1.8.2007 | 12:42
Ída og Fúfu
Heimsókn á bókasafnið í morgun skilaði nú ekki mörgum bókum um skólagöngu. Ég tók eina, Ída er einmana, þar eru margar skemmtilegar lýsingar á lífi 7 ára skólastelpu.
Svo sá ég bók sem stelpurnar elskuðu út af lífinu á leikskólanum, Fúfú og fjallakrílin eftir Iðunni Steinsdóttur. Þær endursögðu allan lestur Rósu daglega og Margrét var óþreytandi að teikna Ríslu og Snuddu, Svaka, Sneglu, Fárbjóð, Fausa, Ponsu, Paufa, Meinfúsan og öll hin krílin.
Það var ekki fyrr en ég kom heim sem það runnu á mig tvær grímur. Það er satt best að segja mjög ólíklegt að þær systur kunni vel að meta upplestur minn á þessari bók, þótt hún hafi verið svona frábær á leikskólanum. Þær hafa marglýst því yfir, að enginn geti lesið eins og Rósa. Elísabet tók miklu ástfóstri við Bróður minn Ljónshjarta eftir lestur Rósu og varð yfir sig hamingjusöm að fá bókina í afmælisgjöf frá systur sinni í mars. Hún heldur oft á henni og strýkur, en sækist ekkert sérstaklega eftir að láta lesa hana fyrir sig.
Ætli Rósa taki að sér húsvitjanir? Húslestur á kvöldin??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.7.2007 | 22:07
Í skólanum, í skólanum er skemmtilegt að vera
Margrét átti bágt með að sofna í kvöld. Hún kvíðir því dálítið að byrja í skóla og spurði mig í þaula hvort allir krakkar færu út á leikvöllinn við skólann á sama tíma og hvort það væru ekki alveg örugglega kennarar að passa upp á að engin hrekkjusvín væru að stríða. Svo tók hún af mér hátíðlega loforð að fylgja þeim systrum í skólann. Ég lofaði því. "Alveg þangað til við verðum unglingar?" spurði hún, en sættist á að ég eða mamma þeirra myndum ganga með þeim á meðan þær vildu og teldu þörf á.
Getur ekki einhver bent mér á skemmtilega og jákvæða barnamynd, þar sem skólinn er sýndur í fallegu ljósi? Þótt Astrid Lindgren sé í uppáhaldi hér á bæ, þá lenda söguhetjurnar hennar gjarnan í hremmingum í skólanum, Lína hegðar sér auðvitað alveg eins og idjót og í bekknum hennar Madditar kemur upp heldur sorglegt þjófnaðarmál, svo dæmi séu tekin. Er ekki einhver mynd sem sýnir hvað það er nú gaman að læra að lesa, skrifa og reikna, leika sér á skólalóðinni, eignast vini í bekknum, geta leitað til kennarans ef þörf krefur, njóta þess að slúðra í matsalnum??
Plís?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
31.7.2007 | 19:53
Systurnar Ljónshjarta
Systur hafa þungar áhyggjur af hrekkjusvínum. Þær byrja í skóla eftir mánuð og eru sannfærðar um að þar úi og grúi allt af þeirri svínategund.
Um daginn voru þær að ganga frá vinkonu, sem býr nú bara hérna fyrir ofan götuna, þegar tveir strákar komu fyrir horn. Þeir voru stórir, ábyggilega 9 eða 10 ára og annar þeirra var með svarta húfu.
Sá með svörtu húfuna leit á þær systur og sagði: "Nei, sko!"
Meira þurfti ekki til. Systurnar Ljónshjarta snerust á hæli, hlupu til baka og fengu fylgd mömmu vinkonu sinnar heim, því þær voru sannfærðar um að þeim væri alls ekki óhætt einum.
Við Kata vorum að ræða þetta við þær áðan, að ótti þeirra við hrekkjusvín væri nú kannski óþarflega magnaður. Kata benti þeim t.d. á að þótt krakkar væru stundum að stríða, þá mætti ekki stimpla þau hrekkjusvín. Þær systur stríddu til dæmis stundum. En auðvitað fórum við ekkert í launkofa með að hrekkjusvín eru til og þær lofuðu að láta okkur alltaf vita ef einhverjir stríddu þeim fram úr hófi.
Svo spurðum við þær hvers vegna þær hefðu verið svona sannfærðar um að þessir tveir strákar, sem gengu hérna í götunni, hefðu verið hrekkjusvín.
Elísabet velktist ekki í nokkrum vafa, a.m.k. ekki með annan þeirra: "Hann var dimmur í augunum."
Erfitt að mótmæla svona rökum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.7.2007 | 17:35
Fyrirmyndin
Úff, ég get verið svo skelfileg fyrirmynd stundum! Ekki síst í umferðinni, þar sem ég á það til að láta heldur leiðinleg orð falla um aðra ökumenn. Ég er ekki jafn skelfileg og foreldrarnir í auglýsingunum, sem bölvuðu og rögnuðu út í eitt, en ég kemst stundum nærri.
Systur eru búnar að harðbanna mér að blóta og fylgja því banni vel eftir. Þær ganga raunar svo hart fram að þær skamma mig ef þeim finnst tónninn í mér "blótlegur" þótt ekkert blótsyrði falli af vörum.
Stundum halda þær að ég sé að grínast. Þegar ég sótti þær á leikskólann í dag þurfti ég að bíða lengi eftir að komast inn á Miklubrautina. Þegar færi gafst ætlaði ég að mjaka mér inn á, en kona nokkur gaf þá vel í og náði að koma í veg fyrir það. Ég muldraði í barm mér: "Beygla"!
Viðbrögðin létu ekki á sér standa í aftursætinu. "Beygla!" hrópaði Elísabet. Og bætti svo við: "Matarkex! Kaffi!"
Eins gott að hún hélt að ég væri bara að ryðja út úr mér matseðli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.7.2007 | 00:06
Fámenni
Systur fóru á leikskólann í dag, en þar var nú heldur rólegt. Af tuttugu krökkum Rauðu deildarinnar voru þrír mættir, þær systur og Helena. Á Grænu deildinni, þar sem næst elsti hópurinn er, voru fimm krakkar. Átta manns á hæðinni! Enda var hópurinn allur í afslöppun að horfa á bíómynd þegar ég kom að sækja þær klukkan hálf fimm. Svo rækilega var þetta stuðlið slegið út af laginu, að myndin sem varð fyrir valinu var jólamynd!
Það rætist nú áreiðanlega úr þessu strax eftir verslunarmannahelgi. Þær systur verða bara að þrauka þangað til.
Margrét tilkynnti í kvöld að hún ætlaði að fara að halda dagbók. Sem er auðvitað ágætis hugmynd. Mér hefði samt þótt betra að hún lærði að lesa og skrifa fyrst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.7.2007 | 09:36
Útförin
Systur nutu ekki bara lífsins fyrir vestan, heldur þurftu að standa í ströngu. Þær gengu fjöruna fyrir neðan Kirkjubæ og Grund og fundu hvorki fleiri né færri en 19 dauða æðarunga. Nítján stykki.
Skýringin á þessu mun vera einhver bölvaður þörungagróður, sem tekur rækilega við sér í hlýju veðri, eins og ríkt hefur fyrir vestan undanfarnar vikur. Þegar fjarar út háma blessaðir ungarnir þetta í sig, en þola það ekki og drepast í hrönnum.
Systur fóru að dæmi Sverris Karls frænda og grófu flesta ungana grunnt í sandinn. Þeir voru sumir nýdauðir, aðrir löngu dauðir og mávurinn búinn að éta innan úr þeim. Systur ræddu þetta af vísindalegri nákvæmni, fram og til baka, með frænda sínum. Merkilegt hvað allt svona verður eðlilegt viðfangsefni á Ísafirði, en yrði líklega tilefni hysteríu og vitleysu hér fyrir sunnan.
Einn daginn gekk ég með þeim systrum og uppáhaldsfrænda niður í fjöru og þá fundum við allnokkra dauða unga til viðbótar. Það var að fjara út og á lítilli sandeyri stutt frá landi sáum við í tvo unga og var annar þeirra greinilega á lífi. Sverrir Karl náði í vöðlur og óð út að þeim. Þetta reyndust vera toppandarungar, annar nýdauður og hinn vart með lífsmarki.
Nú varð uppi fótur og fit í fjörunni, enda þurfti aðrar og meiri ráðstafanir fyrst þau frændsystkin voru beinlínis þátttakendur í dauðastríðinu. Þau frændsystkin fóru með ungana að fuglakirkjugarðinum mikla sunnan við Grundina. Sverrir Karl hafði þá bitið á jaxlinn og stytt dauðastríð þess ungans sem lengur lifði.
Fuglakirkjugarðurinn við Grundina hefur verið þar lengi. Við Magga systir grófum þar í gamla daga þessa örfáu æðarunga sem þá drápust. Þá voru engir þörungar sem stráfelldu þá. Börnin okkar systkina hafa svo bætt í garðinn, þótt ömurlegt sé til þess að hugsa að ungadauði sé svo mikill að þau hafi ekki undan að hola því öllu niður.
En toppandarungarnir fengu alla vega virðulega útför. Fullorðna fólkið hélt sig til hlés, en Elísabet, Margrét og Sverrir Karl gengu alvarleg í bragði suður fyrir hús, Sverrir Karl með skóflu yfir öxlina.
Svo leið langur, langur tími. Loks komu þau til baka, enn mjög alvarleg en þó stolt af vel unnu verki. Systur lýstu athöfninni nákvæmlega og ljóst að þar vantaði ekkert upp á hátíðleikann, litla fólkið signdi sig í bak og fyrir, fór með Faðirvorið og raðaði svo steinum og blómum á leiðið.
Að kvöldi þessa dags lýsti Margrét því enn á ný yfir að nú væri liðinn besti dagur lífs hennar. Ég spurði hana hvort henni þætti skemmtilegra, vika á Ítalíu eða vika á Ísafirði. "Á Ísafirði" svaraði hún án þess að hika.
Elísabet gat ekki gefið eins afdráttarlaust svar: "Sko, mér fannst óskaplega gaman á Ítalíu og mér finnst óskaplega gaman á Ísafirði, svo ég get ekki valið."
Þær systur voru hins vegar sammála um að ein vika á ári á Ísafirði væri fáránlega stuttur tími. "Mér finnst þetta ósanngjarnt! Við erum alltaf á Íslandi, en bara viku á Ísafirði" sagði Margrét hin súrasta.
Þetta er hárrétt hjá henni. Núna, þegar þær systur eru orðnir svona miklir ferðagarpar, þá verðum við að lengja Vesturfarir. Næsta sumar ætlum við að fara í gönguferðir sem þær systur ráða við, t.d. frá Hesteyri yfir í Aðalvík.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.7.2007 | 00:24
Tappatogarinn 1948
Uss já, það eru margar sögur til af þessum risa. Til dæmis sú, sem rifjaðist upp í gær, af því þegar risinn bjargaði vegagerðinni milli Ísafjarðar og Súðavíkur á 5. áratugnum. Þá voru menn nú aldeilis í vandræðum, komnir að ókleifum hamri. En risinn stakk upp á að skipasmíðastöð Marsellíusar á Ísafirði smíðaði risastóran tappatogara, sem hann notaði svo til að bora göng í hamarinn. Enda nennti hann ekki að standa þarna alla daga og lyfta bílunum yfir klettavegginn.
Til að blessuð börnin fari ekki varhluta af heimsmenningunni endaði sagan á hamingju risans og frúar hans, sem gátu loksins opnað vínflöskuna góðu sem franski risinn gaf þeim í brúðkaupsgjöf. Tappatogarinn kom þar að góðum notum.
Stundum koma þessar heimatilbúnu sögur manni í verstu ógöngur. Frönsk rauðvín uppi á reginfjöllum? Það verður bara að hafa það...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2007 | 21:44
Vesturfararnir
Systur flugu sem sagt vestur og voru komnar um kvöldmatarleyti á laugardegi, á sama tíma og mæður skemmtu sér konunglega í frábæru brúðkaupi Önnu Margrétar og Tomma. Til hamingjju, aftur! Þetta var fyrsta brúðkaup sem ég hef verið viðstödd í sjálfum Fossvogsdalnum. Mæli með því.
Við Kata nutum þess að aka einar vestur, án þess að þurfa sífellt að svara spurningunni "Hvenær komum við?" Við komum til Ísafjarðar um miðjan sunnudag og þá tóku Magga og Pétur að sjálfsögðu á móti okkur með heljarinnar grillveislu. Naut, lamb og kjúklingur, minna dugði ekki fyrir stórfjölskylduna.
Systur voru alveg með það á hreinu hvað VARÐ að gera fyrir vestan. Fyrsta skylduverkið var sund á Súganda, en þar er besta sundlaug í heimi. Hvað er yndislegra en að liggja í heitum potti og horfa beint upp í vestfirskt fjall? Snilld.
Svo var komið að gönguferðinni upp í Naustahvilft. Þetta hlupum við Magga systir auðvitað oft á sumri hérna í den, en núna kalla ég mig góða að fara einu sinni á nokkurra ára fresti. Og í gamla daga var engin sérstök umbun. Núna er hins vegar hægt að fá fjallapassa og þegar komið er upp í hvilft er stimplað í passann. Fjölskyldur geta safnað stimplum og sent svo inn passann í von um vinning. Frábær hugmynd hjá Ísfirðingum.
Gangan upp? Jú, takk, hún gekk sosum bærilega. Systur hlupu á undan, sneru við, hlupu upp aftur, sneru við, könnuðu hvort enn leyndist lífsmark með mér og Möggu og hlupu svo upp aftur. Rétt eins og tíkin Blanda og hundurinn Tumi. Kata hélt jöfnum hraða upp í hvilft, en við Magga systir þurftum að stoppa ansi oft. Ekki af því að við kæmumst ekki í einni atrennu, onei, heldur bara af því að við þurftum að rifja upp bernskustundir. Í hljóði, af því að við vorum svo móðar.
Systur voru sérstaklega spenntar að komast upp, enda sannfærðar um að Naustahvilftin sé rassafar eftir afar myndarlegan risa, sem heimsótti Ísafjörð reglulega í gamla, gamla daga. Þegar ég var ung. Þær kunna auðvitað sögurnar af því hvernig hann hjálpaði krökkunum að draga sleðana upp í hlíð að vetrarlagi, hvernig hann skvetti á þau vatni að gamni að sumarlagi og hversu vel hann nýttist heimamönnum þegar skip áttu erfitt með að komast í var í vondum veðrum. Núna er hann löngu orðinn leiður á öllum skarkalanum og búinn að flytja sig inn á hálendið, systrum til sárra vonbrigða.
Upp í Naustahvilft komst allur skarinn og þar fengum við okkur súkkulaðikex og gos. Systur voru sérstaklega nestaðar frá afa sínum, sem hafði að sjálfsögðu krafist þess að þær hefðu með sér tvöfaldan suðusúkkulaðipakka, enda enginn orkugjafi betri á fjöllum. Hann gefur þeim reyndar suðusúkkulaði við öll tækifæri, enda vantar nú ekkert í þær orkuna.
Á meðan við vorum uppi í hvilft sigldi Ásthildur systir og Matti inn í Álftafjörð og höfðu Sverri uppáhaldsfrænda með sér. Þau eru reyndar löglega afsökuð, hann er jú sonur þeirra. Og við áttum eftir að njóta samvista við hann síðar. Til dæmis í Súkkulaðidal.
En meira um það síðar, nú eru systur í baði og best að verka af þeim ferðarykið. Og þær heimta að fá sögu. Ég hlýt að kunna einhverjar fleiri af þessum rassstóra risa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.7.2007 | 12:05
Bestu dagar
Á Ísafirði er bloggað á kaffihúsinu í Edinborgarhúsi, þar sem Helga Vala ræður ríkjum. Frábært að hafa svona alvöru kaffihús á staðnum.
Systur eru óskaplega hamingjusamar þessa dagana, þeytast um allar koppagrundir með hundana Tuma og Blöndu á hælunum, hlaupa á undan mæðrum upp í Naustahvilft, fá að róa litla árabátnum á Grundinni og í dag ætlum við að athuga hvort dvergarnir í Súkkulaðidal eru tilbúnir að lauma einhverju út úr þúfunum.
Á kvöldin kveikir Sverrir Karl frændi upp í miklum bálköstum. Mesta furða að systur skuli ekki hafa fengið reykeitrun, því þær eru einstaklega lagnar að standa alltaf með reykstrókinn upp í sig. Og stundum bindur besti frændi kassabílinn aftan í hjólið sitt og dregur skríkjandi systur um allar trissur.
Margrét segir á hverju einasta kvöldi: "Þetta var besti dagur lífs míns."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.7.2007 | 22:45
Fluga
Systur eru spenntar fyrir flugi vestur. Þær líta á sig sem sérstaka gæslumenn litla Tuma, sem verður að hírast í farangursrými í búrinu sínu og lofa að knúsa hann og kjassa við komuna vestur. "Aumingja Tumi," sagði Elísabet, "þetta er verra en að vera fluga í vínglasi!"
Mæður geta sosum alveg skrifað upp á að ekki sé gott að vera fluga í vínglasi, en hvaðan barnið náði í þessa samlíkingu er okkur hulin ráðgáta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar