25.2.2008 | 10:22
Klaufi öryggi
Helgin var ljúf.
Systur fengu að fara til guðmæðra aðra helgina í röð, fóru undir kvöldmat á föstudag og gistu um nóttina. Mömmurnar fóru í góðu kompaníi á Food and Fun á Grillinu á Sögu. Þar voru bornir í okkur sex réttir og hver öðrum ljúffengari. Við vorum komnar heim fyrir miðnættið í tómlegt kotið.
Á laugardagsmorgun kom í ljós að guðmæðurnar áttu ekki hefðbundinn beikon og eggja skammt fyrir systurnar, svo við vorum ræstar út og allur hópurinn hittist á Vegamótum í brunch. Elísabet veit ekkert betra en að raða í sig beikoni, eggjum, kartöflubátum og pönnukökum með sírópi. Margrét fussar yfir slíku og pantar "heilsubrunch". Á laugardaginn fékk hún fullan disk af brauði, osti og alls konar grænmeti og lýsti mikilli ánægju sinni með það - en sníkti svo spælegg og pönnsur af öllum öðrum við borðið
Þær voru saddar og glaðar þegar þær fóru í gítartíma, en þaðan brunuðum við til Ásthildar systur, sem átti afmæli. Héldum áfram að troða okkur út af hollustufæði þar Afi Ís, sem er fjórði "tekjumöguleiki" Margrétar samkvæmt lista hennar, dró upp hvorki meira né minna en þúsund króna seðil og sagði þeim systrum að skipta með sér. Þær eru enn að ræða þá ofurupphæð. Sama og tveir rauðir bréfpeningar, VÁ!! Og sama og tíu gullpeningar?! VÁÁÁ!! Þær vita hins vegar alveg í hvað peningunum verður varið: Þeir fara í sameiginlegan sjóð þeirra, Töru og Mörtu Maríu, til kaupa á stórum hesti sem ku fást í Toys'R'Us. Hesturinn er svo stór, að hann getur víst borið þær allar í einu. Þegar þær verða búnar að safna fyrir honum, með því að selja flöskur og dósir, halda tombólu, vinna heimilisstörf og "biþja afa" verður þetta eins konar farandhestur, einn daginn hér, þann næsta á númer 2 og þaðan fer hann á númer 5 og svo koll af kolli.
Þegar við komum heim fóru þær til Töru, en við Kata röltum í heimsókn til Tobbu og Halla. Fengum kaffi, meiri hollustu og meinhollt slúður um menn og málefni. Törumamma fór með stelpuhópinn á Pizza Hut, svo við gátum tekið því rólega.
Laugardagskvöldið fór að sjálfsögðu í Laugardagslögin. Ég var fegin að hafa ekkert fylgst með þeim þáttum fram að þessu, lögin voru nú flest þannig að ég hefði ekki þolað að heyra þau oft. Systur voru mjög spenntar og þurftu að spyrja margs. Margrét ákvað að kjósa Ragnheiði Gröndal áfram, henni fannst svo flott að sjá hana í grasinu, að syngja um drauma. Elísabet kaus að sjálfsögðu Birgittu prinsessu (þær systur eru enn á því að Birgitta sé raunveruleg prinsessa. Hvað annað gæti skýrt kjólana hennar og hárskrautið?)
Þær voru báðar sáttar við sigurlagið, enda þá orðnar svo örmagna að þær gátu ekki mótmælt.
Sunnudag byrjuðu þær systur á fótboltaæfingu hjá Víkingi. Æfingin, sem þær ætluðu á á fimmtudaginn, féll niður, svo þær fóru bara á sunnudag í staðinn. Þær eru á báðum áttum hvað þær ætla að gera. Margrét var alsæl eftir Víkingsæfinguna, en líklega réði þar mestu að hún náði að skora mark í æsispennandi leik. Elísabet diplómat taldi vænlegast að vera "eitt ár í Vali og svo eitt ár í Víkingi og svo eitt ár í Vali" en viðurkenndi að það gæti verið snúið að vera sífellt að keppa á móti fyrrverandi -og tilvonandi- liðsfélögum. Niðurstaðan varð að þær ætla að klára veturinn og sumarið hjá Val og sjá svo til.
Eftir æfinguna komu Tara og mamma hennar í stutta heimsókn, en svo gengum við fjórar upp í Elliðaárdal. Í Blesugrófinni vildi Elísabet ólm fara upp á hæsta hól og bað mig að koma með. Hún sagðist reyndar vita að ég væri klaufi og ég myndi örugglega renna í snjónum á bröttum hólnum. "Þú ert klaufi, en þú ert klaufi skemmtileg. Þú rennur kannski, en getur alveg stoppað samt. Þú ert sko klaufi öryggi."
"Klaufi öryggi", það er ég.
Við gengum alla leið heim til afa og ömmu í Gilsó. Á leiðinni var Elísabet að ræða um afa Torben, sem alltaf er til í að atast í þeim og lýsti því svo yfir að það væri "gott að eiga afa sem er stundum eins og krakki."
Þær voru orðnar ansi lúnar þegar við komum heim aftur, en það kom nú ekki í veg fyrir fjör í stuttu kaffiinnliti á númer 2. Svo skelltu þær sér í heimalærdóminn, reikning og lestur, borðuðu sunnudagssteikina og fyrir svefninn fórum við allar í heita pottinn.
Þær sofnuðu mjög fljótt. Spenntar og glaðar, af því að í dag fara þær til tannlæknis. Og það er sko gaman
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sælar mæðgur
Hvenig for með ferðina a h'olin ? Eg se þig i anda fara a maganum með fæturna undan niður
Þið eruð snillingar
Kveðja
JFK
J Friðrik karason (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 20:11
Ég brölti upp hólinn og slapp ágætlega niður hann líka. Á leiðinni til baka fórum við aftur upp, en að þessu sinni völdu þær systur þverhnípi til að fara niður. Þverhnípi! Ýkjulaust!! Elísabet skellti sér á rassinn og renndi sér niður og auðvitað álpaðist ég til að fara í slóðina á eftir henni, rann til, hlammaðist niður og fór heldur óvirðulega á eftir henni.
Fögur sjón, trúðu mér.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 25.2.2008 kl. 20:49
Ragnhildir min hvar var Kata ?
Þu lendir alltaf i þessu bagsli
Nei þetta er ekkert bagsl þetta er sem gefur lifinu svo gaman að vera með börnunum Eg a og konan min lika 7 barnabörn 3 fimm ara 10 11 13 og 17
kv
JFK
J Friðrik karason (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 21:14
Ó, ég er sko alveg fullfær um að lenda í klúðri þótt hún sé nærri. Sem hún var. Hún og Margrét hlupu léttfættar upp og niður hólinn. Elísabet fór þetta líka léttilega. Ég var klaufinn
Ragnhildur Sverrisdóttir, 25.2.2008 kl. 23:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.