22.3.2007 | 10:12
Steinar sem Jónas snerti
Mér finnst alveg bráðfyndin fréttin í Mogga af sýningu um Jónas Hallgrímsson í Amtsbókasafninu á Akureyri. Í haust verða 200 ár liðin frá fæðingu þessa ástsæla skálds og náttúrufræðings. Á sýningunni verða allmörg eiginhandarhandrit Jónasar að ljóðum og ritsmíðum, en helsti fréttapunkturinn virðist þó vera að fjögur steinasýni, sem hann safnaði, verða líka til sýnis.
Fjögur steinasýni.
Skáldið mun hafa safnað um 1.200 steinum og steingervingum á ferðum sínum um landið og nú höfum við fengið fjóra steina lánaða frá Kaupmannahöfn.
Ég held að maður verði að gera sér ferð norður, svei mér þá!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2007 | 09:53
Hvert hafa þessi 6 ár farið?
Elísabet og Margrét áttu 6 ára afmæli í gær. Þær voru eitt sólskinsbros frá morgni til kvölds. Þær voru spenntar að fara í leikskólann, enda fengu þær kórónu og þær fengu líka að þjóna til borðs. Sem ku vera toppurinn á tilverunni. Við sem eigum fleiri afmælisdaga að baki vitum hversu gott það er að sleppa við að þjóna til borðs, sérstaklega á afmælisdaginn.
Eftir vinnu komu ættingjar og nánustu vinir í heimsókn og þær systur fengu mjög góðar gjafir. fullt af fínum bókum, alvöru svefnpoka, pöddurannsóknarbúnað (í alvöru!) og trékastala, falleg föt, gúmmískó , púsluspil, bíómynd og ýmislegt föndurdót.
Við Kata gáfum þeim ný hjól, sem þær fengu reyndar að velja sér fyrir rúmum mánuði. Þá var auð jörð og dálítið vorlegt um að litast. Þær gátu því æft sig aðeins, en nýju hjólin hafa nú ekki verið hreyfð undanfarin. Vonandi vorar fyrir alvöru á næstunni.
Þúsund þakkir til allra sem glöddu stelpurnar okkar á afmælisdaginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.3.2007 | 10:46
Nýtt kók fyrir kjána (Viðhorf í Mbl. 17. mars)
Þeir sem þekkja til gosdrykkjarisans vita að hann hefur áður markaðssett kók sem heitir light og diet, en hvort tveggja á að hvetja fólk til að fá sér gos án þess að hafa áhyggjur af aukakílóunum. Af einhverjum ástæðum virðist létta kókið og megrunarkókið ekki höfða nægjanlega til karlmanna, svo risinn telur nauðsynlegt að framleiða gosdrykk, sem sannir karlmenn geta sameinast um. Þess vegna er þessi Zero-drykkur settur á markað.
Á heimasíðu Vífilfells, framleiðanda Coca-Cola á Íslandi, er haft eftir Árna Stefánssyni forstjóra að Zero sé niðurstaða tilrauna Coca-Cola til að búa til drykk sem bragðast eins og venjulegt kók en sé án sykurs. Coca-Cola light hafi náð mikilli hylli beggja kynja um allan heim, en þó aðallega kvenna. Með Coke Zero sé ætlunin að höfða til karlmanna sérstaklega. Merki um þessar áherslur séu umbúðirnar, sem séu biksvartar, og auglýsingaherferðin fyrir Coke Zero, sem sé talsvert beittari og meira ögrandi en fólk á almennt að venjast frá Coke.
Áfram er haldið á heimasíðu Vífilfells og útskýrt að þema auglýsingaherferðarinnar sé "hvernig góðir hlutir gætu verið betri ef þeim fylgdu engar afleiðingar". Með þessu telja menn sig vera að vísa til eðlis vörunnar, að Zero bragðist eins og venjulegt kók, en sé án sykurs (og þar með líklega án þeirrar afleiðingar að fólk fitni).
Vífilfell nefnir svo dæmi um þessa snjöllu markaðssetningu sína, setningar á borð við "Af hverju ekki mömmur með Zero áhyggjur af manni?", "Af hverju ekki kærustur með Zero er ég feit í þessu?", "Af hverju ekki brjóstahaldarar með Zero smellum?" og "Af hverju ekki frambjóðandi með Zero kjaftæði?"
Þetta þykir Vífilfelli vera beitt og ögrandi og dæmi um "hvernig góðir hlutir gætu verið betri ef þeim fylgdu engar afleiðingar". Þetta hlýtur þá líka að eiga við um allar hinar auglýsingarnar, sem hljóma meðal annars svona: "Af hverju ekki sundlaugar með Zero kvennaklefum?" "Af hverju ekki konur með Zero skoðanir?" "Af hverju ekki kynlíf með Zero forleik?" "Af hverju ekki konur og Zero bílpróf?"
Mér finnst þetta hvorki beitt né ögrandi, heldur fyrst og fremst kjánalegt og niðurlægjandi. Niðurlægjandi fyrir konur, en ekki síður niðurlægjandi fyrir markhópinn, ungu karlmennina, sem Coke þykist vera að höfða til. Halda auglýsingasnillingarnir að ungir karlmenn kunni vel að meta að dregin sé upp mynd af þeim sem grunnhyggnum kjánum? Er virkilega markaður fyrir sérstakt nýtt kók fyrir kjána?
Auglýsingaherferð Coke er svo sannarlega ekki bundin við Ísland, því sambærilegar auglýsingar hafa tröllriðið markaðnum í öðrum löndum undanfarna mánuði. Í Finnlandi sá umboðsmaður neytenda ástæðu til að gera athugasemdir við vefsíðu Coke Zero. Þar var hægt að spila tölvuleik, sem gekk út á að ná konum í rúmið á sem skemmstum tíma. "Skilaboðin á Coca-Cola Zero vefsíðunni voru að konur séu óæðri og ómerkilegir hlutir og eina gildi þeirra felist í getunni til að stunda kynlíf," segir í fréttabréfi umboðsmannsins í ársbyrjun. "Karlmaðurinn þarf að fá konuna til að þagna sem fyrst, svo hann geti stundað kynlíf eins fljótt og hægt er og síðan varið meiri tíma í að skemmta sér með vinunum. Leikurinn stingur einnig upp á að maðurinn leigi hóp homma, til að auðvelda honum að ná í konu. Viðhorfið kristallast í slagorðinu "meira kynlíf, Zero forleikur"."
Umboðsmaðurinn segir að þótt ætlunin hafi verið að herferðin væri fyndin væri hún ekki viðunandi.
Í Bretlandi var farin svipuð leið og ein auglýsingin var eitthvað á þá leið að spurt var "af hverju ekki kærasta án fimm ára áætlunar?" Þar í landi spurðu menn reyndar líka af hverju væri ekki hægt að hafa blind stefnumót án geðsjúklinganna, en þar þótti vegið að geðsjúkum með ósæmilegum hætti og hætt var við auglýsinguna.
Í Þýskalandi var farin sú leið, líkt og í Finnlandi, að útbúa sérstaka vefsíðu. Þar var m.a. hægt að taka eins konar karlmennskupróf. Sem dæmi um slíkt próf var mynd af baðkari og spurt var um hvað áhorfandinn væri að hugsa. Einn svarmöguleikinn var "blautbolakeppni". Svarmöguleikar við mynd af tveimur appelsínum var a) draumastúlkan, b) appelsínur eða c) appelsínuhúð. Aðrar spurningar voru í sama dúr, til dæmis var þarna að finna mynd af óumbúnu rúmi. Og hvað datt mönnum þá í hug? a) Eva, Caro, Astrid, Christina, Kim, Meli, Doro... b) frú Holle (sem er líklega ráðskonan) og c) rykmaurar. Sannir karlmenn vita auðvitað við hvað þeir eiga að merkja til að slá í gegn á prófinu!
Það er óhætt að segja að auglýsingar fyrir Coke Zero í öðrum löndum hafa ekki beinlínis slegið í gegn. Þeim hefur víðast hvar verið mótmælt kröftuglega, en samt heldur gosdrykkjaframleiðandinn áfram, úr einu landinu í annað. Með þessar "beittu og ögrandi" auglýsingar, sem sýna hvernig góðir hlutir gætu verið betri ef þeim fylgdu engar afleiðingar. Mig grunar hins vegar að afleiðingar þessarar markaðssetningar gætu reynst alvarlegar fyrir Coke, alla vega er ég orðin gjörsamlega afhuga framleiðsluvörunni. Er vit í því fyrir stærsta drykkjarframleiðanda heims, að fæla frá sér konurnar? Sem auglýsingasnillingarnir hefðu nú getað upplýst gosdrykkjarisann um að stjórna að mestu innkaupum til heimilanna?
Hér á landi er líka farið að örla á mótmælum. Veggspjald með áletruninni "Af hverju ekki kynlíf með Zero forleik?" var tekið niður í versluninni Samkaupum á Ísafirði í gær, eftir að kvartað hafði verið undan að það særði blygðunarkennd viðskiptavina. Talsmaður Coke sagði að ætlunin hefði verið að fá fólk til að brosa út í annað.
Þetta er bara ekkert fyndið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.3.2007 | 14:55
Klaufamamman
Snjór yfir öllu og heldur jólalegt um að litast í miðjum mars. Það er hins vegar öllu verra að Kata er í Boston og þar spá þeir miklum hvelli síðdegis, svo hún óttast að verða veðurteppt í snjókomunni. Þá kemst hún ekki heim í fyrramálið.
Ég er strax farin að kvíða því að þurfa að setja mig í stellingar og hjálpa tuttugu litlum 5 og 6 ára ballerínum að máta búningana sína fyrir sýninguna sem verður eftir tíu daga. Það átti að vera hlutverk Kötu í fyrramálið.
Það er ekki að ástæðulausu sem Elisabet kallar mig alltaf "klaufamömmuna" sína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2007 | 16:00
Bílaþvottur er sársaukalaus
Ég fór í laser-aðgerð á vinstra auga rétt upp úr hádegi. Alveg ótrúlega lítið mál. Einn góður maður sagði að svona aðgerð væri minna mál en að fara til tannlæknis og í raun bara eins og að skreppa með bílinn á þvottastöð.
Þetta er satt best að segja alveg hárrétt. Maður hefur ekki einu sinni tilfinningu fyrir að það sé verið að krukka í augað, þetta er frekar eins og að horfa í skoðunartæki hjá augnlækni. Alveg ótrúlegt. Og ég sest við tölvuna þremur tímum eftir aðgerð. O.k. það er nú ekkert sérstaklega mælt með því, svo þessi færsla verður ekki lengri.
Mæli með bílaþvotti og Lasersjón í Ármúla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.3.2007 | 13:09
Gamla og unga augað
Ég eldist mishratt. Þá á ég ekki við að ég eldist hraðar í vetrarhörkum, en haldi í horfinu á sumrin. Eða skorpni upp á sumrin og geymist betur í vetrarhörkum. Nei, ég á við að ég eldist ekki öll jafnhratt. Augun eru til dæmis hvort á sínum áratugnum.
Ég hef lengi verið afskaplega sjóndöpur á vinstra auga. Svo óhemju nærsýn, að engu tali tekur. Hægra augað hefur hins vegar verið aldeilis frábært og bjargað mér margoft. Þetta fyrirkomulag háði mér ekkert sérstaklega og í hagsýni minni fagnaði ég mjög að þurfa bara að nota linsu í annað augað.
Svona gekk þetta árum saman. Síðasta haust fluttum við hins vegar í nýtt hús og eitt af því sem fylgir slíkum flutningum eru uppsetningar á ljósum og stundum þarf að skipta um rafmagnsklær. Verkefni af þessum toga hafa ávallt verið í mínum afskaplega hæfu höndum og ég tók auðvitað til óspilltra málanna við flutningana. En nú brá svo við, að skrúfur á klóm voru eitthvað erfiðar. Smáar og skrítnar. Ég færði þær upp að andlitinu, en sá þá jafnvel enn verr. Þá reyndi ég að halda þeim fjær, en ekkert gekk. Ég sá bara ekki þetta smotterí almennilega, sama hvað ég reyndi.
Einhvern veginn komust nú öll ljós upp og virka flest. Ég velti þessu ekkert sérstaklega fyrir mér fyrr en ég ætlaði að taka duglega törn á jólabókunum. Þá fékk ég staðfest, að það var eitthvað bogið við augun. Og ég sem var búin að ímynda mér mánuðum saman að ég væri bara of syfjuð á morgnana til að lesa blöðin!
Jæja, ég fór til augnlæknis og þá kom hið sanna í ljós. Vinstra augað var enn jafn heiftarlega nærsýnt og fyrr, en hægra augað hafði allt í einu áttað sig á því að kerlingin var farin að gamlast og ákveðið að verða fjarsýnt. Engin furða að mér gengi bölvanlega að fókusa við þær aðstæður.
Nú verð ég að fara í laseraðgerð á nærsýna auganu á morgun. Bara til að þóknast þessu gamla, hægra auga, sem ákvað að minna mig svona óþyrmilega á að aldurinn færist yfir.
Ætli ég endi ekki með tvískipt lesgleraugu áður en ég veit af?
Svei þvi!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2007 | 20:57
Traust 29% þjóðarinnar (Viðhorf í Mbl. 10. mars)
Nú má vel vera að þeir sem urðu fyrir svörum þegar Gallup tók púlsinn hafi verið með hugann við málþóf eða meint framsal löggjafarvaldsins. Sjálf hefði ég haft fleiri, en kannski smærri, atriði í huga, sem samanlagt hefðu líklega neytt mig til að segja að ég hefði ekki mikið traust á löggjafarsamkomunni við Austurvöll.
Eitt af þessum smáatriðum skaut upp kollinum í síðustu viku. Þá var verið að ræða um fjárframlög til SÁÁ. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fór í pontu og sagði að ekki hefði verið gerður samningur milli ríkis og SÁÁ frá 2005 og það væri hann ósáttur við. Hann væri ósáttur við að greitt yrði fé úr ríkissjóði án þess að samningur lægi fyrir.
Svo hélt þingmaðurinn áfram og benti á að sami maðurinn væri "yfirlæknir, hann er formaður framkvæmdastjórnar, þ.e. stjórnarformaður hjá fyrirtækinu, þannig að hann uppfyllir öll þau skilyrði sem voru hjá Byrginu".
Pétur komst ekki öllu lengra, því aðrir þingmenn voru ekki seinir á sér að grípa stórkostlega yfirsjón hans á lofti, kalla fram í og krefjast þess að hann drægi ummæli sín strax til baka.
Ég minnist þess ekki að hafa nokkurn tímann tekið upp hanskann fyrir Pétur H. Blöndal, enda fara skoðanir okkar afskaplega sjaldan saman, ef nokkurn tímann. Þessi ummæli hans voru hins vegar rifin úr öllu samhengi og blásin út á svo yfirgengilegan hátt af andstæðingum hans, að ég get ekki orða bundist. Pétur hafði að þeirra mati borið yfirlækninn þungum sökum. Að nefna Byrgið var auðvitað eins og að nefna snöru í hengds manns húsi. "Það er ekki í lagi við þær aðstæður sem núna eru uppi að koma með samlíkingu sem tengist atburðum af því tagi sem orðið hafa í Byrginu," sagði Steingrímur J. Sigfússon í ræðustól Alþingis.
Össur Skarphéðinsson bætti um betur: "Það samræmist ekki þingsköpum að menn geti komið hér í ræðustól og atað auri fjarstadda menn sem ekkert hafa til saka unnið nema að reyna að lækna þrautir meðborgara sinna."
Líklega hafa tárin blikað á hvörmum í þingsal þegar hér var komið sögu. Og áfram hélt Össur og sagði þetta ekki vera í fyrsta skipti sem Pétur hefði með ósæmilegum hætti ráðist að hópum fólks sem á um sárt að binda í samfélaginu, með ósæmilegum munnsöfnuði.
Ja hérna hér! Þarna var Pétur farinn að ráðast að heilu hópunum, sem eiga um sárt að binda! Ætli þeir Steingrímur og Össur hafi í fúlustu alvöru verið að taka til varna fyrir yfirlækni SÁÁ? Og kannski talið sig vera að gæta virðingar Alþingis í leiðinni? Það má auðvitað vel vera að þeir líti svo á, en þessi uppákoma var enn eitt smáatriðið sem rýrði traust mitt á þinginu og þeim sem þar starfa. Ummæli Péturs voru slitin úr öllu samhengi af því að andstæðingar hans voru eldfljótir að átta sig á að þarna gætu þeir snúið út úr og slegið sig til riddara í leiðinni.
Ég get upplýst þessa menn um, að ég er ekki sú eina sem skildi Pétur H. Blöndal á þann hátt að hann væri einfaldlega að benda á atriði sem hann teldi galla í stjórnskipulagi SÁÁ. Honum finnst óeðlilegt að ólíkir hlutar starfseminnar séu á sömu hendi. Það sjónarmið er fyllilega réttmætt.
Reyndar er öll umræða um hugsanlega hagsmunaárekstra með þeim ólíkindum hér á landi, að aldrei nokkurn tímann má benda á dæmi án þess að þeim sé svarað með heiftarlegum gagnárásum. Þegar spurt var hvort óeðlilegt væri að ráðherra vélaði um fiskveiðikerfi, ef hann ætti sjálfur hagsmuna að gæta í útgerðarfyrirtæki, heyrðust upphrópanir um að fólk væri að ráðast að móður hans, af því að hún var skráð fyrir eignarhluta fjölskyldunnar! Og ef fólki fannst óeðlilegt að sami maður tæki að sér hagsmunagæslu fyrir Faxaflóahafnir, m.a. gagnvart framkvæmda- og skipulagssviðum Reykjavíkurborgar, um leið og hann sæti sem formaður framkvæmdaráðs borgarinnar og varaformaður skipulagsráðs, þá var vegið að honum og fjölskyldu hans! Umræðan situr föst, eins og kökkurinn í hálsi þeirra sem verða að sæta þessum "árásum". Aldrei minnist ég þess að einhver hafi stigið fram og þakkað kærlega fyrir að vakin hafi verið athygli á að hann gæti hugsanlega komist í þá stöðu að hægt væri að efast um heilindi hans. Því hver vill vera í þeim sporum?
Í ljósi þessa þarf kannski engan að undra þótt þingmenn grípi ummæli Péturs H. Blöndal á lofti og reyni að gera þau tortryggileg. Þeir vita sem er, að í þeirra hópi geta eðlilegar ábendingar um hvernig komast megi hjá hagsmunaárekstrum, talist heiftarlegar, persónulegar árásir. Slíkt happ lætur enginn sér úr hendi sleppa.
En á meðan situr þjóðin við símann og svarar neitandi þegar Gallup spyr hvort hún treysti þinginu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.3.2007 | 21:58
Ég lifi!
Ég hef snúið aftur til lands hinna lifandi!
Þeir sem halda að þetta sé full dramatískt hjá mér hafa örugglega ekki fengið þessa flensu. Hún var ægileg, skelfileg og stórkostlega lífshættuleg.
Einhver í vinnunni benti mér á að flensan legðist alltaf verst á "fullorðið" fólk.
Mogginn er góður við gamla fólkið, þótt einstaka starfsmenn þar séu skepnur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.3.2007 | 09:43
#%/!"%$/(&%=)%$#"!!!!
Þetta bölv og ragn í fyrirsögninni lýsir hvernig mér leið þegar ég hrökk upp kl. hálf þrjú í nótt, skjálfandi eins og lauf í vindi og með skelfilega beinverki. Er nú ekki komið nóg af þessari flensu? Ég var búin að afplána þessi ósköp frá því á aðfararnótt þriðjudags. Ég hélt að hún ætti að sleppa takinu smám saman. Núna stefnir í að hún éti ekki bara upp alla vinnuvikuna, heldur hafi líka af okkur árshátíð Moggans á laugardaginn. Jafnvel þótt ég hressist þá verður Kata tæpast til stórræðanna.
Systurnar eru löngu orðnar ágætlega brattar, en okkur liggur ekkert á að senda þær í leikskólann, getum alveg eins verið hér allar í einni slappleikahrúgu.
Urrrr...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.2.2007 | 15:32
Flensa í Fossvogi
Flensan hefur stungið sér niður á heimilinu. Þær systur voru að vísu óvenju samtaka núna, ruku báðar upp með hita í gær og eru búnar að vera óttalega aumar, hóstandi og dormandi. Mér skilst að þessi fjári sleppi ekki takinu fyrr en eftir 5 eða 6 daga. Úff!
Svo byrjuðum við mömmurnar báðar að hósta pínulítið í dag, en reynum að hemja hóstann, eins og það breyti nú einhverju. Líklegast að við leggjumst báðar innan skamms, en auðvitað á maður alltaf að vera bjartsýnn. Það er aldrei að vita nema maður sleppi! Og lífið alveg hreint stórfínt í þessu blíðviðri, sem er svo miklu, miklu betra innandyra.
Pollýönnuleik lokið.
Over and out.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar