21.5.2007 | 10:43
Sofa, plís!
Edda uppáhaldsfrænka, dóttir Möggu systur, passaði systurnar á laugardagskvöldið. Edda er afskaplega lítið fyrir að stressa sig á hlutunum, enda dýrka stelpurnar hana. Á laugardag fengu þær að horfa á bíómynd, en Edda steinsofnaði í sófanum. Hún vaknaði rétt fyrir tíu við að systur ýttu við henni og spurðu: "Hvenær eigum við eiginlega að fara að sofa?"
Edda reyndi að hrista af sér slenið og skellti sér í barnapíugírinn: "Farið í náttföt!"
Stelpurnar bentu henni á að þær væru báðar komnar í náttkjóla.
"Hmmm, þá þurfið þið að tannbursta ykkur!" sagði barnapían og var svona hérumbil, næstum alveg vöknuð.
"Við erum búnar að tannbursta okkur og líka pissa. Megum við núna fara að sofa?" spurðu systur.
Ég minnist þess nú ekki að þær hafi háttað sig og tannburstað og beðið mæður sínar um að fá að fara að sofa. Kannski ættum við að prófa að sofna á undan eins og Edda, þá átta þær sig á að það er framorðið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.5.2007 | 12:10
Hlaupahjóladrottningin
Systur eru með hjólreiðadellu þessa dagana. Margrét hjólaði um allar trissur um leið og hjálpardekkin voru tekin af hjólinu hennar, en Elísabet var aðeins lengur að ná ballans. Núna stendur hún sig ágætlega, en á stundum í vandræðum með að komast af stað.
Familían fór í hjólreiðatúr um Fossvogsdalinn á dögunum. Kata var búin að flikka upp á hjólið sitt, en okkur fannst alveg frábær hugmynd að ég færi á hlaupahjóli. Þá gæti ég alltaf stoppað þegar þörf krefði og aðstoðað Elísabetu.
Þegar mæður 6 ára stelpna leggja af stað í hjólreiðatúr verða þær að sjálfsögðu að sýna gott fordæmi og skella á sig hjálmi. Það gerðum við Kata samviskusamlega. Hjálmurinn minn er heiðblár og klæðir mig óskaplega vel, eins og gjarnt er með slík höfuðföt. Til að kóróna múnderinguna skellti ég nestistösku um mittið. Hún er með alls konar hólfum (fyrir snýtubréfin, plástrana og súkkulaðimolana) og tveimur stórum vatnsbrúsum.
Svo lögðum við af stað. Kata og Margrét þeystu á sínum fákum niður allt Óslandið, en við Elísabet ákváðum að leiða hlaupahjólið og hjólið hennar, enda var hún enn á því stigi að þora ekki niður brekkur. Þegar við komum niður í dalinn steig Elísabet á hjólið, ég ýtti á eftir henni, hún hjólaði af öllum lífs og sálar kröftum og ég hljóp af stað á hlaupahjólinu.
Ég fann strax að það var ekki gott að hafa mittistöskuna, því í hverri spyrnu rakst ég í vatnsbrúsana. Ég sneri töskunni aftur á rass, vatnsbrúsarnir voru eins og eldsneytisgeymar eldflaugar við afturendann á mér.
Fjölskyldan hélt í vesturátt eftir Fossvogsdal. Kata og Margrét hjóluðu langt á undan, en sneru við af og til og fylgdust með okkur Elísabetu. Elísabetu gekk reyndar mjög vel og því miður þurfti hún nánast aldrei að stoppa og því nánast aldrei að fá aðstoð við að komast af stað á ný. Ég fékk því enga pásu, heldur hljóp og hljóp á hlaupahjólinu á eftir fjölskyldunni á reiðhjólunum.
Við vorum farnar að nálgast skógræktarsvæðið vestast í dalnum þegar ég gafst upp og bað Kötu og systurnar vinsamlegast að snúa við, því ég treysti mér ekki alla leið í Nauthólsvík á þessu farartæki. Þær tóku vel í það, ég hjálpaði Elísabetu að snúa sínu hjóli og leggja í'ann og svo hurfu þær allar þrjár inn eftir Fossvogsdal.
Ég bölvaði í hljóði, beit á jaxlinn og hamaðist eins og vitlaust manneskja á hlaupahjólinu. Mér fannst þetta ekkert skemmtilegt. En áttaði mig nú ekki á því hvað þetta var neyðarlegt fyrr en ég sá svipinn á hjónunum sem ég mætti. Þau gátu auðvitað ekki vitað að ég væri sérlegur aðstoðarmaður 6 ára stelpu, sem var löngu, löngu horfin inn eftir dal. Þau sáu bara konu á miðjum aldri á hlaupahjóli, með fagurbláan hjálm á höfði, eldrauða í framan af áreynslu og með tvo eldsneytistanka upp úr rassinum.
Þarna var mér nóg boðið. Ég öskraði á Kötu og stelpurnar af öllum kröftum. Mér var reyndar sama þótt þær heyrðu ekki í mér, ég vildi bara tryggja að allir á göngustígnum gerðu sér grein fyrir að ég var alls ekki ein á ferð. En þær heyrðu í mér og sneru við. Ég útskýrði stöðu mála fyrir Kötu og sagði henni að þær mættu ekki víkja langt frá mér. Mannorð mitt væri að verði.
Kata sýndi mér afskaplega mikinn skilning og hluttekningu. Hún hefði samt verið meira sannfærandi ef hún hefði ekki hlegið svona mikið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.5.2007 | 18:47
Heilagur hamborgari!
Systur vilja gjarnan fara á McDonald's í tíma og ótíma, en mæður standa mjög gegn því. Í dag var Margrét dálítið að suða, fannst alveg kjörið að fara á þennan uppáhalds veitingastað í dag. Við Kata vísuðum til þess að þær hefðu fengið McDonald's í afmælisveislu í Ævintýralandi Kringlunnar í gær og þótt maturinn þar væri í lagi af og til vildum við ekki að þær borðuðu hann oft. Margrét var mjög ósátt við þetta og Elísabet reyndi að koma systur sinni til hjálpar með því að benda á að ekki væri kjöt óhollt og ekki væri brauð óhollt, svo hamborgari væri ekkert óhollur.
Eftir töluverðar umræður um McDonald's og alls konar hluti aðra, sem ýmist væru hollir eða óhollir, virtist Margrét loks vera búin að sætta sig við sjónarmið mæðranna. Eftir drykklanga stund spurði hún: "Er hollt að gera skemmtilega hluti?" Mæðurnar voru aldeilis á því að fátt væri betra heilsu fólks en gleði og skemmtilegheit. En höfðu þar með verið leiddar í gildru, því Margrét sagði: "Mér finnst skemmtilegast af öllu að fara á McDonald's!"
Þrátt fyrir þessa röksemd högguðust mæðurnar ekki. Elísabet ákvað að gera úrslitatilraun: "Mér finnst að við eigum að fara á McDonald's af því að í dag er dagurinn þegar Jesús, besti vinur barnanna, fór upp til himna!"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.5.2007 | 11:12
"Heildræna stefnan" í innflytjendamálum
Formaður ungra frjálslyndra virðist á þeirri skoðun að flokknum hafi ekki gengið sem skyldi í kosningunum af því að honum tókst ekki að básúna innflytjendastefnu sína nógu mikið fyrir kosningarnar.
Viðar Helgi Guðjohnsen heitir formaðurinn og var í kosningasjónvarpi RÚV á kosninganótt. Jóhanna Vigdís spurði hann hvort hann héldi að útganga Margrétar Sverrisdóttur og uppgjörið á flokksþinginu í lok janúar hefði sett mark sitt á útkomuna.
"Nei, ég held nú að það hafi meira verið aðdragandinn að flokksþinginu. Það var sko, við gátum ekkert gefið út neina almennilega, heildræna stefnu í málefnum innflytjenda, út af því að við vissum ekkert hver yrði kjörinn varaformaður, hvort það yrði Margrét eða Magnús."
Þá spyr Jóhanna Vigdís: Og hvað, voru þau með svona ólíkar skoðanir?
Viðar: "Já, Margrét var náttúrulega með allt öðruvísi skoðanir en Magnús"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.5.2007 | 10:51
Hring eftir hring
Fyrir kosningarnar reyndi Framsóknarflokkurinn að hræða fylgismenn ríkisstjórnarinnar til að kjósa sig með því að segja að flokkurinn gæti ekki farið í ríkisstjórn ef útkoma hans yrði jafn slæm og skoðanakannanir bentu til.
Framsókn tapaði stórt. Jón Sigurðsson var spurður hvort flokkurinn gæti setið í stjórn eftir þessa útkomu og miðað við fyrri yfirlýsingar. Og svarið var á þá leið, að það væri sosum í lagi að sitja áfram í stjórninni sem þegar var starfandi, bara ekki að ganga til stjórnarmyndunarviðræðna!
Sannfæring Framsóknar er að fólk sé fífl. Það fer í taugarnar á kjósendum og þess vegna hafna þeir Framsókn. Framsóknarmenn væla og skæla undan að bara þeim sé refsað vegna stjórnarsamstarfsins, en ekki Sjálfstæðisflokki. Þetta er grundvallarmisskilningur hjá Framsókn, það er ekkert verið að refsa þeim auma flokki vegna stjórnarsamstarfsins, enda eru greinilega mjög margir í sjálfu sér lukkulegir með stefnu ríkisstjórnarinnar. Fólk þolir bara ekki Framsókn!
Og mikið væri nú gaman að heyra skýringar Jóns Sigurðssonar ef kallað yrði eftir liðsinni Framsóknar í nýja ríkisstjórn á vinstri væng. Ætli það yrði þá ekki: Jú, sko við hefðum ekki getað gengið til stjórnarmyndunarviðræðna á hægri vængnum eftir þessa útreið, það var það sem við áttum við, af því að það var búið að hafna okkur í hægri stjórn, en það eru auðvitað skilaboð frá kjósendum um að þeir vilji sjá okkur á vinstri vængnum og þess vegna viljum við auðvitað bregðast við og reyna myndum vinstri stjórnar.
Fuss og svei !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2007 | 11:03
Nafnlausir fyrirliðar
Á forsíðu íþróttablaðs Moggans í gær voru tvær nákvæmlega jafn stórar myndir af fyrirliðum karlaliðanna í fótbolta og fyrirliðum kvennaliðanna.
Undir myndunum var tveggja hæða fyrirsögn sem vísaði bæði til karla og kvennaliðanna, sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn í sumar.
Í greininni var talað við tvo karla og eina konu. Skrifin um kvennaboltann voru vissulega fyrirferðarminni í textanum en skrifin um karlaboltann, en samt leit þetta allt svo undur vel út. Augljóslega hafði verið haldinn myndarlegur kynningarfundur um svokallaða Landsbankadeild karla og kvenna og Morgunblaðið virtist fjalla nánast jafnt um báðar deildirnar á þessari forsíðu.
Svo las ég myndatextana.
Undir myndinni af körlunum tíu voru talin upp nöfn þeirra allra og liða þeirra.
Undir myndinni af konunum átta stóð: Hér eru fyrirliðarnir hjá félögunum sem skipa Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í sumar.
Þetta er ekkert nema anskotans virðingarleysi og sýnir að "jafnt vægi" í forsíðuumfjölluninni er ekkert nema sýndarmennskan. Hið rétta hugarfar skýtur upp kollinum þegar kemur að því að ganga frá myndatextanum. Þá er engin ástæða til að tíunda nöfn kvennanna og liða þeirra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.5.2007 | 10:29
Miklir menn erum vér...
Upplýsingafulltrúi Alcoa segir Mogganum í dag að sameinað fyrirtæki Alcoa og Alcan yrði að skoða sérstaklega hvort ástæða væri til að breyta áformum um ný álver á Íslandi eða stækkun á þeim sem fyrir eru.
Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur ekki áhyggjur af hugsanlegum samruna Alcoa og Alcan. ,,Við munum tryggja að þetta verði engin valdasamþjöppun gagnvart okkur," segir Jón.
Auðvitað efast enginn um styrk Jóns gagnvart erlendum álfurstum. Þeir munu sko aldrei geta haft sína hentisemi hér á landi, fái hann að ráða.
Í gær lýsti Valgerður Sverrisdóttir, samráðherra Jóns, því reyndar yfir að Framsóknarflokkurinn myndi ekki fara í ríkisstjórn, yrði útkoma hans í kosningunum eins og kannanir sýna.
Æ, hver á þá að vernda okkur gegn valdasamþjöppun?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2007 | 13:51
Magga, sjáðu 60 prósentin mín !
Ég tók stutt netpróf sem á að mæla fylgi við stjórnmálaflokka. Útkoman var þessi:
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 12.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 20%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 37.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 33%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 60%
Ég er alveg sátt við þetta, nema hvað ég held svo sannarlega að ég styðji fremur Sjálfstæðisflokkinn en Framsókn ef í harðbakkann slær! Úff. Skrifa þann feil nú á afskaplega takmarkaða könnun, en það má hafa gaman af þessu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
7.5.2007 | 13:28
Groban gubb
Úff, ég fæ aulahroll þegar ég heyri í þessum Josh Groban. Samt er ég ábyggilega í markhópnum, kelling á miðjum aldri sem vill ekki hlusta á neitt agressívt, bara ljúfa og létta tóna. En, Drottinn minn, þarfnast heimurinn virkilega annars Michaels Boltons? Kellingar á miðjum aldri muna alla vega allt of vel eftir þeim beljara.
Svo er Groban þessi kynntur sem snillingur af því að hann blandar saman poppi og klassík. Af því að það er svo óhemju frumlegt. Right!
Á midi.is eru menn ekkert að spara stóru orðin: Groban er listamaður sem á sér engan líka. Hann er í grunninn klassískur söngvari en hefur náð alheimshylli með því að tvinna sína stórkostlegu og fjölhæfu barítóna rödd við kraftmikla melódíska popptónlist.
Astraltertugubb.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.5.2007 | 10:00
Sterk þreytuviðbrögð? Þýðingu, takk!
Mikið vildi ég að embætti forseta Íslands sendi frá sér tilkynningar á skiljanlegu máli. Mér finnst það eiginlega lágmarkskrafa.
En kansellí-stíllinn virðist þjaka skrifstofu forseta. Hvað á það að þýða að segja að forsetinn hafi fundið fyrir ,,sterkum þreytuviðbrögðum"? Hvað merkir þetta á mannamáli? Varð forsetinn heiftarlega syfjaður? Þegar ég er mjög þreytt þá verð ég gjarnan mjög syfjuð. En kannski þýðir þetta bull, ,,sterk þreytuviðbrögð" eitthvað allt annað?!
Ég óska forsetanum góðs bata og er alls ekki að gera lítið úr því að það geti verið alvarlegt ef mikil höfgi sækir á menn og auðvitað hárrétt að rannsaka það. Og þegar forsetinn hefur jafnað sig að fullu vona ég að hann hnippi aðeins í sitt fólk og bendi þeim vinsamlegast á að upplýsa þjóðina næst á skiljanlegri íslensku.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar