22.2.2008 | 16:42
Norn, púkastelpa og beinagrind
Systur buðu Töru nágranna heim eftir skóla. Þær fóru allar í búninga: Margrét er norn, Elísabet er púkastelpa og Tara er beinagrind.
Ég sat við tölvuna þegar undarleg hljóð fóru að berast úr herberginu þeirra. Þær systur eiga CDspilara með míkrófón og svo er hægt að setja mikið bergmál á röddina þegar hann er notaður. Nú bergmálaði mjög ógnvænleg (að vísu dálítið smámælt) rödd: "Ragnhildur Sverrisdóttir, þú munt sjá eftir þessu!!!! Gættu þín!!! Þú ert í mikilli hættu....!!" og fleira af þessu tagi glumdi úr herberginu.
Þær skemmtu sér greinilega konunglega, af og til kom ein fram og spurði hvort ég hefði nokkuð heyrt draugarödd, en ég þrætti. Þá fór hún aftur inn og öskrin margfölduðust, um leið og hótanirnar versnuðu.
Ég læddist að herbergishurðinni og stökk svo allt í einu inn á mitt gólf og orgaði af öllum kröftum, greip í þær og kitlaði hverja á fætur annarri.
Svo varð ég að forða mér út. Ég held að ég hafi misst heyrn á öðru eyra. Þvílík skerandi hátíðnihljóð sem koma úr þremur trylltum 6 ára stelpum
Heyrnarleysið varð áreiðanlega til þess að ég hafði ekki varann á mér þegar þær læddust upp, nöppuðu kexpakka og borðuðu hann upp til agna. Eins og þær hafi nú þurft sykur akkúrat núna!
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
LOOL!!!! ég er alveg í þvílíku kasti hérna..... Dætur þínar eru algjört æði!!!!!
dabbaa (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 17:20
Bestu kveðjur og góða helgi
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.2.2008 kl. 10:53
Hehehehe voru nokkuð þrennar hreinar buxur í dæminu?
Ragnheiður , 23.2.2008 kl. 17:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.