Klipp

Þegar systur komu heim úr skólanum settist ég með Elísabetu í stofusófann og hlustaði á hana lesa. Allt í einu pípti í símanum mínum. Ég greip hann, leit á skjáinn og sagði: "Já, alveg rétt, ég á að fara í klippingu í fyrramálið."

Elísabet horfði dálítið undrandi á mig. Og sagði svo: "Ég vissi ekki að ein mamma gerði svona fyrir aðra mömmu?!"

Það tók mig dálitla stund að átta mig á hvað hún var að meina. Svo útskýrði ég fyrir henni að þetta hefði verið dagbókin í símanum að minna mig á klippinguna, ekki mamma hennar að senda mér sms um að nú ætti ég að fara í klippingu LoL


Samstaða

Hvers vegna láta blaðamenn bjóða sér þetta? Að bíða bara frammi á gangi, á meðan Vilhjálmur klárar að tala við ljósvakamiðlana?? Hann vildi reyndar helst fá að tala við einn fréttamann í einu, sem sýnir ljóslega hversu langt hann er frá því að vera með puttann á púlsinum, en ljósvakamiðlarnir höfðu sitt fram, að mér skilst með vísan til þess að þeir væru allir með beina útsendingu.

En blaðamenn af Mogga, 24stundum, DV og Fréttablaði? Fóru þeir ekki bara?? Það hefði verið hið eina rétta í stöðunni.

Samstöðu, gott fólk! Þið ljósvakafólk og blaðafólk áttuð að standa saman í þessum endemis vitleysisgangi. Og blaðafólkið að láta sig hverfa, en ekki taka svona framkomu þegjandi. Stjórnmálamaður - kjörinn fulltrúi almennings- á ekki að deila svona og drottna, úthluta viðtali við sig eins og einhverju náðarbrauði. Honum ber skylda til að svara.


Hillary it is

Ef ég væri kjósandi í Bandaríkjunum myndi ég kjósa Hillary. Ég vissi það nú fyrir. Ég gæti líka kosið Obama. Þau fá bæði 52 stig í könnun, þar sem hægt er að prófa hvaða frambjóðandi er besti fulltrúi lífsskoðana manns.

Allra neðstir eru repúblikanarnir Mitt Romney (11 stig) og John McCain (12 stig). Ég er algjörlega, fullkomlega sátt við að eiga ekki meira sameiginlegt með þeim.

Hérna er þetta: http://www.wqad.com/Global/link.asp?L=259460

 

 


Leynifélagið Hagkaup

Mér stóð ekki á sama um kvöldmatarleytið í gær, þegar Kata fór í Smáralindina að sækja systur og vinkonur í afmæli. Veðrið var auðvitað orðið alveg stjörnuvitlaust. Hún var ekki komin til baka þegar lögreglan tilkynnti að fólk ætti bara alls ekki að vera á ferðinni í þessu óveðri. En heim komust þær allar, heilu og höldnu.

Fyrr um daginn fór ég með stelpur í Hagkaup og þeim til mikillar gleði fundust húfurnar þeirra, sem mér hafði einhvern veginn tekist að glata degi fyrr. Ég veit ekki hvernig það gerðist, ég tók húfurnar af þeim, henti ofan í körfuna, keypti inn, borgaði vörurnar, fór með pokana út í bíl í kerrunni, uppgötvaði þá að húfurnar vantaði, leitaði í öllum innkaupapokunum sem og kerrunni, fór inn aftur, leitaði í öllum öðrum kerrum þar inni, leitaði í kerrustæðum um allt bílastæði, spurði í sjoppunni, spurði í upplýsingum...

Systur voru afskaplega spenntar yfir þessu, lýstu með vasaljósum ofan í allar kerrur sem þær sáu og Elísabet fullyrti að hún hefði séð afskaplega grunsamlegan mann, sem hefði gert sig breiðan, eins og til að fela að hann væri með tvær húfur innan á sér. Mér fannst nú ekkert athugavert við þennan miðaldra mann.

Margrét tilkynnti að málið yrði rannsakað betur, hún ætlaði að stofna "Leynifélagið Hagkaup" til að leysa málið. Úff, ég má nú ekki hugsa til enda viðbrögðin sums staðar í samfélaginu ef fréttist af slíkum félagsskap. "Leynifélagið Hagkaup?" Ætli efnahagsbrotadeildin fengi ekki aukafjárveitingu til að rannsaka ósómann?

Guðmæðurnar Addý og Bára voru komnar hingað í hús í gærkvöldi áður en tilkynning barst um að allir ættu að halda sig heima, svo þær hættu ekki við að koma í kvöldmat. Hreindýrapottrétturinn var alveg tilvalinn á svona nöpru kvöldi. Þær sátu svo hjá okkur fram eftir kvöldi, en á tímabili vorum við farnar að velta fyrir okkur hvort þær þyrftu ekki að gista. Þær komust klakklaust heim undir miðnættið.

Er það tilfellið að það eigi aftur að gera snælduvitlaust veður í kvöld? Er þetta eitthvað tengt matarboðunum okkar? Við ætlum að fá góða vini í heimsókn í kvöld og þeir eiga nú ekki allir heima í næsta húsi - bara sumir. Vonum það besta, annars eru hér sófar og aukasængur Wink


Sumar- hvað?!

Vetrarfríið byrjaði ágætlega í dag. Við börðumst út í jeppa og skutluðum Kötu í vinnuna. Svo fórum við þrjár á Bakarameistarann í Austurveri og systur tróðu í sig rúnnstykkjum og kakói og fengu einhverja bölvaða óhollustu í eftirmat. Alsælar.

Frá Bakarameistaranum héldum við til Afa Ís og Ömmu Deddu á Einimel. Þegar við renndum í hlað var pabbi að bakka bílnum sínum upp frá bílskúrnum og við feðginin tókum skurk í snjómokstri. Pabbi einbeitti sér að því að kanna hvort þetta væri ekki örugglega bíllinn hans, þarna undir snjófarginu, en ég ákvað að moka frá húsinu. Við vorum svo ljónheppin að um leið bar að mann á lítilli ýtu, sem var að hreinsa gangstéttar. Hann gerði sér lítið fyrir og skóf rækilega frá innkeyrslunni. Sparaði mér þar með mikinn mokstur (og áreiðanlega töluverðar harðsperrur). Á meðan á þessu stóð voru systur í góðu yfirlæti hjá ömmu sinni, sem hélt að þær væru aðframkomnar af hungri, enda báru þær sig aumlega og þáðu bæði kleinur og súkkulaðiköku. Og tvö mjólkurglös á mann!

Frá Einimelnum héldum við í Hagkaup, að kaupa inn fyrir ætlaða sumarbústaðarferð. Alls konar gúmmelaði, sem við verðum að borða hér heima um helgina, enda hættum við öllum bústaðarpælingum eftir að hafa skoðað veðurspána.

Þegar við komum hingað heim um hádegisbil var ljóst að það nægði ekki að moka frá húsi vestur í bæ, við urðum að taka til hendinni hérna líka. Systur voru ótrúlega duglegar, hömuðust með skóflur, plóg og kúst. Þær voru orðnar lúnar þegar ég skutlaði þeim í ráðuneytið til Kötu, þar sem þær fengu að dunda sér á meðan ég reyndi að koma einhverju í verk.

Svo var það fótboltaæfing síðdegis. Eftir æfinguna mátuðu þær nýja æfingagalla. Báðar smellpassa þær í stærð 8, en Elísabet vill samt fá stærð 10. Hún er hærri og þreknari en Margrét. Þessar vikurnar alla vega, en annars hafa þær nú gjarnan skipst á í þeirri deildinni. Margrét, sem var 6 merkur við fæðingu, var veik í tvo mánuði á eftir og enn grindhoruð og guggin þegar við loks fengum hana heim. Elísabet var þá pattaraleg, enda fæddist hún 8 merkur og amaði aldrei neitt að henni. Það var ekki að sjá að þessar stelpur hefðu fæðst á sama degi! Fjórum mánuðum síðar var Margrét hins vegar búin að ná systur sinni og um tíma var hún stærri og þyngri. Svo komu árin þar sem þær voru oftast alveg jafn háar og munaði í mesta lagi hálfu kílói á þeim, stundum var Elísabet þyngri, stundum Margrét. Þær eru báðar hraustar og löngu, löngu búnar að hrista af sér allt sem heitir fyrirbura-eitthvað. Læknarnir í henni Ameríku sögðu okkur að við gætum reiknað með að þær yrðu minni og grennri en jafnaldrar fram að 7 eða 8 ára aldri, en þær systur eru báðar yfir meðallagi á hæð, þótt vissulega séu þær grannar. En ekki horaðar.

Að þessum útúrdúr slepptum: Við erum sem sagt hættar við sumarbústaðinn og systur fá að fara aftur með mömmu sinni í vinnuna á morgun. Þær eru eiginlega ánægðar með þetta, því þær voru svekktar að missa af sjö ára afmæli hjá Emmu vinkonu sinni á morgun.

Sjálfar eru þær farnar að velta mjög fyrir sér eigin afmæli, þótt það sé ekki fyrr en 19. mars. Þær ætla að bjóða stelpunum í bekknum. Stundum vilja þær líka bjóða strákunum, en annars hrista þær bara hausinn yfir þessum uppátektarsömu guttum. "Það er eins gott að Bjarki er ekki í okkar bekk, annars væri hann áreiðanlega líka orðinn eins og hinir strákarnir," sagði Margrét um daginn, feginn að gamli félaginn er í hinum bekknum og enn með fullum sönsum. Ég á nú afskaplega erfitt með að sjá fyrir mér 6 ára strákakrúttin í þeirra bekk sem "slæman félagsskap!" Wink 

 


Slóð

http://www.wulffmorgenthaler.com/

Þarna eru allir þessir skrítnu brandarar.

 


Flinkastur

Systur eru í vetrarfríi á morgun og ætla að byrja daginn með stæl: Við förum á kaffihús að fá okkur morgunmat.

Margrét stakk upp á við færum á K-a-f-f-i-t-á-r, eins og hún stafaði.

Elísabet hafði aðrar hugmyndir: "Ég vil fara til hans sem er flinkastur að baka."

Þær sættust á hugmynd Elísabetar, svo við förum á Bakarameistarann.


Húmor

Húmorinn er oft sérkennilegur og kolsvartur, en mér finnst alltaf jafn gaman að kíkja á nýjustu skrítluna hjá þessum náungum.

Kristinir gætu áreiðanlega móðgast heiftarlega yfir þessari, ef þeir væru þannig innstilltir:

jesus

Svo er þessi líka góður, en öllu sakleysislegri:

riddari

Og þessi líka:

jóga


Norn og skrattastelpa

Systur voru glaðar í morgun og spenntar að fara í Neðstaland. Það er auðvitað enginn skóli í dag, en þær fá að vera allan daginn í Neðstalandi. Morguninn fer í vídeógláp og rólegheit, en eftir hádegismat stormar allt gengið í Víkingsheimilið. Þar verður öskudagsskemmtun milli eitt og þrjú.

Starfsfólk Neðstaland hélt, í bjartsýni sinni, að börnin myndu koma með búningana sína í poka og ekki fara í þá fyrr en eftir hádegi. Í bjartsýni okkar fylgdum við þessum fyrirmælum. En þegar við komum í Neðstaland í morgun mættu okkur herskarar sjóræningja, alls konar drýsildjöfla og einstaka prinsessa. Fyrir utan allar nornirnar. Systur voru því fljótar að snara sér í búningana sína.

Margrét er norn í ár, rétt eins og á hrekkjavökunní í haust. Kata keypti svartan nornabúning á hana í Svíþjóð á dögunum og svartan topphatt við og hún er alsæl. Fyrir átti hún kústinn til að fljúga á um loftin blá, en Kata bætti við ægilegum og vígalegum kuta, enda höfðu þær systur oft furðað sig á hvernig hægt væri að stinga einhvern í plati í bíómyndum og þessi hnífur var dæmi um svoleiðis gabb. Hann er með mjög mjúku blaði, þótt það sjáist ekki á honum í fljótu bragði.

Í Neðstalandi voru nágrannarnir og vinkonur systranna, Tara og Marta María. Og voru líka nornir. Tara í dökkbláum, fallegum kufli með nornahatt og Marta María í ljósbláum kufli og auðvitað með hatt í stíl. Nornir eru greinilega mjög "in" þetta árið.

Elísabet vildi ekki vera norn. Hún er "skrattastelpa", í rauðum kjól og með rautt hárskraut. Svo sveiflar hún djöfullegum þrífork og eins og það sé nú ekki nóg er hún líka vopnuð grautlinum kuta.

Þrátt fyrir vopnaburð segjast þær systur vera góðar.

Góða nornin og góða skrattastelpan verða málaðar í framan af unglingum í Víkinni eftir hádegi. Það finnst þeim flott.


Hlýtt

Alveg væri ég til í að skreppa núna til aðeins heitari slóða. Rölta um framandi stíga með konu og krúttmolum í þægilegu loftslagi, fara á veitingahús til að slaka á og í sundlaugina inn á milli. Í febrúar fer að síga á mann dálítil vetrarþreyta.

Mig langar til dæmis svona:

hkf_m2

Þetta var nú bara stutt borgarferð þegar systur voru á fjórða ári. Þeim hefur alltaf þótt gaman á veitingastöðum. Við verðum að lyfta okkur aðeins upp í komandi vetrarfríi, þótt það verði í kuldanum hérna heima.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 786278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband