Garðpallur og áhorfendapallar

Ljúf helgi runnin upp og ljúfir dagar að baki. Við Kata fórum með nokkrum vinnufélögum mínum (nei, fyrrverandi vinnufélögum) af Mogga á Sjávarkjallarann á fimmtudagskvöld. Góð kvöldstund með góðu fólki. Frænkur systranna, Unnur og Kata, voru að passa. Stelpurnar dýrka þessar frænkur sínar og finnst allra best þegar báðar koma að passa. Elísabet lýsti því svona: "Sko, Unnur er mjög góð. Hún er eins og afmæliskaka. En Kata er eins og rjómi á kökuna, svo það er enn betra þegar hún kemur líka." Líkingar Elísabetar ganga afskaplega oft út á mat Wink 

Í gærmorgun vaknaði Elísabet með svo hrikalegan hálsríg að hún gat sig varla hreyft. Við fórum með Margréti á leikskólann, en Elísabet fékk að dingla með mér fram að hádegi, en fór svo á leikskólann.

Eftir leikskóla brunaði ég með stelpurnar í Hafnarfjörð, þar sem Kata spilaði handbolta eftir langt hlé. Þarna var eitthvert old-girls mót, með gestum frá Danmörku og Noregi. Kata og co. voru nú ekkert sérstaklega gestrisnar, völtuðu yfir þær norsku 17:7 og yfir þær dönsku 14:6. Svo eru fleiri leikir í dag. Systurnar voru mjög áhugasamar um handboltann, en Margrét fokreiddist að vísu í hvert sinn sem einhver snerti á mömmu hennar. Eftir að hafa eytt hálftíma í að útskýra aftur og aftur fyrir henni að það væri ekkert óeðlilegt þótt andstæðingarnir reyndu að stoppa gegnumbrot mömmu hennar og benda henni á að mamma hennar gerði slíkt hið sama í vörn, þá gafst ég hreinlega upp. Margrét var bara foxill út í þessar útlendu konur og áttaði sig engan veginn á þeirri hroðlegu útreið sem þær fengu á stundum hjá Kötu og co.

Þegar við komum heim í gærkvöldi, eftir viðkomu á Ruby Tuesday, var búið að hlaða pallaefni í heimreiðina. Í næstu viku byrjar pallasmíðin mikla í Logalandi og innan tveggja vikna verður hér parketlagður garður, með heitum potti og alles. Svo þarf bara að flytja garðinn eins og hann leggur sig á suðlægari slóðir, svo hægt sé að njóta pallsins... Nei, annars, mér skilst að hérna í Fossvoginum sé alltaf blíða og eintóm sæla, þótt blási um fólk annars staðar í borginni. Við settumst nú gjarnan upp á nágranna okkar á nr. 2 síðasta sumar, áður en við fengum húsið afhent, og þar var alltaf sól og hiti. Svo sögðu tilvonandi nágrannar í næstu götum okkur sögur af því hvernig þeir vöktu mikla athygli með því að þvælast á stuttbuxunum sínum út úr hverfinu. Íbúar annarra hverfa horfðu kappklæddir í forundran á þessi fyrirbæri úr Fossvoginum, sólbrennd og léttklædd. (Hérna í Fossvoginum er svipuð stemmning og á Akureyri, allir halda því alltaf fram að hér sé alltaf blíða).

Stelpurnar eru núna úti á palli, þ.e. að klifra í timburstæðunum framan við hús. Mér sýnist nýting þessa palls því ætla að verða með allra besta móti.

 


Tópasbaráttan mikla og lífskjörin

Iss, hvað þetta var nú hallærislegt hjá Nóa-Síríus! Að senda einhverja krakka í 1. maí gönguna með Tópas-skilti. Frjálst Tópasland! Tópas til fólksins!

Ég sé alveg fyrir mér markaðssnillingana sem ákváðu að þetta væri voða, voða sniðugt. Fjölmiðlar myndu fylgjast með göngunni og allir yrðu varir við þessa ógurlega sniðugu auglýsingaherferð.

Það er auðvitað algjört aukaatriði hjá þessum snillingum að 1. maí er dagur verkalýðsins, dagur réttindabaráttu, baráttu um það sem máli skiptir. Hérna áður fyrr skipti gangan meira máli en núna, því þá var í raun og sann barist fyrir þeim grundvallarmannréttindum að geta framfleytt sér og sínum  með vinnu sinni.

Núna höfum við það kannski öll svo hrikalega gott, að mati markaðssnillinganna, að við getum bara stolið kröfugöngunni og grínast með þetta allt saman. Markaðsstjóri Nóa-Síruss gerir sér augljóslega enga grein fyrir mistökunum, hann segir í Fréttablaðinu að þetta hafi átt að vera vörukynning og góðlátlegt grín. Og svo segir hann að alltaf séu einhverjir ósáttir við nýjar auglýsingaleiðir, en það verði að koma í ljós hvort þetta beri árangur.

Líklega metur markaðsstjórinn árangurinn bara eftir sölunni á Tópas. Skítt með verkalýðsbaráttuna og skítt með mannorðið.


Gott fólk

Vinnufélagar á Mogga leysa mig út með gjöfum, konfekti, rauðvíni og stærsta blómvendi sem ég hef nokkurn tímann séð.

Gott fólk.

Eins gott að Kata er á leiðinni með bíl og börn, svo ég hafi burðardýr og farartæki til að komast héðan með allt þetta góss.


Síðasti dagur á Mogga

 Nú er síðasti starfsdagurinn á Mogga runninn upp. Það er dálítið undarlegt að vera að hætta störfum hérna eftir allan þennan tíma. Reyndar hef ég nú tekið pásur frá Mogga áður, fyrst þegar ég skrapp til Noregs og vann á ryðvarnarverkstæði í eitt ár (jamm, löng saga...), svo fór ég til Kaliforníu í 2 ár en vann að vísu úr fjarska fyrir Mogga og loks dreif ég mig svo í laganámið. Það var lengsta fjarveran af Mogga, en eftir BA-prófið síðasta vor fór ég aftur í faðm Árvakurs.

Nú hef ég loksins ákveðið að láta gott heita. Mig langar að fást við eitthvað annað. Eða réttara sagt, einhver önnur skrif, því ég reikna nú með að halda áfram að setja eitthvað á blað.

Þessu bloggi ætla ég líka að breyta úr prívat hugleiðingum mínum í allsherjarblogg heimilisins. Þá skrifa ég stundum, Kata skellir inn sínum hugleiðingum af og til og dæturnar líka (o.k. þær þurfa að vísu að læra að skrifa fyrst, en þær eru auðvitað svo stórvel gefnar að það styttist mjög í það).

 


Ekkert blogg fyrir Ollu

Ég er að sálast úr móral. Olla les bara tvö blogg á dag og mitt er annað þeirra. Ég er viss um að hún er búin að fara margoft inn á þessa síðu í dag og aldrei hefur hún séð neitt nýtt. Þetta setur alveg óbærilega pressu á mig.

Spurning hvor okkar er í verri málum, ég undir þessari heiftarlegu pressu, eða Olla sem finnur ekkert skárra lesefni.

Gleðilega helgi, Olla mín Wink


(sumir) í faðm kirkjunnar

Þjóðkirkjan hafnaði mér enn á ný.

Það er þá jafnt á komið með okkur.

Eini ljósi punkturinn við þetta er að ég hef alltaf lúmskt gaman af að fylgjast með biskupi fara hring eftir hring í röksemdafærslunum þegar hann er að verja afstöðu sína.


Þrýstingur

Veðrið virðist ætla að verða skaplegt um helgina.

Flestir myndu fagna því.

Ég veit hins vegar að um leið og loftþrýstingurinn batnar eykst þrýstingurinn heima fyrir að taka til í helv.... bílskúrnum.

Þetta verður ekki helgar"frí"


Upp, upp mín sál!

Áfengisneysla eykur líkur á brjóstakrabbameini, samkvæmt niðurstöðum danskrar rannsóknar.

Ég hef líka séð niðurstöður annarra rannsókna, sem sýna fram á tengsl alkóhóls og brjóstakrabbameins. Að vísu kunna menn ekki beint skýringar á þessu, en svona mun þetta samt vera. Segja þeir.

Ég á alveg fullt í fangi með að henda reiður á öllu því sem er alveg hundrað prósent sannarlega óhollt af vel þekktum ástæðum. Og get bara ekki bætt þessum ósóma á listann. Alla vega koma svona fréttir ekki í veg fyrir að ég fái mér vínglas, sem aðrar rannsóknir sýna að er hollt og gott fyrir hjarta og hina aðskiljanlegustu líkamsparta (er "sálin" annars líkamspartur?)


Hjónabandið

Ég hitti séra Kristin Jens Sigþórsson í gær. Hann var um tíma blaðamaður á Mogganum, en er núna sóknarprestur í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Kristinn Jens ræddi m.a. við mig um hjónavígslu samkynhneigðra, en hann og margir kollega hans vilja að prestar verði opinberir vígslumenn samkynhneigðra sambanda, rétt eins og hjónabanda gagnkynhneigðra. Í Mogganum í dag er haft eftir honum að hann telji sátt um þetta í samfélaginu, enda fólk farið að nota orðin hjón og hjónaband um samkynhneigða og sambönd þeirra.

Þetta get ég vottað, sem samkynhneigð kona í "staðfestri samvist". Og ég er þess fullviss að séra Kristinn hefur rétt fyrir sér þegar hann segir, að útilokun samkynhneigðra frá hjónabandinu dragi úr trúverðugleika kirkjunnar.

 


"Landsliðsferð"

Komin aftur til starfa eftir frábæra og langa helgarferð til Noregs. Ég fékk að fljóta með hópi gamalla handboltastjarna (slíkur ljómi stafaði aldrei af mér, en þær voru hver annarri betri "i den")

Mikið eru þau nú hugrökk, Soffía og Óskar, að taka á móti fimm kellingum í helgargistingu. Sumar höfðu ekki hist í 13 ár, en það kom ekkert að sök. Og fjörið var eins og þær hefðu bara haldið áfram partýinu frá því fyrir 25 árum.

Mér tókst ágætlega að halda í við þær. Var alla vega ekki slöppust ;)

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband