26.1.2007 | 15:58
Er Magnús Þór flokkurinn?
Á heimasíðu Frjálslynda flokksins er hægt að skrá sig rafrænt í flokkinn. Um leið er fólki bent á að það geti líka hringt á flokksskrifstofuna, ef það vill heldur. Síminn er 552-2600.
Stuðningsmenn Möggu systur hafa kvartað undanfarna daga, enda fá þeir samband við Magnús Þór Hafsteinsson, varaformann flokksins, í þessu númeri! Það er greinilega stillt áfram í gemsann hans. Það kunna því nú ekki allir jafn vel að þurfa að tala við Magnús Þór þegar þeir skrá sig í flokkinn til að styðja Margréti og lái þeim hver sem vill.
Í gær ákvað stuðningskona Möggu hér á skrifstofunni að prófa hvort þetta væri rétt og hringdi í 552-2600. Viti menn, símtalið fór beint í talhólf Magnúsar Þórs. Og svo hringdi hann til baka úr gemsanum sínum.
Rétt áðan ákvað ég svo að hringja á flokksskrifstofuna til að forvitnast um frétt sem var á heimasíðu flokksins en var horfin þaðan. Ég hringdi í flokksnúmerið, en hætti svo við og lagði á eftir tvær hringingar. Varla leið mínúta þar til hringt var til baka, ,,Var verið að hringja í þetta númer?" spurði maðurinn og ég sagði honum auðvitað hvert erindi mitt hefði verið.
Þessi hringing til baka í mig var auðvitað úr gemsanum hans Magnúsar Þórs, 864-5585
Ríkið, það er ég! sagði kóngurinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.1.2007 | 16:56
Í herbúðunum
Það er merkilegur fjári að starfa að framboðsmálum. Ég hef nú lítið komið að því í gegnum tíðina, en tek rispur fyrir Möggu systur af og til. Núna er allt á fullu og ég hef ekki undan að svara í símann í herbúðunum. Fólki er afskaplega heitt í hamsi, oftast vill það sem hringir hingað skrá sig í flokkinn og kjósa systur, en sumir hringja og tilkynna að þeir ætli að segja sig úr flokknum. Ýmist vegna þess að Magnús Þór er ómögulegur að þeirra mati, eða Magga ekki brúkleg. Mér finnst að vísu að þetta fólk eigi frekar að mæta um helgina en að láta sig hverfa, en það er auðvitað alveg þeirra val.
En merkilegur fjári er þetta allt saman. Samkenndin sem rýkur upp í herbúðunum er með ólíkindum. Líklega endist fólk ekki í pólitík nema það hafi sérstaka þörf fyrir adrenalín "kikk" af og til. Mér finnst gaman að taka einstaka orrustu, en myndi áreiðanlega ekki endast lengi. Magga systir þrífst á þessum ósköpum og leikur við hvurn sinn fingur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2007 | 12:01
Megi Halla ná kjöri!
Kata lætur ekki deigan síga í Vals-áróðrinum. Hún fór í bæinn og af einhverjum ástæðum fann hún bara alls enga aðra fótboltabúninga á 5 ára stelpur en Valsbúninga. Merkilegur fjári!
Annars er ég hætt að kippa mér upp við þetta. Mér finnst skipta mestu máli að stelpurnar okkar eru alsælar í fótboltanum.
Megi Halla Gunnarsdóttir ná kjöri sem formaður KSÍ. Þá kemur áreiðanlega betri tíð með blóm í haga fyrir allar fótboltastelpur landsins.
Mismununin í boltanum er algjörlega óþolandi. Það á ekki bara við um fótboltann, heldur allar boltagreinar. Ég man hvenær ég varð fyrst brjáluð yfir óréttlætinu. Þá var ég í 12 ára bekk í Melaskóla og við stelpurnar í bekknum tókum þátt í árlegu handboltamóti innan skólans. Strákarnir höfðu einokað mótið, en þetta ár vorum við óvenju margar sem vorum byrjaðar að æfa handbolta. Sérstaklega í mínum bekk, við höfðum sammælst um að mæta á æfingar hjá KR og vorum með fullskipað lið. Þess vegna rúlluðum við stelpunum í hinum bekkjunum upp. Ég man nú ekki úr hvaða bekk strákarnir voru sem unnu. Ég man hins vegar verðlaunaafhendinguna eins og hún hefði verið í gær. Strákarnir fengu hinn glæsilega og stóra, silfraða bikar, sem gengið hafði á milli bekkja árin á undan og hömpuðu honum stoltir. Við stelpurnar þurftum að ganga á eftir verðlaunum, en þá urðu leikfimikennararnir heldur kindarlegir, fóru svo að grafa í einhverjum kössum og kistum og fundu loks gamlan trébikar með brotnu loki. Við afþökkuðum hann.
Enn og aftur: Megi Halla Gunnarsdóttir ná kjöri sem formaður KSÍ. Allir þessir karlar, sem sitja við stjórnvölinn þar og annars staðar í íþróttahreyfingunni, láta eins og þeir vilji styðja við bakið á konum. Þeir meina hins vegar ekkert með því, það er margsannað mál. Hvernig þessir menn geta horft í augu dætra sinna er mér hulin ráðgáta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.1.2007 | 10:07
Ljósahátíð
Á besta leikskóla í heimi, Sólhlíð, er haldin ljósahátíð í dag. Stelpurnar mínar mættu með vasaljós, enda fór allur hópurinn úr í myrkrið á leikvellinum kl. 9 og læddist á milli runna, leiktækja og kofa með ljósin sín. Í trjánum voru kerti og ljósaseríur og marglitir dúkar, sem auka á litbrigði ljósanna.
Mikið er lífið nú dásamlegt fyrir fimm ára kríli. Ekkert brauðstrit og engin pólitík.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2007 | 16:21
Bloggvingjarnleiki
Hmmm, ég er alveg úti að aka á þessu bloggi. Núna bjóðast menn til að verða bloggvinir mínir og ég veit hreint ekki hvað það þýðir! Svo vil ég auðvitað ekki vera ókurteis við menn sem vilja vingast við mig, maður á aldrei of mikið af vinum. En þegar ég reyni að segja kurteislega "já, takk" með aðstoð tölvutækninnar þá virkar þessi fídus bara ekki. Ég hef bara náð að eignast einn bloggvin hingað til, en bið aðra forláts. Ég er ekki svona hrikalega óvinsamleg. Bara tölvufötluð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.1.2007 | 13:31
Klúður á klúður ofan
Það er furðulegur fjári að hlusta á formann og varaformann Frjálslynda flokksins telja upp allar vegtyllurnar, sem þeir hafa náðarsamlegast rétt að Margréti systur minni í gegnum tíðina. Og láta eins og að hún hafi, þrátt fyrir öll þessi tækifæri, klúðrað einhverju fyrir flokkinn!
Var það klúður hjá henni þegar hún komst ekki inn á þing í síðustu kosningum, þrátt fyrir að vera með miklu fleiri atkvæði á bakvið sig en háttvirtur þingmaður, Magnús Þór? Ég hefði nú haldið að þar væri misvægi atkvæða um að kenna.
Var frábær árangur Frjálslynda flokksins í síðustu borgarstjórnarkosningum kannski klúður líka? Þar var Margrét í 2. sæti listans og ég er viss um að oddvitinn, Ólafur F. Magnússon, lítur ekki svo á að hann hafi náð árangrinum "þrátt fyrir" setu hennar þar.
Er sá mikli stuðningur, sem Margrét hefur mjög víða, kannski dæmi um hvernig henni hefur tekist að klúðra málum?
Af hverju segja þessir menn ekki eins og er: Að þeir töldu sig knúna til að koma henni frá af því að þeir líta á sig sem flokkseigendur og vilja halda völdum, hvað sem það kostar. Þeir ruku til og ráku hana, nei afsakið, sögðu henni víst upp, af því að hún var ósátt við sameiningu við Nýtt afl. Sameiningu, sem meirihluti miðstjórnar flokksins var líka andvíg.
Meira klúðrið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.1.2007 | 12:49
Stuðningur formanns
Formaður Frjálslynda flokksins lýsti því yfir áðan að hann styddi Magnús Þór í varaformannsembættið.
Mér hefði nú þótt klókara af honum að halda sig til hlés. Þessi yfirlýsing verður ekki til að bæta móralinn þegar Margrét verður búin að leggja Magnús. En hún nær áreiðanlega að hefja sig yfir það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.1.2007 | 09:20
Margrét í varaformanninn
Þá er Margrét systir mín búin að taka af skarið og tilkynna að hún ætli að bjóða sig fram í embætti varaformanns Frjálslynda flokksins.
Það er greinilegt á vinum mínum og kunningjum að margir vonuðust eftir að hún leitaði eftir formennskunni. Það segir auðvitað margt um trú fólks á henni. En þótt sumir hafi fjasað um meinta valdasýki hennar, þá er sú veiki þó ekki skæðari en svo, að hún lætur hagsmuni flokksins ganga fyrir, að vanda. Það er ekkert vit í að vaða í Guðjón, hann er fínn formaður og miklu nær að styrkja formennskuna með Möggu við hlið hans. Það væri almennileg tvenna á toppnum.
Svona ykkur að segja, þá fékk Magga áreiðanlega einhverja útrás fyrir formennskuþrá sína á fyrstu árum ævinnar. Hún leiddi mig alla vega, oftast mildilega en stundum af nauðsynlegri hörku. Satt best að segja var ég óttaleg gufa lengst af, en Magga hins vegar ævinlega viss í sinni sök. Hún stýrði því litlu systur út í alls konar ævintýri, oft af meira kappi en forsjá.
Forsjáin hljóp ekki í hana fyrr en síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2007 | 15:38
Hjá vondu fólki
Alveg er það merkilegur fjári hvað Byrgismaðurinn hefur verið umkringdur vondu fólki. Bókarinn er greinilega skúrkurinn. Ekki er nóg með að hann hafi á einhvern hátt ekki tekið eftir að tugmilljónir fóru framhjá bókunum, sem samkvæmt Byrgisrökum gerir hann sekan um að hafa haldið þeim peningum utan bókanna. Hitt er verra, sem Byrgismaðurinn hefur áður upplýst, að um hver áramót þurfti hann að slétta af bækurnar með framlagi úr eigin vasa.
Laun heimsins eru vanþakklæti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar