H er mamma hrekkjusvín

Systur komu alsælar af McDonald's og skelltu sér beint í stafablaðið.

Það gekk nú ekki alveg þrautalaust að einbeita sér að verkefninu, því þær voru hátt uppi af gleði eftir að hafa farið "út að borða" með vinkonum sínum. Þær töluðu og töluðu, en Elísabet þó sýnu meira. Kata þurfti að biðja hana að hægja á sér, því hún var alveg á yfirsnúningi og skildist varla. Og umræðuefnin, Drottinn minn.

Dæmi: "Hafa ormar ömurlegt bragðskyn?"

Ég er ekki að grínast, þetta sagði barnið.

Kata svaraði að hún hreinlega vissi það ekki.

"Jú, þeir hafa það," fullyrti Elísabet þá sjálf.

"Eins og fullorðnir," bætti Margrét við.

"Já," sagði systir hennar, "fullorðnum finnst meira að segja gott að drekka kaffi og bjór!"

Mér var allri lokið og krafðist nánari skýringa á þessum orma- og bragðskynspælingum. Þá kom í ljós að þær voru að rifja upp speki úr einni bókinni sem þær fengu í jólagjöf, um Jón og Selmu. Fjör í fyrsta bekk, minnir mig hún heiti.

H er stafur vikunnar.

Elísabet er búin að dunda sér frá því á þriðjudag að teikna eina mynd á dag. Fyrst teiknaði hún stelpu, sem kemur gangandi og lyftir annarri hendi í kveðjuskyni. Halló.

Á miðvikudag teiknaði hún sæta, litla stelpu með gleraugu. Halldóra.

Hún tók fram að þetta væri ekki Halldóra bekkjarsystir hennar, enda væri hún ekki með gleraugu. Þetta væri bara Halldóra ímyndunarafl.

Í morgun, áður en hún fór í skólann, rak hún augun í stafablaðið sitt, greip blýant og teiknaði þriðju myndina. Á henni er einbeitt kona að kasta handbolta með vinstri hendi í mark. Markmaðurinn kemur engum vörnum við. Liðsfélagi handboltahetjunnar brosir út að eyrum. Undir myndinni stendur ekki "handbolti", þótt hún sýni þá íþrótt. Undir myndinni stendur nafn handboltahetjunnar örvhentu. Nafn mömmu hennar: Hanna Katrín.

Fjórðu myndina teiknaði hún í kvöld fyrir svefninn. Viðfangsefnið kom ekkert sérstaklega á óvart, þótt það sé óvenjulegt að sjá fyrirbærið með fætur og hendur. Hamborgari.

Margrét hafði ekki teiknað eina einustu mynd þegar hún settist við eftir McDonald's ferðina í kvöld. Hún var snögg að þessu.

Fyrsta myndin hennar er af lítilli stelpu, sem réttir glas upp til mömmu sinnar. Mamman, sem brosir, heldur á stórri könnu. Hún er að hella.

Á mynd númer tvö er lítil stúlka að fara inn um dyr á fallegu húsi. Heima.

Margrét var samt ekki alveg sátt við mynd númer tvö, hugsaði sig lengi, lengi um og breytti svo undirskriftinni. Núna stendur: Heima hjá mömmu.

Þegar hér var komið sögu var ég að tala við Elísabetu um myndirnar hennar, sem hún var að ljúka við að lita. Ég nefndi að hún hefði teiknað handbolta, en leiðrétti mig svo, enda var myndin hennar fyrst og fremst af mömmu hennar. Margrét greip þetta á lofti, teiknaði konu sem kastar bolta í mark og skrifaði undir: Handbolti.

Hún varð dálítið svekkt þegar hún áttaði sig á að hún hefði eiginlega teiknað sömu myndina og Elísabet, því það vill hún svo gjarnan forðast. Hún hafði ekki séð myndina hennar Elísabetar og hélt sig vera eina um að teikna handboltamynd, af því að ég hafði nefnt handbolta, en leiðrétt mig svo og nefnt mömmu hennar. Jafnaði sig nú fljótt á því.

Síðasta myndin hennar Margrétar er eiginlega frábærust. Í fjarska sést lítið hús, sólin skín og bara tvö lítil ský á himni. Í forgrunni er krakki, sem er heldur dapur á svipinn. Fyrir framan krakkann stendur annar stærri krakki og teygir sig í húfuna sem sá litli er með. Hrekkjusvín.

Á meðan systur kláruðu stafablöð var ég að hripa eitthvað niður á blað. Elísabet leit á hrafnasparkið mitt og spurði svo: "Eru þetta svona stafir sem allir geta lesið, eða getur bara þú lesið þetta?"

Kötu fannst þetta fyndið. Ég neyddist til að viðurkenna að líklega gæti enginn lesið þetta nema ég Blush

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Hehehe já allir geta lesið. Það er ekki á börn logið, þau finna snöggu blettina.

Ragnheiður , 22.2.2008 kl. 00:20

2 Smámynd: Garún

Mig langar stundum að koma með videóvélina og documenta svo sem eina viku í lífi stelpnanna ykkar.  Kvikmyndagerðarmaðurinn í mér ræður bara ekki við sig.  En af guttanum mínum, er það að frétta að hann er komin með æði fyrir rakspíra og það leið yfir allt fjölskyldufólkið í kvöld yfir plokkfisknum þegar hann kom löðrandi í AFTERSHAVE dauðans...

Garún, 22.2.2008 kl. 00:49

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Það er sko engin miskunn, Ragnheiður

Garún, mér þykir leitt að drengurinn skuli strax kominn á þetta þroskaskeið. Ég kvíði því töluvert þegar systurnar fara að úða á sig ilmvatni í tíma og ótíma.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 22.2.2008 kl. 16:51

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Já, og þetta með að dokúmentera viku í lífi þeirra? Það er alveg velkomið að reyna, en ég er ekki viss um að þær festist á filmu. Fjörið er stundum OF mikið.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 22.2.2008 kl. 16:52

5 identicon

Þessar stelpur ykkar eru snillingar.

Halla Jökulsd. (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 08:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband