5.2.2008 | 09:54
Ballett
Systur voru einu sinni í ballett og fannst það nokkuð gaman. Skemmtilegast af öllu var þegar haldnar voru sýningar. Þær sýndu einu sinni í Borgarleikhúsinu, en stundum voru bara litlar sýningar fyrir ættingja í æfingasal ballettskóla Eddu Scheving. Hérna eru systur að dansa með dúkkurnar sínar, Elísabet lengst til hægri, Margrét í miðjunni og Marta María vinkona lengst til vinstri. Bara 5 ára, krúttin.
Svo hættu þær í ballettinum og nú bíða þær spenntar eftir fimleikasýningum vorsins og fótboltamótum sumarsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.2.2008 | 09:15
Allt sem auðveldað getur lífið
Pistill í 24stundum þriðjudag, 5. febrúar.
Mannskepnan er iðin við að finna upp nýja hluti eða aðferðir til að létta sér lífið. Nýjungunum er alltaf tekið fagnandi, því við trúum því statt og stöðugt að þetta sé æðsta markmiðið: Að gera lífið auðveldara.
Ég er ekkert frábrugðin öðru fólki. Um daginn sá ég sniðugt tæki í matvöruverslun. Þetta var sérstakur bananahnífur, aflangt og bogið plastform til að leggja hýðislausan banana í og svo lagðist lok ofan á sem um leið sneiddi bananann í hæfilegar sneiðar. Brilljant, hugsaði ég, sem var einmitt að fara að elda kjúklingarétt með banönum. En hætti svo við þegar ég áttaði mig á að ég yrði lengur að hafa þennan sérstaka bananaskurðarhníf til og þrífa hann á eftir en að nota gamla lagið og sneiða bananann með hníf.
Þarna náði ég að hemja mig, en það hefur ekki alltaf verið svo. Verstu kaupin hingað til var áreiðanlega sérstök töng, sem tekur steina úr ólívum. Ein ólíva er lögð í sérstaka gróp og þegar töngin er klipin saman fer lítill stautur inn í ólívuna og þrýstir steininum úr henni. Tímafrekt? Nei, nei, svo afskaplega handhægt og snyrtilegt. Af einhverjum ástæðum er þessi töng löngu týnd.
Ég sá í fréttum að nú hafa vísindamenn uppgötvað hvernig rækta megi lauk, sem er þeirrar náttúru að sá sem sker hann tárast ekki. Þessi uppgötvun mun örugglega gera líf marga auðveldara. Er það ekki eftirsóknarverðast af öllu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.2.2008 | 20:19
Þoka
Margrét fékk sýkingu í augum fyrr í vetur.
Núna heldur hún að hún sé kannski að fá svoleiðis aftur, "af því að ég er stundum með þoku í augunum."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.2.2008 | 19:36
Svín
Í kvöld fengu systur pasta með skinku. Reyndar fékk Elísabet pasta með skinku, en Margrét borðar sitt pasta strípað, bara smjörklípu út á það. Hún er þó farin að borða salat með, svo þetta er allt að koma. Systir hennar hefur fullorðinslegri smekk, setur rifinn parmesan út á og lýsir sérstakri ánægju með hvítlauk og ferskar kryddjurtir.
Aftur að skinkunni: Systur vita alveg hvaðan kjötið kemur, svo Elísabet gerði sér vel grein fyrir hvað hún var að borða. Allt of vel, því skyndilega sagði hún: "Ég held að ég sé að borða ennið á gömlu svíni."
Undrunarsvipurinn á mæðrum hinum megin við borðið var ósvikinn, en þá hallaði Elísabet sér yfir borðið og hvíslaði: "Skinkan er svo hrukkótt."
Þá hlaut þetta auðvitað að vera ennið á gömlu svíni!
Hún var ekki viss um að við hefðum heyrt til sín, en hefði þótt mátt segja sér það af hláturskastinu sem við fengum. En útskýrði samt: "Sko, ég hvíslaði til að Margrét ældi ekki."
Margrét heyrði þetta og hrópaði upp yfir sig: "Oj, ég heyrði þetta. Þú varst að tala um ælu!!"
Hún hélt samt matnum niðri að þessu sinni.
Allt eins og venjulega við virðulega kvöldverðarborðið í Logalandinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2008 | 13:49
Vetrarfrí
Starfsdagur í skólanum á miðvikudag. Það vissi ég ósköp vel. Öskudagur og allt það.
Vetrarfrí fimmtudag og föstudag
Hvernig komst ég hjá því að vita af vetrarfríi??? Og hvernig dettur mér í hug að viðurkenna önnur eins afglöp í foreldrahlutverkinu??? Get ég aldrei þagað??!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.2.2008 | 23:22
Fátækt?
Margrét tekur hluti mjög bókstaflega, hún er nákvæmnismanneskja.
Á föstudagsmorgun var ég að gefa þeim morgunmat og býsnaðist yfir að það væri bara ekkert til í kotinu. "Við eigum ekki haframjöl, við eigum ekki hafrakodda, við eigum enga jógúrt og mjög lítið af mjólk," sagði ég með þungum áherslum.
Margrét var þungt hugsi og spurði svo í einlægni: "Erum við þá fátækar?"
Henni létti þegar ég sagði henni að þessi ræða mín þýddi bara að ég yrði að drífa mig í Bónus.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.2.2008 | 23:04
Módelstörf
Þegar ég var lítil var engin kona í heiminum fallegri en mamma mín. Alls engin.
Svona líta líklega öll börn á mömmu sína. Ég varð samt alveg bit þegar Elísabet horfði stíft á mig við morgunverðarborðið á laugardagsmorgni og spurði svo: "Af hverju hefur þú aldrei verið módel?"
Kjaftstopp, lengi, hún ég
En Elísabet vildi svör, svo ég neyddist til að útskýra fyrir henni að ég væri kannski ekki alveg týpan sem oftast væri leitað eftir til módelstarfa. Ég félli ekki inn í þetta dæmigerða módelform, sjáðu til.
Elísabet hristi bara hausinn yfir þessari vitleysu í mér: "Ég er viss um að þú hefðir alveg getað verið módel, en þú hefur kannski bara ekki passað alveg þegar einhver þurfti módel. En þú hefðir alveg getað passað næst."
Jamm, það er líklegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.2.2008 | 00:27
Ógeð
Margrét getur verið afskaplega klígjugjörn, eins og margoft hefur komið fram. Á leikskólanum var staffið búið að læra á þetta og hætt að hringja í okkur þegar blessað barnið kastaði upp. Tilefnið var líka oft svo augljóst, eins og þegar systir hennar stakk upp í sig hákarlsbita. Þá var Margréti allri lokið, einu sinni enn.
Þegar ég sótti systur í skólann í dag sagði Margrét mér að hún hefði kastað upp. Úti, þegar hún var að leika sér. Hún treysti sér alls ekki til að segja mér hvað hefði orsakað uppköstin að þessu sinni, en viðurkenndi að hún hefði séð dálítið ógeðslegt.
Hún sagði að það hefði farið dálítil æla í vettlingana og þeim hafði hún stungið kyrfilega í úlpuvasana, svo bæði úlpa og vettlingar fóru í þvott.
Í kvöld spurði Kata hana út í þetta, hvað hefði eiginlega gerst? Enn treysti Margrét sér ekki til að segja frá.
"Geturðu skrifað það fyrir mig?" spurði Kata.
Margrét fór niður, náði í blað og penna og skrifaði. Kom svo upp og rétti mömmu sinni samanbrotið blaðið.
Þar stóð: "Ég sá frosið bloðnasér." Undir setningunni var mynd af rauðri klessu.
Jamm, hver myndi ekki kasta upp við að sjá frosið blóð úr nefi??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
1.2.2008 | 15:13
Smáfuglar
Brrrr.... ansi er kalt úti núna! Eins gott að gefa smáfuglunum á svona degi. Þeir eru orðnir svo vanir veitingum hérna að stundum eru allar greinar þétt setnar á meðan þeir bíða eftir rúsínum og korni. Systrum finnst gaman að gefa og sitja svo við eldhúsgluggann og fylgjast með fuglunum steypa sér niður yfir matinn.
Systur fóru dúðaðar í skólann, en við gleymdum að í dag áttu þær að koma með einhverjar skemmtilegar bækur með sér, eins og alltaf á föstudögum. Ég brunaði því aftur í skólann, með "Ballið á Bessastöðum" og "Fjör í fyrsta bekk" undir handleggnum. Systur tóku mér fagnandi, voru farnar að hafa þungar áhyggjur af að ég kæmi ekki til baka og meira að segja búnar að biðja Erlu kennara að hringja í mig. Manni er ekki treyst fyrir horn
Maggi móðurbróðir kom í heimsókn frá Svíþjóð í gær og verður hér fram yfir helgina. Systur eru ákaflega lukkulegar með það. Þær vildu endilega fá að kíkja á hann í morgun, áður en þær fóru í skólann, en við ákváðum að leyfa honum að sofa áfram. Þær voru hins vegar ánægðar þegar þær heyrðu að hann hefði kíkt á þær sofandi þegar hann loks kom, löngu eftir miðnættið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.1.2008 | 23:25
Vetur
Bára guðmóðir og ljósmyndari var að senda nýjar vetrarmyndir af krúttunum.
Elísabet gerði fallegan engil í snjóinn.
Og var ansi ánægð með árangurinn.
Margrét var hins vegar heilluð af klakanum sem myndaðist í frostinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar