Færsluflokkur: Bloggar
19.12.2007 | 09:25
Skyrgámur
Skyrgámur varð að sætta sig við létta AB-mjólk í nótt. Aumingja karlinn að þurfa að berjast til byggða á því herrans ári 2007, þegar súrt og þykkt skyr er algjörlega horfið. Ég fann til með honum þegar ég hellti þessu lapþunna hollustufæði í diskinn hans. Hann slapp þó við fj...... múslí út í þetta! Slíkt er ekki á nokkurn jólasvein leggjandi.
Margrét hin nákvæma stýrði framsetningu veitinga. Hún vildi endurtaka aska-leikinn, þ.e. hafa "skyrið" í djúpum diski með grunnan disk á hvolfi yfir, til að líkja eftir aski. Ég benti henni á að Skyrgámur hefði ekkert við lokið að gera, af því að hann fengi enga fasta fæðu með AB-mjólkinni. Og þar sem karlinn væri frægur fyrir að brjóta alltaf lokin ofan af skyrílátunum þætti mér öruggara að hafa þetta loklaust. Hún féllst auðvitað á það.
Í dag er síðasti eiginlegi skóladagurinn. Þær máttu koma með gos og smákökur í nesti í tilefni dagsins og voru báðar með jólasveinahúfur. Á morgun er jólaskemmtun og frá og með kl. 11 eru þær systur komnar í tveggja vikna jólafrí Við byrjum fríið á að bruna vestur á Þjóðminjasafn til Bryndísar systur minnar, sem tekur áreiðanlega vel á móti tveimur fróðleiksfúsum ormum og mæðrum þeirra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2007 | 16:32
Augað
Hurðaskellir færði þeim systrum einhverjar bílagræjur, plasthólk sem litlum bíl er smeygt inn í og svo er hægt að skjóta bílnum út á fullri ferð.
Þær voru afskaplega ánægðar og fóru í kapp með bílana sína. Allt í einu spratt Margrét upp og sagðist ekki vilja leika meira. Þær voru að fara í skólann, svo ég velti því ekkert sérstaklega fyrir mér.
Á leiðinni í skólann trúði Margrét mér fyrir því að hún gæti ekki leikið með þetta dót, af því að það væri auga á því. Eða mynd af auga. Ég átti nú bágt með að skilja hvað væri svona agalegt við það, en þá útskýrði hún: "Ég fæ illt í magann ef ég leik með þetta. Það er mynd af auga sem er dottið út úr hausnum!"
Alltaf jafn klígjugjörn, blessunin.
Þegar hún kom heim úr skólanum sá hún dótið og ætlaði að fara að leika með það, en þá blasti við myndin af auganu hræðilega. Ég bað hana að koma með þetta, ég skyldi reyna að skrapa myndina af. Það gekk ágætlega, en sem ég stóð þarna með hníf og skrapaði myndina af leit ég á Margréti og sagði: "Þú ert alveg einstök, Margrét mín."
"TAKK" sagði hún einlæg og brosti tannlausa brosinu sínu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.12.2007 | 09:33
Hurðaskellir
Uss, þetta er mesti leiðindajólasveinn, svei mér þá. Hann er mesti sóðinn, alla vega hafði hann skilið smákökumylsnu eftir um allar trissur og hellt niður mjólk! Systur reyndu að bera í bætifláka fyrir hann þegar ég kvartaði og kveinaði yfir þessum sóðaskap. Hver nennir að standa í þrifum eftir jólasveina klukkan 7 á morgnana?
Svo voru bölvuð læti í honum í nótt. Við Kata vorum loksins sofnaðar, eftir hlaup með tuskur og skálar til að setja undir leka um allt hús, þegar Hurðaskellir byrjaði að ólmast úti í garði. Þar liggur gömul hurð ofan á lokinu á heita pottinum, til að fergja það í þessum endalausu rokhviðum sem ríða hér yfir. Haldiði að þessi jólasveinaódámur hafi ekki farið að hamast í þessari hurð?? Svei mér þá!
Systrum fannst bara fyndið að mæðurnar hefðu vaknað við "hurðaskelli" úti í garði. Þeim var greinilega báðum mjög létt að Hurðaskellir hefði ekki verið að þvælast mikið um innandyra. Og svo rifjaðist upp fyrir Elísabetu að hún hefði líka heyrt þennan hamagang í garðinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.12.2007 | 00:57
Hin fúla, fjórða
Þessi fúla, fjórða lægð má alveg verða sú síðasta í bili! Mér var alveg nóg boðið fyrir nokkru þegar fór að leka úr loftinu í herbergi stelpnanna (og þær "trúðu sko ekki eigin augum" í dramatíkinni). Þá lak líka dálítið með stofugluggum. Núna hriplekur með stofugluggum, það beinlínis rignir úr loftinu hjá systrum niður í þrjár skálar þar undir (ég varð að hella úr þeirri stóru áðan) og sem ég sat við tölvuna fyrir 5 mínútum heyrði ég dropahljóð á bakvið mig. Jú, mikið rétt, glugginn á skrifstofunni míglekur líka! Þetta er auðvitað ekkert slétt normal, enda er þetta veðurfar ekkert eðlilegt. Skrambinn og fjárinn, eða hoppandi hafmeyjar og sótsvartir sæhestar, eins og Kolbeinn kafteinn myndi segja
Nú fer ég lokaumferð um húsið áður en ég fer að sofa. Í fyrramálið má ekki rigna. Ég ætla að vakna í jólaskapinu sem ég var í um miðjan dag, takk fyrir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.12.2007 | 00:18
Rei, Rei, ekki um jólin...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.12.2007 | 17:10
Askasleikir
Margrét var töluvert svekkt yfir því í gærkvöldi, rétt eins og á sama tíma í fyrra, að við búum ekki svo vel að eiga ask. En hún útskýrði málið fyrir mér, hægt og rólega, svo ég myndi nú ekki ruglast: "Askur var svona eins og skál með loki og svo var maturinn í skálinni og fólkið gat notað lokið eins og disk."
Hún vissi alveg hvernig ætti að bjargast án asksins. Við settum smákökur og eina mandarínur í botn á djúpum diski. Henni fannst óþarfi að setja einhvern spónamat, í gamla daga hefði fólk borðað slátur og alls konar svoleiðis mat úr askinum sínum. Svo lögðum við grunnan disk yfir þann djúpa. Askur anno 2007.
Í nótt kemur Hurðaskellir. Ég held að hann þurfi enga sérmeðferð, bara kökur á disk og mjólk með.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.12.2007 | 00:37
Þvörusleikir og Pottaskefill
Á föstudagskvöld brutu systurnar dálítið af súkkulaðistykkjunum sem Afi ís færði þeim fyrr um daginn, bræddu súkkulaðið og húðuðu þvöru, svo Þvörusleikir fengi eitthvað að kjamsa á. Hann virtist alsæll, a.m.k. voru tannaför á þvörunni á laugardagsmorgni, svo einhver hefur atgangurinn verið.
Ég steinlá í allan dag í fúlli flensu og missti af jólafótboltamótinu í Egilshöll, sem systur kepptu á. Kata sagði að þær hefðu staðið sig eins og hetjur. Þær peppuðu hvor aðra upp áður en þær fóru, ég heyrði Margréti segja við systur sína: "Ef þú spilar jafn vel á mótinu og á síðustu æfingu, þá fáum við kannski bikar!" Gott að hafa svona stuðning. Og Elísabet leynir því heldur ekki að henni finnst Margrét standa sig "ógeðslega" vel. Enginn bikar veittur á þessu móti, en þeim var slétt sama. Þær spiluðu tvo leiki, töpuðu fyrri, en unnu hinn.
Síðdeginu eyddu þær systur í uppáhaldið sitt, kaffihúsa- og bókabúðarölt með mömmu sinni, á meðan ég svaf enn heima. Um kvöldmatarleytið var ég orðin nógu brött til að taka á móti þeim úr bæjarferðinni með heimatilbúnum pizzum. Þær voru ósköp þreyttar eftir langan dag og skriðu upp í stóra rúm áður en þær náðu að undirbúa pottinn fyrir Pottaskefil. Ég tók það að mér, samviskusamlega. Það var ekki laust við glott á Kötu þegar hún sá mig bauka eina við þetta, löngu eftir að systur voru sofnaðar
Á morgun er aðventuboð hjá Ásthildi systur og ég SKAL komast þangað. Þetta er nú engin alvarleg flensa held ég, smá kvef og hrikalegur slappleiki. Svefn, svefn og aftur svefn það eina sem dugar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.12.2007 | 21:46
Glaðar
Ég fór að ráðum Jóns Steinars og "compressaði" nokkrar myndir frá Báru hirðljósmyndara. Þær systur eru svó ótrúlega uppátækjasamar hjá henni, svo gjörsamlega eins og fiskar í vatni fyrir framan linsuna hennar. Þetta eru bara örfá sýnishorn af öllum stellingunum sem þær fundu sjálfar upp á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.12.2007 | 12:21
Stelpur í stuði
Systur voru í myndatöku hjá Báru guðmóður fyrir viku. Þær eru aldrei í minnstu vandræðum með uppstillingarnar, fara alveg á kostum og Bára á í mestu vandræðum að halda þeim innan ramma.
Hérna eru eitt dæmi af nýjustu myndunum. Ég ætlaði að setja fleiri inn en þær eru svo stórar og þungar að ég missti þolinmæðina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
14.12.2007 | 10:17
Fjúk
Við vorum því miður of snemma á ferðinni á þessu heimili í morgun. Systur komu skoppandi yfir þegar klukkan hringdi hálf sjö og fjölskyldan var löngu klædd og komin á ról, búin með morgunmatinn, hár- og tannburstun klukkan hálf átta. Kata var farin með stelpurnar í skólann þegar tilkynningin kom um að best væri að halda börnunum heima. Ég hringdi í hana, en það gagnaðist nú lítið því síminn hennar lá á eldhúsborðinu.
Við höfðum reyndar engar sérstakar áhyggjur af veðrinu þegar hún lagði af stað með systur, hérna í Logalandinu er ekkert stórviðri. Að vísu er fjári hvasst niðri í dal við Fossvogsskóla, en ég ætla líka að sækja systur um leið og skólinn er búinn, þær hafa ekkert með það að gera að fara í frístundaheimilið á svona degi.
Ég var komin á fremsta hlunn að sækja þær rétt áðan, enda finnst mér ómögulegt að hlusta á veðrið og vita af þeim í skólanum. Kata benti mér á að þær færu ekki út fyrir hússins dyr og þetta væri örugglega ævintýri fyrir þær, skólastarfið allt í uppnámi og allir í föndri og eintómri hamingju.
Þetta er ábyggilega rétt hjá henni og best að ég reyni að vinna aðeins á meðan þær eru í skólanum. En við vorum samt sammála um að ég myndi fara á fjallabílnum og sækja kríli snemma í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar