2.3.2008 | 13:54
Gleði, gleði
Eftir gítartíma á laugardegi fórum við fjórar niður í bæ, til að spóka okkur í góða veðrinu. Góða gluggaveðrinu, öllu heldur, því það var skelfilega kalt!
Þegar við komum heim fengu systur að fara í heita pottinn á númer tvö á meðan við Kata brugðum okkur aðeins af bæ. Svo kom Unnur uppáhaldsfrænka til að passa, en við Kata fórum út á djammið. Og þvílíkt stuð! Ég var ræðumaður á Góugleði hjá þeim ágæta félagsskap, KMK (Konur með konum). Reyndar þekkti ég ekkert til félagsins áður, ég er fjarri því að vera félagsmálatröll og hef þess vegna aldrei farið með þeim í útilegu, í vínsmökkun, sótt bókakvöldin, ljósmyndasýningarnar og allt hitt. Greinilega afskaplega aktívur félagsskapur.
Þessi Góugleði var haldin á Gauknum. Ég hafði velt því mikið fyrir mér hvernig ætti að koma ríflega 70 konum fyrir á Gauknum og hlaðborði með kræsingum þar að auki. Sem sýnir bara hvað það er svakalega langt síðan ég hef komið á Gaukinn. Húsið er meira en helmingi stærra en það var í den.
Þetta var rosalega skemmtilegt samkvæmi, mikið stuð á kellingum langt fram á nótt. Þegar ég vaknaði í morgun lá ég lengi kyrr og velti fyrir mér hvort ég væri virkilega heil heilsu. Ég hafði nú ekki miklar áhyggjur af timburmönnum eða slíkri óáran. Hins vegar hefði ekkert komið á óvart þótt ég væri lurkum lamin, tosuð og teygð, því ég hef ekki dansað svona mikið árum saman. Gaman, gaman.
Við fengum nágrannana á 2 í morgunkaffi, en Kata er núna að manna sig upp í að fara með Logalandsgengið, stelpurnar fjórar, á hundasýninguna. Ég hef ekki oft verið beinlínis þakklát fyrir hundaofnæmið mitt, en núna er ég sátt
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Stundum eru veikindi dásamleg. Ég segi það nú og mun segja það lengi enn, eða þangað til þau verða mér að aldurtila.
Jenný Anna Baldursdóttir, 3.3.2008 kl. 16:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.