Erfið spurning

Elísabet skreið upp í stóra rúm í nótt og svaf vært til morguns.

Klukkan 7 fórum við að ýta við henni, en hún sýndi lítil viðbrögð. Kata talaði til hennar og strauk um vanga, sem hafði þau áhrif að hún fékk litla handleggi um háls. Enn voru augun þó lokuð.

"Elísabet mín, ertu vöknuð?" spurði Kata.

"Ég veit það ekki," svaraði hún, enn með lokuð augun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það eru forréttindi að fá að vakna með litlum manneskjum.  Svo er fátt betra að fá litla svefndrukkna manneskju í fangið til að knúsa.  Ragnhildur þetta er lífið

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.3.2008 kl. 09:53

2 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Gott svar hjá þeirri stuttu - hvað ætli maður geti svarað svona spurningu svefndrukkin eldsnemma dags

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 4.3.2008 kl. 11:51

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Já, Jenný, ég er algjörlega sammála. Stundum, þegar reynir á þolinmæðina af því að það er orðið þröngt í rúminu og spörkin tíð, þá verð ég að minna mig á að þessi tími líður allt of fljótt.

Og ég hef fulla samúð með þessu svari hennar. Eini gallinn, ef galla skyldi kalla, við svefndrukkin kríli í fangi er að það er svo skrambi erfitt að slíta sig frá þeim.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 4.3.2008 kl. 12:29

4 Smámynd: Garún

Einu sinni var sagt við mig þegar ég spurði "hvernig svafstu?"

"nú með lokuð augun". Hvernig getur maður spurt svona

Garún, 4.3.2008 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband