Bruni

Æ, það er nöturlegt að horfa upp á þessi gömlu hús í miðbænum brenna. Borgarstjórinn segir hins vegar að hann vilji varðveita götumyndina og að uppbygging hefjist strax. Guð láti á gott vita.

Landsfundur

Í dag sit ég landsfund Sjálfstæðismanna. Fyrir Moggann, að sjálfsögðu. Ég hef reyndar aldrei áður dekkað landsfund Sjálfstæðisflokksins, merkilegt nokk, þrátt fyrir hátt í aldarfjórðungs djobb á Mogga. Það hlaut að koma að því.

Það fyrsta sem vakti athygli mína þegar ég mætti á landsfundinn í morgun var að hann líktist í engu síðasta landsfundi stjórnmálaflokks sem ég sat. Sem er ósköp eðlilegt, frjálslyndir eru jú engum líkir.

 


Pyntingar?

Bresku sjóliðarnir hafa barmað sér alveg óskaplega yfir meðferðinni í írönsku fangelsi. Þeir voru neyddir til að ganga í jakkafötum í stað einkennisklæða og eina konan í hópnum var látin bera klút um höfuðið og sofa í sérherbergi, svo dæmi sé tekið. Engin furða að nú hafi verið lagt blátt bann við viðtölum við þessa hugprúðu riddara réttlætisins.

Terry Jones, einn af Monty Python genginu, beitir auðvitað bresku háði á þetta allt saman:

http://www.commondreams.org/archive/2007/03/31/208/


Danska

Þegar ég fer til Danmerkur líður mér stundum eins og þeir tali einmitt svona:

http://www.youtube.com/watch?v=s-mOy8VUEBk

Óborganlegt ;)

 


Kjósum!

Mig langar að mæta á kjörstað í Hafnarfirði á morgun og krefjast þess að fá að kjósa um stækkun álversins.

Hvernig getur þetta verið einkamál Hafnfirðinga?


Krónikan öll

Ekki stóð útgerðin á Hverfisgötunni lengi. Þar var mesta ágætis fólk og mér fannst blaðið hið læsilegasta. Útlitið var sérlega vel heppnað. Ég er nú satt best að segja hálf undrandi á að Krónikan næði ekki a.m.k. þeim tíu tölublöðum sem við áskrifendur höfðum kvittað upp á að borga, en líklega má skrifa það á óhóflega, alíslenska bjartsýni. Blaðið seldist miklu, miklu verr en Sigga Dögg og Valdimar sáu fyrir og fjármögnunin greinilega takmörkuð. Og þessi reynda ritstjórn og tiltölulega fjölmenna líklega ekki verið sú ódýrasta í bænum. Ég sé það fólk nú ekki allt fyrir mér á ritstjórnarskrifstofum DV.

Better luck next time


Veislugleði

Það er miklu skemmtilegra að vera 6 ára en 46 ára. Sex ára systrum er boðið í afmæli nánast í hverri viku. Tvær vinkonur á leikskólanum eiga afmæli um þessar mundir, Jóhanna Lan í dag og Eva Berglind á sunnudag, með tilheyrandi veisluföngum og fjöri.

Ég man ekki til þess að nokkur í mínum árgangi hafi boðið mér sérstaklega í veislu í tilefni 46 ára afmælis. 

Ég styð þann flokk í næstu kosningum sem hvetur fólk til frekari veisluhalda.


Páska-hvað?

Mér krossbrá á fundi áðan. Við vorum að ræða næsta helgarblað Moggans og svo þar næsta og einhver hafði á orði að næsta vinnuvika væri ansi stutt vegna páskanna.

PÁSKANNA???

Vissu allir nema ég að páskarnir væru handan við hornið?

Ég hélt að það væru a.m.k. 3 vikur í þá.

 


Biðin langa á enda

Loksins var blásið til blaðamannafundar vegna framboðs Margrétar, Ómars og fleiri. Fyrir allmörgum vikum var fólk farið að ókyrrast, en síðustu daga hafa margir spurt mig hvort nokkuð yrði af þessu. Ég efaðist nú aldrei um að svo yrði, en vissulega var þetta löng bið. Ég held hins vegar að hún komi ekkert að sök. Kosningabaráttan er öll eftir.

Mátti sjá þetta fyrir!

Já, auðvitað hefði konan mátt segja sér að maðurinn myndi berja hana, fyrst hann var frá Marokkó!

Aldeilis traustvekjandi að hafa svona dómara.

Hérna er frétt mbl.is:

Skilnaðarmál hefur verið tekið úr höndum kvenkynsdómara í Þýskalandi eftir að dómarinn hafnaði kröfu konu um skilnað frá eiginmanni hennar á þeirri forsendu að hún hefði mátt sjá það fyrir að eiginmaðurinn myndi beita hana ofbeldi.

Eiginkonan, sem er 26 ára, fór fram á skilnað frá eiginmanni sínum á þeirri forsendu að hann hefði slegið sig og hótað sér lífláti. Í úrskurði dómarans er hins vegar vísað til þess að hjónin séu af marokkósku bergi brotin og því haldið fram að „í þeirri menningu sé ekki óvenjulegt að eiginmenn áskilji sér rétt til að tuska eiginkonur sínar til". Þá segir að konan, sem er fædd og uppalin í Þýskalandi „hafi mátt reikna með slíku þegar hún giftist manni sem var uppalinn í Marokkó.”

Konan kærði úrskurðinn sem hún sagði hlutdrægan og féllust yfirvöld á kröfu hennar um að málið yrði tekið fyrir að nýju. Dómarinn vísar því hins vegar alfarið á bug að hún hafi litið framhjá mannréttindum í úrskurði sínum og vísar í Kóraninn máli sínu til stuðnings.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband