annars er Birkir fyrir skólastjóri Knatspyrnuskóla Vals í vettvangsnámi hjá okkur á Rauðu og við erum í sjokki!!!!!!

Valsarinn

Linda Ósk (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 13:15

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Vó-vó, hægan, hægan Linda! Þú hlýtur að skilja að innan raða annarra liða eru líka áróðursmeistarar!! Sjálf (mis)notaðir þú aðstöðuna á Rauðu deild til að innræta þeim Valsmennsku út yfir gröf og dauða. Þarf ég að minna þig á þegar þú labbaðir með þau vikulega út í Valsheimili og lést allan hópinn kyrja: "Hérna koma Valsarar...."?

Mig grunar að þær séu ekkert á leiðinni úr Val í bráð (eða "Vali" eins og þær beygja það alltaf) Hins vegar er ekkert að því að kíkja á eina æfingu með vinkonu úr næsta húsi ;) Ég er líka ekki rétta manneskjan til að kvarta við, mér finnst alltaf dálítið undarlegt að eiga dætur í "Vali". Ef Kata ætti ekki hinn helminginn í þeim hefði það auðvitað ekki komið til greina og hana nú!

Kristín, þetta lánaðist hjá okkur, við gátum borðað grillaðan lax og rizotto áður en þær hrundu inn um dyrnar  Svo við fengum ágætis "breik" að þessu sinni.

Krúttlegt hvernig þið þurftuð að hamra á þessu við stelpuna

Ragnhildur Sverrisdóttir, 22.2.2008 kl. 16:20

6 identicon

nú og hverju spyr Kata þá að? Hvort að fleiri lið þurfi að grípa til þess að múta smástúlkum? Þetta er náttúrulega ekki hægt.

áfram Valur.

Urr

Urður (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband