23.2.2007 | 09:27
Af músum og mönnum (Viðhorf í Mbl. 23. febrúar)
Þessar upphrópanir og fleiri í svipuðum dúr heyrast oft og víða þessa dagana. Bloggið er tækifærið til að láta til sín taka, viðra skoðanir sínar, berjast fyrir hagsmunamálum, knýja á um þjóðfélagsbreytingar.
En bloggið er oft óttalegt bull. Þegar einhver vitleysan fer af stað á blogginu og hinum ýmsu spjallsíðum Netsins, virðist nær ómögulegt að vinda ofan af henni. Einn varpar fram undarlegri staðhæfingu á spjallsíðu, annar tekur undir, sá þriðji setur krækju inn á umræðurnar á bloggsíðunni sinni og sagan endurtekur sig hundrað sinnum á næsta hálftímanum. Áður en nokkur maður veit af er undarlega staðhæfingin orðin að sannleika. "Ég sá þetta inná mörgum bloggsíðum í gær," segir fólk og þarf þá víst ekki frekari vitnanna við.
Það er víst best að taka fram að mér finnst bloggið afskaplega skemmtilegt fyrirbæri. Mér finnst sjálfri gaman að blogga og kíki reglulega á blogg vina, kunningja og ættingja. Mér finnst notalegt að vita að ættingjar og vinir í öðrum löndum lesi bloggið mitt og fylgist þannig með lífi fjölskyldunnar úr fjarlægð og mér finnst gaman að vera stundum yfirlýsingaglaðari á blogginu en ég myndi vera í Morgunblaðinu. Bloggið er mitt og þar get ég sagt allt sem ég vil. Eða hvað? Hvað eftir annað rekst maður á dæmi þess að bloggið er langt frá því að vera án ábyrgðar. Stundum eru þessi dæmi fyndin, svolítið kjánaleg, en stundum eru þau grafalvarleg.
Eitt af þessum kjánalegu málum kom upp nú í vikunni þegar um fátt annað var rætt á spjallþráðum og bloggsíðum en ætlaðan músagang í einni Bónusverslananna. Ég fékk myndbandið, sem átti að sýna mýsnar, sent oftar en einu sinni og hægur vandi var að nálgast það á Netinu. Allir virtust hafa skoðað myndbandið og margir töldu augljóst að þarna hefðu verið mýs á ferð.
Fréttastofa Stöðvar 2 upplýsti svo á þriðjudag að þetta hefðu alls ekki verið mýs, heldur kartöflur. Ósköp venjulegar kartöflur, sem rúlluðu eftir gólfinu í grænmetishorninu.
Þar með virtist þessari skemmtilegu sögu vera lokið. En svo einfalt var málið auðvitað ekki, því enn stóðu fullyrðingar um "mýs í grænmetinu í Bónus" inni á mörgum bloggsíðum og spjallþráðum. Og margir virtust alls ekki hafa fylgst með fréttum á þriðjudag og voru enn að býsnast yfir músaganginum á miðvikudaginn. Það var erfitt að vinda endanlega ofan af vitleysunni.
Ekki er langt síðan spjallsíður réðu lögum og lofum á Netinu, þótt nú virðist bloggið hafa tekið völdin. Á spjallsíðunum voru hinir ýmsu þræðir, til dæmis um stjórnmál, fjölmiðla, íþróttir og fleira og umræður voru oft fjörlegar. Einu sinni hætti mönnum til að taka mark á þeirri umræðu sem þar fór fram og héldu að þar færi þversnið af þjóðfélaginu. Samt var erfitt að átta sig á því hverjir skrifuðu, því flestir kusu að fela sitt rétta nafn.
Á tímabili fylgdist ég reglulega með umræðum á einni vinsælustu spjallsíðu þess tíma. Stundum voru umræður þar skemmtilegar og inn á milli rugludallanna var greinilega ágætis fólk, sem hafði gaman af vangaveltum um hitt og þetta. En margir, afskaplega margir, voru meira en lítið sérsinna, svo ekki sé meira sagt. Smám saman koðnaði þessi vettvangur niður þegar ágætis fólkið forðaði sér og hinir sátu eftir. Nú virðast hins vegar allir, bæði þeir ágætu og hinir, vera komnir með blogg.
Sagan af kartöflumúsunum í Bónus er ekkert stórmál, að minnsta kosti ekki í mínum augum, þótt ég geti vel ímyndað mér að Bónusfólk hafi ekki stokkið hæð sína af hamingju vegna umræðunnar. En vitleysan gæti hæglega orðið svo miklu, miklu alvarlegri. Það er hægur vandi að valda fólki, jafnt sem fyrirtækjum, verulegum skaða með ábyrgðarlausu bulli. Bulli, sem dreifist svo á ljóshraða um allt Netið, þar til það er orðið að sannleika.
Einu sinni lét ég fara óskaplega í taugarnar á mér þegar vinkona mín ein var sífellt að vísa í hinar og þessar "fréttir" heiðguls vikublaðs sem staðreynda. Hún gerði það reyndar vegna þess að hún mundi hreinlega ekki hvar hún hafði lesið viðkomandi frétt, en í hennar huga var allt sannleikur sem fjölmiðlar létu frá sér. Þetta vikublað lagði oft eina síðu undir upplognar bull- og skemmtifréttir og þessi vinkona mín gerði engan greinarmun á þeim og öðru efni blaðsins.
Mér virðist sem sagan sé að endurtaka sig með bloggið. "Æ, ég las þetta einhvers staðar," segir fólk og man ekkert hvort það var á fréttavef fjölmiðlanna, á bloggsíðu einstaklings sem ekkert þekkir til málsins eða á spjallsíðu rugludallanna.
Vitleysan lifir um ókomna tíð á Netinu. Þegar Google-leitarvélin er notuð til að kanna hvort sést hafi mýs í Bónus finnast margar "staðfestingar" þess. Og líka fjölmargar staðfestingar á að þarna hafi kartöflur skoppað yfir gólfið. Ætli fólk muni svo sannleikann í málinu þegar fram í sækir?
Bloggið er í miklu uppáhaldi hjá mér og ekki vil ég missa fréttasíður, sem eru uppfærðar oft á dag og sýna ávallt nýjustu fréttir. En okkur liggur ekki alltaf lífið á. Stundum er bráðnauðsynlegt að staldra við og velta fyrir sér hvort ástæða sé til að gína við öllu sem sést á Netinu. Með því að leyfa fólki að njóta vafans þar til óyggjandi sannanir liggja fyrir, getum við komið í veg fyrir að bloggið og spjallsíðurnar verði fyrir óbætanlegum skaða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.2.2007 | 14:55
Miklir menn erum vér
Sumir menn lifa í einhverri undarlegri fantasíuveröld, þar sem aðal markmiðið er að upphefja sjálfa sig. Ef inneignin er lítil verður auðvitað að skreyta, eða hreinlega ljúga blákalt.
Það gerði hann alla vega snillingurinn í heita pottinum í Breiðholtslauginni í morgun, sem talaði hátt og mikið um að Margrét Sverrisdóttir hefði beðið þá innanbúðarmenn í Frjálslynda flokknum um að taka við sér á ný.
Sjá menn þetta nú ekki alveg í anda? ,,Gerið það strákar, mig langar svo að vera með ykkur. Ég hef svo svakalegt álit á ykkur sem stjórnmálamönnum og mér finnst líka svo gott að starfa með mönnum sem ég hef sannreynt að eru heiðarlegir. Please, please, ég á mér nefnilega enga framtíð í stjórnmálum nema styðjast við ykkar styrka arm!"
Yeah, right!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.2.2007 | 11:28
Haugar
Fyrrum fréttaritari Vísis og DV hælir sér af því að hann hafi stundum búið til heilu fréttirnar. Og farið létt með að vitna orðrétt í Steingrím Hermannsson, þótt hann hafi aldrei við hann talað.
Kannski finnst manninum þetta fyndið. Hann er líklega einn um það.
En þetta er ekki eina dæmið sem ég veit um svona vinnubrögð. Fyrir mörgum árum, þegar faðir minn var bankastjóri í Landsbankanum, hafði blaðamaður á ómerkilegu blaði spurnir af einhverjum kjaftasögum sem gengu innan bankans. Hann skrifaði þriggja dálka frétt um málið og hún birtist í blaðinu hans. Í fréttinni tjáði Sverrir bankastjóri sig um málið. Allt innan gæsalappa og leit virðulega út. Þessi frétt kom föður mínum hins vegar spánskt fyrir sjónir, enda hafði hann aldrei talað við blaðamanninn. Hann hafði samband við hann og spurði hverju þetta sætti. Blaðamaðurinn átti auðvitað engin svör, en reyndi að bera í bætifláka fyrir sig með því að væla eitthvað á þessa leið: Já, en Sverrir, ég náði ekki í þig!!
Það er vont að vera blaðamaður þegar svona haugar skreyta sig með starfsheitinu. Þessi er reyndar hættur fyrir nokkru.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.2.2007 | 14:14
Blaðamannadjamm
Félagi minn á Morgunblaðinu, Davíð Logi, tók grand slam í gær, hirti verðlaun klukkan þrjú fyrir myndir frá Guantanamo og fékk svo blaðamannaverðlaunin tveimur tímum síðar fyrir skrif um alþjóðamál, ekki síst þessar skelfilegu fangabúðir. Gott hjá honum
Um kvöldið fóru blaðamenn landsins á djammið. Við Kata fórum með nokkrum Moggakellingum á Oliver og fengum okkur að borða. Svo hélt hópurinn á Rex, þar sem Blaðamannafélagið varð gjaldþrota. Mér finnst alla vega líklegt að sú hafi orðið niðurstaðan, því það var frítt á barinn fram eftir öllu og allir vita að blaðamenn nýta slík tækifæri í botn.
Þetta var þrælgaman, ég hitti auðvitað margt samstarfsfólk en líka kollega af öllum hinum miðlunum. Það er gott að efla andann með þessum hætti, allir bara á ljúfu og faglegu nótunum. Eða kannski ekki alveg allir, en ég nennti nú ekki að eyða skemmtilegu kvöldi í að rífast við fólk sem var andstutt af bræði yfir hæstaréttar-dómara-forsíðu Moggans á dögunum.
Alltaf gaman að hitta gott fólk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2007 | 14:06
Draumabíllinn
Blaðið spyr fimm einstaklinga hver draumabíllinn þeirra er.
Karlarnir fjórir nefna Range Rover, Benz, Lamborghini og Koenigsegg.
Konuna hefur alltaf dreymt um að eignast Golf.
Konur eru jarðbundnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.2.2007 | 10:43
Rigning á heiðinni
Úff, ef ekki styttir upp fyrir hádegi er ég ekkert sérstaklega spennt fyrir Rauðavatnsgöngu :( Er ekki beinlínis hættulegt að leggja í göngu upp á háheiði þegar allra veðra er von?
Annars er ágætt að hrista af sér slenið og hressa sig við fyrir átök morgundagsins. Þá ætlar Blaðamannafélagið að halda teiti og Moggafólk mun að sjálfsögðu fjölmenna þangað. Ég vona að kollegar mínir hreppi blaðamannaverðlaunin, þau Davíð Logi og Sigríður Víðis eru vel að þeim komin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2007 | 14:03
Listavatn
Hérna er frétt úr Mogganum frá 2000, sem skýrir alla þessa list við Rauðavatn:
"Land List er sýning á verkum allt að tuttugu myndlistarmanna sem verður opnuð við Rauðavatn þann 16. júlí.
Framlag Vinnuskólans felst m.a. í að 16 ára unglingar í sumarvinnu aðstoða höfundana við að útfæra verkin. Myndlistarmenn sendu inn hugmyndir að verkum sem sýningarnefnd valdi úr. Við val á tillögum til útfærslu var ekki eingöngu haft í huga listrænt gildi verkanna, heldur einnig að þau tækju mið af staðháttum og hentuðu til útfærslu fyrir nemendur skólans. Nú þegar er lokið við gerð tveggja verka, en hægt er að fylgjast með listamönnunum vinna með aðstoð unglinganna að útfærslu annarra frá 13. júní og fram að opnunardegi.
Rauðavatn er ofan við Seláshverfið í Reykjavík og þar hefur verið að unnið að skipulagningu útivistasvæðis. Hægt er að ganga umhverfis vatnið og einnig um svæðið norðan og austan við vatnið þar sem nemendur Vinnuskólans hafa á undanförnum árum plantað trjám og lagt göngustíga í hlíðarnar umhverfis Rauðavatn. Það er því auðvelt að nálgast verkin sem eru staðsett á víð og dreif umhverfis það og á vatnsbakkanum. Rauðavatn er í göngufæri frá strætisvagnaleið nr. 7 ef farið er út við Hraunsás."
Núna er Rauðavatn nánast komið inn í miðja borg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2007 | 13:59
Listavinna
Listaverkin við Rauðavatn virðast vera 12 talsins!
Þessi uppgötvun sýnir hvað ég er farin að ganga hringinn hægt. Fyrstu skiptin arkaði ég svo einbeitt að ég sá aðeins hið mikla listaverk "Baugur". Sá grashringur er hins vegar aðeins eitt listaverk af tólf, eins og fyrr sagði. Allt eru þetta dásamlegt útilistaverk, unnin undir stjórn íslenskra og erlendra listamanna, sem nutu aðstoðar unglinga í vinnuskólanum.
Guð má vita hvað það fóru margar vinnustundir hjá unglingunum í að moka upp "Baugi", hvað þá að ryðja upp ónafngreindu grjóthrúgunni eða reisa sprekin sem heita "Endurminning". Miðað við afköstin þegar ég var í unglingavinnunni get ég ekki ímyndað mér að eitt sumar hafi dugað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2007 | 10:13
Oðnæmi, ekki ofnæmi
Margrét dóttir mín fór enn á ný að tala um dýraofnæmið mitt í gær. Nema hvað núna var hún aðeins búin að breyta til og kallaði þetta OÐ-næmi. Ég leiðrétti hana og hún kom alveg af fjöllum. "En ég ætla bara að kalla þetta OÐ-næmi," sagði hún. Mér fannst það ekki góð hugmynd og beitti þeim rökum að það væri beinlínis rangt að tala um OÐ-næmi. Hún skildi ekki rökin. Hélt ég væri bara að reyna að vera fyndin og hló mikið.
Hvernig fer með uppeldið þegar börnin taka ekki einu sinni mark á svona athugasemdum?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.2.2007 | 15:48
Auðkennislykillinn
Einu sinni var netaðgangur að bankanum mínum hið besta mál. Ég gat farið inn á bankann í vinnunni eða heima, kannað stöðuna, millfært og borgað reikninga. Mig minnir að bankarnir hafi endalaust básúnað frelsið sem fólst í netaðgangi. Alla vega var ég ákaflega sátt við þetta.
Núna hafa bankarnir ákveðið að auka öryggið, að eigin sögn. Mér sýnist að vísu að þeir séu fyrst og fremst að frýja sig ábyrgð á þjófnuðum úr netbönkum með þessum andsk.... auðkennislykli.
Ég og frúin höfum verið með sameiginlegan aðgang inn á netbankann og þar undir lúra allir okkar reikningar og kröfur. Hún fékk auðkennislykil sendan, kannski af því að hún er á undan mér í stafrófinu. Þessi eini lykill á að veita okkur báðum aðgang að netbankanum. En hann veitir mér nú engan aðgang ef hann liggur heima, eða ef hún ákveður að taka hann með sér í vinnu.
Núna kemst ég ekki lengur inn á bankann í vinnunni. Nema ef ég tek auðkennislykilinn með mér, en þá er frúin aðgangslaus.
Þjónusta? Það var þá!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar