Snjórinn

Systur áttu að skrifa sögu um snjóinn.

Elísabet byrjaði. Hún vill hafa þetta allt rétt og fer yfir stafsetningu mjög nákvæmlega. Svona var sagan hennar:

"Mér finnst gaman að leika mér í snjónum. Það er gaman að gera snjókarla og snjóengla og fara í snjkast. Samt kann ég ekki að gera snjóbolta. En þegar það er vindur og haglél vil ég ekki vera úti. Þá vil ég vera heima og hafa það gott."

Svo myndskreytti hún. Á fyrri myndinni eru þær systur í snjókasti og ég kíki á þær út um gluggann. Á síðari myndinni er hún sjálf, situr í sófanum og horfir á sjónvarpið, með fulla skál af nammi og heitt kakó. Svo eru hvorki fleiri né færri en sex hitapokar í hillu hjá henni, svo hún hafi það nú örugglega gott. Ekki veit ég hvaðan hún hefur þá hugmynd, hér eru engir hitapokar.

Þegar Elísabet var búin fór ég að huga að Margréti, sem ég hélt að sæti hin rólegasta og læsi Andrésblað, eins og hún hafði ætlað að gera. En Margrét hafði þá náð í Sögubókina sína og skrifað sögu, alein. Með eigin stafsetningu, að sjálfsögðu:

"Það er gaman að leika sér í snjónum. Einu sinni bjó ég til snjókarl í leiskólanum. Ég bí oft til snjóeingla með vinum mínum sem heita Elísabet, Marta og Tara. Svo er líka gaman að fara á sleða en það er líka gaman að hafa snjó út af því þá getur maður dotið eins og maður vill án þens að meiða sig og það er líka got að því maður hamast svo migið í snjónum. Því að þá er altilæi að maður stígi á blómin því að þau eru hvort sem er dáin."

Hún teiknaði fjórar myndir. Á fyrstu eru tveir krakkar að gera snjóengla. Á næstu eru tveir krakkar að renna sér á sleða niður brekku. Við brekkufótinn er ein stelpa, sem hefur dottið af sleðanum sínum og hlær: "hahaha".

Á þriðju myndinni hlær krakki líka "hahaha", af því að annar krakki er að hrinda honum afturábak og það er "altilæi" af því að það er snjór og maður getur dotið.

Og á síðustu myndinni stígur stelpa á blóm. Sem er auðvitað líka "altilæi" af því að "þau eru hvort sem er dáin."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dætur ykkar eru alveg óborganlegar!   Ég bara sit og brosi frá eyra til eyra. Ímyndunaraflið er ótrúlegt hjá þessum elskum.

Vona að afi Ís hafi átt ánægjulegan afmælisdag með litlu hrossabændunum.

og þakka fyrir ábendinguna á wulffmorgenthaler.com  mjög skemmtileg skot.

hm (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 18:06

2 Smámynd: Garún

Röksemdarfærslur hjá börnum eru óborganlegar...

Garún, 27.2.2008 kl. 19:04

3 identicon

Þetta er lífið og það dýrmætasta sem hægt er að upplifa.

Ragna (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 20:12

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Good Morning og bestu kveðjur.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.2.2008 kl. 08:42

5 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

snilld

Einar Bragi Bragason., 28.2.2008 kl. 10:30

6 Smámynd: Garún

Eru þær systur nokkuð með leikhæfileika?  Vantar sko tvíbura fyrir myndina BRIM! 

Garún, 29.2.2008 kl. 09:29

7 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Það hefur lítið reynt á leikhæfileikana, nema þegar þær eru að skrökva mömmur sínar fullar! En þær fengu báðar mikinn áhuga á leiklist eftir að þær sáu leikritið Öskubusku, sem var leikið af krökkum og ætla sko klárlega á leiklistarnámskeið, eins og þær hafa nefnt 800 sinnum á síðustu vikum. Elísabet er þó sýnu áhugasamari.

Það væri auðvitað bissness í því fyrir mæður að gera þær út sem svona Olsen-tvíbura ;) Eini gallinn er sá, að þær eru ekki eineggja, svo þar með eru þær víst ekki eins kjút par og ella. Ekki að ég kvarti...

Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.2.2008 kl. 09:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband