Færsluflokkur: Bloggar

Smábörn bönnuð í brúðkaupum?

Margrét var að borða morgunmatinn. Þungt hugsi. Og spurði svo: "Ef fólk eignast barn áður en það giftist og ætlar svo að gifta sig, þarf það þá að bíða og getur ekki gift sig fyrr en barnið er orðið nógu gamalt til að fara í pössun?"

Tounge


Bert

Bjarki bestivinur kom í heimsókn í dag. Alveg merkilegt hvað þessi þrjú geta dundað sér vel og lengi. Svo fengu þau að horfa á eina mynd og systur þreyttust aldrei á að útskýra allt sem fyrir augu bar fyrir Bjarka - sem þreyttist ekki á að spyrja. Góð blanda.

Systur eru alveg með það á hreinu hvernig á að hafa Bjarka-heimsóknir, þótt það sé langt síðan hann kom síðast. Þegar ég sótti þau hljóp Margrét til mín og spurði: "Er til allt svo að þú getir búið til kanelsnúða? Bjarki fær alltaf kanelsnúða." Ég sagði henni að ég hefði einmitt komið við í búð á leiðinni, til að kaupa "hráefni". E-hemm, ja, eða frosna kanelsnúða, en hvað ætli blessuð börnin þekki muninn?

Ég sá að það var allt of langt síðan Bjarki kom síðast þegar hann spurði hvort hann mætti fara í heita pottinn og á trampólínið og í kofann í garðinum. Heiti potturinn og kofinn eru á kafi í snjó og trampólínið í vetrarham, svo þau voru bara innandyra að þessu sinni.

Systur voru svo ljónheppnar að fá að fara til Knúts frænda, Ölmu og Daníels í kvöld, á meðan við skruppum á myndlistarsýningu í Gerðarsafni. Svo teygðist nú úr dvölinni hjá þeim og þegar við sóttum þær voru þær dauðþreyttar, en afskaplega hamingjusamar. Eins og alltaf, þegar þær eru dauðþreyttar og hamingjusamar, streyma ástarjátningarnar frá þeim í stríðum straumum.

Elísabet þurfti sérstaklega að ræða hvað ég væri nú fínt máluð. En bætti samt við: "Sko, mér finnst þú alveg falleg svona og eins og þegar þú varst í sjónvarpinu um daginn, en mér finnst þú samt fallegri þegar þú ert bara heima með bert andlit."

Margrét var algjörlega sammála.

Ég mála mig alltaf afskaplega takmarkað. Núna get ég alveg sleppt því. Ég er fallegust með bert andlit LoL


V er vinur um vetur

V er stafur vikunnar.

Margrét reið á vaðið.

Fyrsta myndin var af fallegri, brúnni kventösku. Veski

 

Næsta mynd var af tveimur litlum og brosmildum stelpum sem leiddust. Vinur.

 

Ég brá mér aðeins frá og Margrét sagðist ætla að lita fyrstu tvær myndirnar á meðan ég stússaði í eldhúsinu. Hún þyrfti að hugsa sig aðeins um. Þegar ég kom til baka var hún búin að teikna tvær myndir til viðbótar, án þess að þurfa að bera það undir kóng eða prest.

 

Mynd númer þrjú var af fallegum, rauðum hlut, sem stafaði af gulum bjarma. Vasaljós.

 

Fjórða og síðasta myndin var af hendi. Hún hreyfðist greinilega, því Margrét kann öll trikkin í Andrés-blöðunum og teiknaði því litlar, bognar línur við höndina, sem sýndu að hún var á iði. Sá sem átti hana var greinilega að veifa.

Elísabet teiknaði fyrst skælbrosandi stelpu í bláum bol og fjólubláu pilsi. Vala.

Á næstu mynd eru tvær stelpur, sem takast í hendur. Vertu sæl!

Þriðja myndin var meira en lítið flókin. Fyrst teiknaði listamaðurinn glugga og út um hann sást tungl á himni. Þetta var barnaherbergi með kommóðu, rúmi og skrifborði. Við skrifborðið sat stelpa og var að vinna á tölvuna sína. Hún hafði það ósköp notalegt þótt hún væri að bauka þetta fram eftir nóttu og var með konfektkassa á borðinu hjá sér. Myndin heitir: Vaka með konfektkassa. (Við Kata eigum mynd sem heitir "Seta í landslagi" og þetta heiti er ekkert ósvipað LoL)

Listamaðurinn var gjörsamlega andlaus eftir þessa mynd, en notaði margreynda aðferð systur sinnar, stóð upp frá borðinu og gekk út að glugga. Kom svo æðandi til baka, teiknaði hluta af húsi og svo óteljandi korn að falla af himnum. Vetur.


Best í heimi!

Systur fóru loks í gær í langþráða heimsókn á gamla leikskólann sinn og þann besta í heimi, Sólhlíð.

Linda Rauðudeildarstjóri tók á móti þeim með knúsi -og Gunna og Elsa létu reyndar sitt ekki eftir liggja. Stelpurnar stoppuðu í klukkutíma og á meðan skrapp ég í burtu. Þær kvörtuðu hástöfum þegar ég kom að sækja þær, fannst þetta allt of stuttur tími.

Þótt Sólhlíð sé besti leikskóli í heimi, þá eru systur alsælar í Fossvogsskóla núna. Þær töluðu meira að segja um það á leiðinni á Sólhlíð, að Fossvogsskóli væri áreiðanlega besti skóli í heimi, rétt eins og Sólhlíð væri besti leikskólinn.

Í gær skiluðu þær þrautabókum í skólann, en í gamla daga hefðu slíkar bækur líklega heitið reikningsbækur. Þrautirnar sem þær leystu að þessu sinni voru af ýmsum toga: Einhver fór á fjall og fann 10 hrafntinnur, en tók 3 með sér og hvað skildi hann þá margar eftir á fjalli? Og einhver átti 9 fótboltamyndir uppi á vegg, en vinur hans átti 3. Hve mikill munur var á myndaeigninni? Og svo var ein þraut um fjölda dúkkukjóla og önnur um golfkúlur.

Systur taka þrautirnar mjög hátíðlega, eins og lög gera ráð fyrir. Þó er töluverður munur á hvernig þær leysa þær. Fyrsta þrautin var um fótboltamyndirnar, 9 uppi á einum vegg og 3 á öðrum. Elísabet var afar fljót að rissa upp 9 ramma með einhverju fremur ógreinilegu inni í og 3 til viðbótar sem voru alveg eins. Svo litaði hún snarlega blátt og grænt inn í rammana. Þetta var greinilega sama fótboltaliðið.

Margrét er miklu nákvæmari. Hún teiknaði litla fótboltahetju á hverja einustu mynd, ýmist síðhærða eða dökkhærða, þótt ekki spyrði ég hana hvort þetta væru ýmist strákar eða stelpur. Tvær myndir skáru sig úr, þær voru mjög smáar og á þeim voru einfaldlega örsmáir fótboltar. Enda fótboltamyndir Wink

Báðar sluppu þær vel með hrafntinnumyndirnar, enda ekkert að gera nema teikna svarta mola.

Elísabet varð aftur afskaplega effektíf þegar kom að myndskreytingum þrautarinnar um dúkkukjólana. Þar átti ein stelpa 5 kjóla og önnur 4, ef ég man rétt. Kjólarnir fimm voru allir bleikir hjá Elísabetu og kjólarnir fjórir allir appelsínugulir. Einfalt og gott. Margrét dundaði sér hins vegar lengi, lengi við að lita kjólana, sem voru í öllum regnbogans litum, sumir röndóttir, aðrir doppóttir.

Golfkúlurnar voru fljótafgreiddar, þurfti ekki einu sinni að lita þær.

Síðdegis í gær fengu þær far með Töru bekkjarsystur og nágranna í fimleikana, enda er Tara byrjuð að æfa með þeim. Marta María á númer 2 er líka í hópnum. Snilld þegar foreldrar geta skipt með sér akstri á æfingar. Ég stefni á að fara með allan hópinn á morgun.   


Kali hvað?

Eins og það hafi nú ekki verið nóg að uppgötva fullkomna vanþekkingu á "heimsfrægum" ræðurum og indverskum guðum á föstudagskvöldi, þá vaknaði familían klukkan 7 á laugardagsmorgni vegna fótboltamóts. Enginn tími til að sleikja sárin á þessum bæ. Wink

Systur léku 7 leiki í Fífunni og náðu 3. sæti af þeim átta A-liðum sem tóku þátt. Rakel þjálfari er að gera ótrúlega góða hluti með þennan hóp. Á fyrsta mótinu þeirra í fyrra held ég að þær hafi spilað 6 leiki og tapað öllum. En núna fóru þær óskaplega stoltar heim með medalíurnar sínar og Elísabet náði þar að auki að skora tvö mörk. Wizard

Gítartíminn var strax eftir mótið og var svo skemmtilegur að systur mótmæltu hástöfum þegar honum var lokið. Þær höfðu hins vegar pantað brunch eftir öll átökin og röðuðu í sig á Vegamótum. Elísabet fékk uppáhaldið, beikon, egg, pönnukökur og allan pakkann, en Margrét tók heilsubrunchinn, með fersku grænmeti og ristuðu brauði.

Við erum búnar að slaka á hérna heima síðdegis og ekkert nema afslöppun framundan. Mikið eru svona helgar ljúfar Joyful


Klapplið

Systur fóru á enn eina fótboltaæfinguna. Núna voru 24 stelpur á æfingu og greinilegt að margar ætla að skella sér í boltann fyrir sumarið. Og Rakel þjálfari fer létt með að mæta með tvö lið á mótið í Fífunni næsta laugardag.

Dagurinn var viðburðaríkur hjá systrum. Tara bekkjarsystir þeirra og nágranni á afmæli í dag og af því tilefni tóku þær með sér sitt hvorn pokann af piparkökum, til að halda eins konar afmælisveislu fyrir Töru í frímínútunum. Á morgun býður Tara svo til veislu.

Eftir afmælisveisluna á morgun ætla systur að bruna með mömmu sinni í sjónvarpssal og fylgjast með æsispennandi viðureign Ísafjarðarbæjar og Akraness. Gott að hafa sitt eigið klapplið með Smile

Eini gallinn við þessa viðburðaríku daga er að þær hafa ekkert æft á gítar undanfarið. Bara alls ekki neitt. Fyrsti gítartími ársins er á laugardag, strax á eftir fótboltamótinu og þær eru ólíklegar til að slá í gegn þar. Við bætum úr því síðar, vona ég.


Enn ein...

jólastelpur15 ...myndin af þeim systrum. Þessi var á jólakorti familíunnar í ár. Margrét fremur alvörugefin, enda þurfti hún auðvitað að halda réttu gripi á gítarinn sinn. Elísabet líka alvörugefin, enda ekkert smá dramatísk stelling sem hún fann.

 


Lögregluvernd

Við fengum góða vini í kvöldmat. Eftir mat fengu systur að horfa á spólu með Vigdísi gesti. Á meðan ég setti spóluna á kom auglýsing frá Fréttablaðinu. Margrét las texta auglýsingarinnar og Elísabet tilkynnti Vigdísi að einu sinni hefði ég unnið á Morgunblaðinu. "Hún skrifaði einu sinni um kærastann minn í Morgunblaðið og ég varð alveg brjáluð. Ég var svo brjáluð að hún var að hugsa um að biðja lögguna að vernda sig!"

Ég man nú ekki eftir að hafa verið svona skelfingu lostin af ótta við hefnd dóttur minnar. En í kvöld var ég alla vega fegin að Vigdís kippti sér ekkert upp við að vera í heimsókn hjá svona voðalegu fólki Wink

En ég get ekki leyft mér að skrifa hvað sem er, hvorki á blogg né í Mogga. Það er dagljóst.


Ö er örg Örk

Stafur vikunnar er Ö.

Á leiðinni heim úr skólanum spurði ég þær hvort það væri ekki erfitt að finna orð með Ö-i, en þær héldu nú ekki. Ég spurði hvað þeim dytti í hug. "Ég ætla að koma þér á óvart," sagði Elísabet. "Það er leyndarmál," sagði Margrét. Ætli þær séu orðnar pirraðar á mér??

Elísabet teiknaði fyrst strák. Einn úr bekknum. Í grænum bol og gallabuxum. Örn Steinar.

Á næstu mynd er bleikklædd kona að benda á tvær hænur sem liggja í hreiðurkössum. Konan er að vekja athygli á stöðu mála. Undir myndinni stendur: Önnur verpti.

Á þriðju mynd er kona í flottum kjól, með slegið sítt og ljóst hár. Allt í kringum hana er fólk, sem er að dást að henni og sumir taka myndir. Hún er svo fögur.

Á síðustu myndinni er konan ekkert sérstaklega falleg, alla vega er svipurinn á henni fremur ógnvekjandi. Hún er með skeifu og krepptan hnefa. Örg.

Margrét byrjaði á brúnu priki með svörtum haus. Öxi.

Svo datt henni bara alls ekki neitt í hug. Hún renndi sér einn hring á stofugólfinu á rúlluskónum sínum og ljómaði svo allt í einu, kom æðandi að borðinu og byrjaði að teikna. Hún hafði rekið augun í gamla konfektkassann, sem Kata gætir eins og sjáaldur auga síns. Þessi kassi geymdi alltaf möndlugjafirnar þegar Kata var lítil stelpa. Margrét teiknaði skip, með eins konar húsi ofan á. Í skutnum stendur karl og í stafni eru tveir gíraffar. Konfektkassinn, sem veitti innblásturinn, er nefnilega í laginu eins og Örkin hans Nóa.

"Ég er svöng," sagði Elísabet í miðjum klíðum og Margrét fékk aftur hugljómun. Hún teiknaði stelpu, sem situr við matarborð. Á borðinu er diskur og þetta brúna kringlótta og gulu prikin á disknum eru steik og franskar. Stelpan strýkur með annarri hendi um magann, en í hinni heldur hún á gaffli og hníf. Svöng.

Margrét var aftur orðin lens, stóð upp og sagðist ætla í göngutúr. Snarsnerist svo, settist aftur og teiknaði stelpu á gangi í grasi. Göngutúr.

 


Ö....ö, nei, ekkert ö!

Ekkert stafablað unnið á þessum bæ í dag Frown

Systur komu heim kl. þrjú, en þá lásu þær hvor sína lestrarbókina og svo stukku þær af stað á fyrstu fótboltaæfingu nýja ársins. Sem var ákaflega mikilvæg, enda verður mót á laugardaginn Grin

Eftir æfingu voru þær þreyttar og svangar, svo við borðuðum snemma. Svo kom nýtt Andrés-blað inn um lúguna í dag og mamma þeirra las það allt fyrir þær fyrir háttinn, með viðeigandi tilþrifum. Það gafst því hreinlega enginn tími fyrir stafina í dag, en við bætum úr því á morgun.

Stafur vikunnar er Ö.

Spennandi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 786278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband