10.3.2008 | 09:45
Blindur er bóklaus maður
Hamborgaraveislan á föstudag hjá Töru klíkufélaga á númer 5 tókst rosalega vel. Sem var nú eins gott, því systur höfðu byggt upp miklar væntingar. Margrét hafði meira að segja teiknað komandi veislu í skólanum fyrr um daginn. Á myndinni er Logalandsgengið, þ.e. þær systur, Marta María og Tara gestgjafi, við matarborðið heima hjá Töru. Þær fjórar sitja allar með hamborgara fyrir framan sig og eru eitt sólskinsbros. Thelma Törumamma stendur yfir þeim með könnu í hendi, albúin að skenkja einhvern ljúfan drykk.
Margrét er nákvæm í teikningum sínum. Hún hefur komið margoft til Töru, svo hún gleymdi auðvitað ekki að teikna fiskabúrið hennar og litla stautinn með fiskamatnum. Svo fékk hún aðstoð Töru við að rifja upp hvernig stólarnir við matarborðið eru í laginu. Nákvæm.
Systur eru svo uppteknar í sósíal lífinu þessa dagana að við höfum varla tíma til að lesa á kvöldin. Á laugardag vorum við allar í mat hjá Þórdísi og Kristjáni. Enginn kvöldlestur. Í gær komum við heim úr fermingarveislu á háttatíma. Enginn kvöldlestur
Þetta er sérstaklega frústrerandi þessa dagana, af því að við gerðum okkur ferð á bókamarkaðinn í Perlunni um daginn. Systur voru mjög spenntar og spurðu hvort þær mættu fá eina bók á mann. Ég sagði að þær mættu fá tvær á mann. Svo fórum við á markaðinn og keyptum tíu bækur, eins og lög gera ráð fyrir að maður geri á bókamarkaði. Allar þessar bækur, þeirra á meðal Sagan af bláa hnettinum, Hundaeyjan, Gallsteinar afa Gissa og Marta smarta, eru hér í stórum stafla. Þetta gengur ekki lengur.
Eftir bókamarkaðsheimsókn ákvað ég að fara með þær á sögusýninguna í einum tankinum í Perlunni. Þeim leist nú ekki meira en svo á blikuna, enda eru blessuðu víkingarnir þar eiginlega einum of raunverulegir. En systur báru sig samt vel, sögðu að þetta hefði nú verið gaman og spurðu svo hvort þær þyrftu nokkuð að fara aftur á þessa sýningu.
Aftur að nýliðinni helgi: Systur fóru í gítartíma eins og alltaf á laugardögum og svo skruppum við fjórar til Knúts. Síðdegis á þessum baráttudegi kvenna var mömmum boðið í dálítið kvennapartý hjá Örnu Garðars. Systur voru á meðan hjá afa Torben og ömmu Möggu og þegar við náðum í þær þangað rétt fyrir kvöldmat voru þær alsælar. "Þau eru svo skemmtileg," sögðu þær.
Öll familían brunaði til Þórdísar og Kristjáns og lét þau góðu hjón dekra við sig langt fram eftir kvöldi. Elísabet sá ekkert og engan nema litlu tíkina þeirra, sem er alveg einstaklega falleg. Margrét er vissulega líka mikil hundastelpa, en hún getur þó litið af slíkum dýrum af og til. Elísabet verður algjörlega heltekin, sé eitthvert dýr nálægt henni. Sama gildir raunar um smábörn, hún fer alveg á hvolf ef kríli er nálægt.
Sunnudagurinn varð alveg sama letilífið. Systur vöknuðu auðvitað klukkan 8 eins og alltaf, en mæður fengu að dorma aðeins lengur. Svo var það morgunkaffi á Te og Kaffi í M&M, þar sem við hittum Þórdísi, Kristján, Vigdísi og vinkonu hennar aftur, en svo tók Kata á sig rögg og fór með systur í sund. Ég fékk að liggja heima að berjast við fjárans kvefið sem ætlaði mig lifandi að drepa. Sá litli lúr dugði til að ég náði áttum og komst í fermingarveislu Katrínar Sigríðar síðdegis.
Systur eru afskaplega ánægðar í fjölskylduboðum. "Eru allir hérna inni í stórfjölskyldunni?" spurði Elísabet opinmynnt og starði í kringum sig í Oddfellow húsinu. Þær systur vilja hafa sem flesta í stórfjölskyldunni og eiga til að skrifa ótrúlegasta fólk þar inn. Þær eru sannfærðar um að maður geti aldrei átt of marga ættingja. En þær eru nú bara rétt að verða sjö ára
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vá, rosalegt span er þetta á fjölskyldunni, hugsaði ég, og mundi svo að einmitt þannig var það þegar mínar stelpur voru litlar, dugðu varla dagarnir í allt sem var á prógramminu. Those were the days.
Takk fyrir mig.
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.3.2008 kl. 13:03
Ragnhildur mín getur þú ekkert gert í þessu hundaofnæði svo þessar elskur fái að njóta alls þess besta í uppeldinu sem völ er á, fullyrði að ekkert geri börn eins meðvituð um forgansröðun í heiminum; þau læra að sýna samúð, gefa af sér, taka tillit til annarra og svo ótamargt sem opnast fyrir þeim þegar þau alast upp með dýrum.
Það eru til mjög fín ofnæmismeðul og ég þekki til margra hundaeiganda sem tala þau og finna ekki aukaverkanir, heldur geti umgegnist dýr eins hvert annað fólki.
Forvitna blaðakonan, 10.3.2008 kl. 23:05
Það er aldeilis útstáelsið á ykkur mæðgum. Ekki hefði það gengið upp hjá mér með minn strák að ætla að sleppa kvöldlestrinum. Þegar við vorum að lesa Bróðir minn Ljónshjarta og Elsku Míó minn vildi hann fara upp í rúm um leið og hann kom úr leikskólanum til að lesa og lesa leeeeeeeeengi.
Helga Magnúsdóttir, 11.3.2008 kl. 10:36
Úff, það er eins gott að dætur mínar lesi ekki um ofnæmislyf! Ég veit að það er hægt að gleypa alls konar lyf, en mér er bölvanlega við að setja sjálfa mig í þá stöðu að taka pillur til að halda einkennum niðri það sem ég á ólifað. Margrét bjargar þessu kannski, hún bætir því alltaf við kvöldbænirnar sínar að biðja Guð að laga ofnæmið mitt
Ég get þó huggað mig við að þær systur hafa þegar lært að sýna samúð, gefa af sér og taka tillit til annarra. Þær komust ekki hjá því, fremur en flestir tvíburar 
Og trúðu mér, Helga, við þurfum að borga það dýru verði þegar kvöldlestri er sleppt. Þá verðum við að lesa enn lengur næst og dekra við þær á alla lund.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 11.3.2008 kl. 13:36
Dásamlegur pistill og stelpurnar ykkar eru bara meiriháttar
það er alltaf nóg að gera á mínum bæ og um páskana erum við boðinn í fimm fermingar
svo það verður heldur betur fjör hjá mínum 5,dætrum um páskana.
bestu kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.3.2008 kl. 22:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.