Færsluflokkur: Bloggar
22.11.2007 | 09:49
Verðsamanburður. Aftur.
Í leikfangaauglýsingu í Fréttablaðinu í dag hvetja Hagkaup lesendur enn og aftur til að gera verðsamanburð.
Gott og vel.
Hello Kitty litasett kostaði 2.899 kr. í Hagkaupum, en tilboðsverð er 2.199.
Hello Kitty litasett kostaði 1.867 kr. í USA, en er nú hægt að fá á 1.745 kr.
Ponyville hestur og aukahlutir voru á 999 í Hagkaupum, núna á 699 kr.
Ponyville hestur og aukahlutir fást í USA og kosta þar 311 kr.
Mr. Potato Head kostaði 1.299 kr. í Hagkaupum, en tilboðsverð er 999 kr.
Mr. Potato Head fæst í ýmsum útgáfum í USA, en þessi tiltekna kostar 435 kr.
Ef fólk vill eyða tæpum þúsundkalli í Mr Potato, þá selur kaninn svokallaðan júmbópakka sömu gerðar á um 950 krónur. Í honum er herra kartafla, frú kartafla, eitt kartöflubarn og um 25 aukahlutir.
Loks kannaði ég svo verðið á Playmobil Adventskalender, sem Hagkaup selja á 1.599 kr. en seldu áður á heilar 1.999 krónur.
Sama Playmobil dót fann ég í verslun í Þýskalandi. Þar kostar það tæpar 1.300 krónur.
Rétt er að taka fram að tilboðsverð Hagkaupa á Skjaldbökuköppunum, Teenage Mutant Ninja Turtles, virðist ágætt. Hagkaup býður kallana á 995 kr. stykkið, en áður kostuðu þeir 1.499. Sömu karlar kosta á bilinu 811 til 1060 í verslun í USA. Ekki er annað að sjá en að um nákvæmlega sömu karla sé að ræða.
Hagkaup hafa líka lækkað verð á Pet Shop veggmyndum. Um daginn voru myndirnar auglýstar á 1.799 kr, en núna er búið að lækka þær í 1.499 kr.
Myndirnar kosta 780 kr. út úr búð í Bandaríkjunum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
21.11.2007 | 17:13
Ú er mútta og úldin appelsína
Stafablöðin voru myndskreytt rétt í þessu.
Elísabet var snögg að draga upp fyrstu myndina og þurfti enga aðstoð við að skrifa orðið undir: Hús
Næst teiknaði hún konu í lótusstellingu. Vinstra megin á myndinni teygðist einhver flipi inn á hana og ég spurði hvað þetta væri. Hún furðaði sig á að ég þyrfti að spyrja. "Þetta er putti á einhverjum sem er að benda á konuna og segja: Hún!"
Á þriðju myndinni skín sólin glatt. Vinstra megin sést í hálft hús og agnarsmá mannvera er nýkomin út um dyrnar. Út
Svo byrjaði hún á fjórðu myndinni. Ég bað hana blessaða að segja mér nú hvað hún væri að teikna, en hún var handviss um að það væri Ú í orðinu, af því að það heyrðist alveg. Ég benti henni á að það væri ekkert Ú í ungi eða unglingur til dæmis, svo þetta væri ekki algild regla. Hún vildi samt ekki segja mér hvað hún væri að teikna. "Má það ekki vera óvart?" spurði hún.
Ég samþykkti að það mætti vera óvænt og hún staðfesti að það hefði hún einmitt átt við. Svo teiknaði hún andlitsmynd af afskaplega huggulegri konu og skrifaði eitt af uppáhaldsorðunum sínum undir. Gott að það er ekki dagur íslenskrar tungu í dag. Mútter.
Margrét teiknaði tvo náunga. Annar var súr á svipinn, enda sást í talbólu við munn hins að hann sagði: "Farðu burt!" Orðið? Útlægur.
Mynd númer tvö stefndi í að verða afskaplega einföld. Lítil, skökk og skæld appelsína með brúnum blettum. En svo bætti Margrét við stelpu, sem rak út úr sér tunguna af viðbjóði. Appelsínan var nefnilega úldin.
Þriðja myndin var einföld og vafðist ekkert fyrir Margréti fremur en annað. Úr.
Hún lagði mesta vinnu í fjórðu og síðustu mynd. Fyrst teiknaði hún ógurlegan stafla af heyböggum, heil 16 stykki. Svo teiknaði hún stelpu, sem studdist við heygaffal með vinstri hendi, en þurrkaði svitann af enninu með hægri. Loks teiknaði hún bónda, með strá í munninum, sem rétti stelpunni grænan peningaseðil fyrir vel unnin störf. Stelpan var búin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.11.2007 | 19:39
Ú
Ú er stafur vikunnar. Systur komu með verkefnablaðið sitt heim, en þær þurfa líka að sinna lestrinum og af því að þær eru þreyttar eftir fótboltaæfingu verður stafablaðið að bíða.
Margrét er samt með fjölmargar hugmyndir: "Úr og úlfur. Eða útvarp. Svo þarf orðið ekkert að byrja á ú. Það má vera fljúga eða snúra eða húfa."
Svo sagðist hún líka geta teiknað flugelda að springa og skrifað undir: "Búmm-búmm!"
Mér líst allra best að tvennt sem hún stakk upp á: "Útlægur! Ég veit sko alveg hvað það þýðir. Og úldin sveskja!"
Ég get varla beðið eftir að sjá myndskreytingarnar með útlægri og úldinni sveskju.
Bleiku, væmnu dagarnir eru að baki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
19.11.2007 | 11:06
Slagorð
Don't Just Book It, Ragnhildur It
Þetta slagorð gengur víst ekki í kosningabaráttu á Íslandi, eða hvað? Verð ég að þýða það: "Þú getur ekki bara bókað það, þú getur sko Ragnhildur-að það!" Rosa pottþétt.
Nei, nei, þetta slógan var nú alveg vonlaust, svo ég reyndi aftur. Þá kom þetta:
Solutions For a Small Ragnhildur
Hmm, ef ég væri kompaný væri þetta kannski gott, en þetta er óskiljanlegt svona.
Prófum einu sinni enn:
Things Happen After a Ragnhildur
Djísöss, ég verð að finna mér eitthvað annað til dundurs en að leika mér á http://thesurrealist.co.uk/slogan
Eða skipta um nafn.
Ég gæti prófað frúna:
I Liked The Hanna So Much, I Bought The Company
Þetta passar að vísu ekki alveg. Ég gæti kannski íslenskað þetta í: "Mér líkaði svo vel við Hönnuna að ég vildi ólm fá tvö eintök í viðbót af henni?" Jamm, passar.
Kata is What We Do
Svei mér þá, hér ætti ég að láta gott heita.
En hvað með dæturnar:
It's Margrét Time
Jájá, alltaf hreint.
Don't Get Mad, Get Elísabet
Þetta smellpassar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.11.2007 | 08:38
Hjálp!
"Hjálp! Hjálp!Er einhver þarna sem getur hjálpað mér?"
Svona hljómaði ámátlegt kallið úr rúmi Margrétar undir miðnætti í gær. Mamma hennar stökk til og þá kom í ljós að stelpuskottið hafði flækt sænginni um fætur og gat ekki losað sig í einum grænum. Dálítið mikil dramatík af litlu tilefni.l Og bara kallað á "einhvern" í neyðinni.
Leikrænu tilburðirnir skýrast kannski af því að við fórum í leikhús í gær, náðum allra, allra síðustu sýningu á Abbababb í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Stórskemmtileg sýning. Ég var alsæl, því sýningin var nær unglingsárum mínum í tíma en bernskuárum systranna, sem skemmtu sér samt konunglega. Sum atriðin fóru að vísu fyrir ofan garð og neðan hjá mér, af því að mér fannst skemmtilegra að laumast til að skoða svipbrigði Margrétar. Hún verður spennt, glöð, leið og allt endurspeglast stórkostlega í andlitinu á henni.
Elísabet sat ekki hjá okkur, hún skellti sér á dýnu upp við sviðið með Magnúsi Stormi, gamla leikskólafélaganum. Systur voru glaðar að sjá hann aftur.
Eftir leikhús fórum við til afa Torbens og ömmu Möggu í mat. Fyrir matinn fóru þær systur af einhverjum ástæðum að ræða um píramída, hvaða fyrirbæri þetta væru o.s.frv. Áður en ég vissi af var ég komin út í allt of nákvæmar lýsingar á greftrunarsiðum til forna. Ég nefndi m.a. að stundum hefðu þrælar eða þjónar verið grafnir með húsbændum sínum, svo þeir myndu fylgja þeim í annan heim.
Þetta fannst þeim stórmerkilegt. Elísabet þráspurði hins vegar hvort þjónarnir hefðu verið samþykkir þessu. Ég sagði að kannski hefðu þeir verið sáttir við að fara yfir í betri heim, en líkast til hefðu þeir nú ekkert verið spurðir að því. "En þeir voru ekkert að fara í betri heim ef þeir áttu að vera áfram þjónar!" sagði hún hneyksluð.
Alltaf skal henni takast að stinga upp í mann.
Svo bætti hún við, að kóngurinn eða faraóinn væri heldur ekki að fara í betri heim, af því að þegar hann væri dáinn þá myndi hann hitta marga aðra dána kónga og þeir vildu líka ráða eins og hann og af hverju væri þetta þá betri heimur??
Til allrar hamingju buðu afi hennar og amma okkur að setjast að borðum í þeim töluðum orðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.11.2007 | 09:31
Útsvar
Í gærkvöldi hitti ég liðsfélaga mína í Útsvarskeppninni. Ég bind satt best að segja miklar vonir við þetta ágæta fólk, Halldór Smárason er Gettu-betur spekingur sem svarar spurningum áður en þær eru bornar upp og Ólína veit allan andsk.....
Mitt hlutverk verður að brosa og vera sæt. Æ, eða leika og fíflast, en það er nú ekki alveg eins sætt. Minni á Útsvar, við Ísfirðingar munum leggja okkur alla fram í kvöld. Ójá, það er alveg á hreinu.
Systur eru spenntar að fylgjast með þessu í sjónvarpinu. Þær skilja nú ekki alveg hugtakið bein útsending og hafa hugsað sér að horfa á þetta með mér. Það verður snúið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
15.11.2007 | 10:20
Augað
Gærdagurinn leið að kvöldi án þess að Margréti yrði nokkuð ómótt aftur. Við fórum á kaffihús og hún fékk kakó með rjóma, sem var nú endanleg sönnun þess að þetta barn var ekki með neina gubbupest.
Á kaffihúsinu var lítill sjálfsali þar sem hægt var að kaupa súperbolta. Margrét átti 100 kall og keypti einn. Hún varð vonsvikin þegar hún sá boltann, því hann var eins og lítið, blóðhlaupið auga. Svo ógeðslegt fannst henni augað, að hún stakk því í vasann hjá mér þegar við fórum heim.
Í gærkvöldi uppgötvaði Kata að augað ógeðslega lýsir í myrkri! Margréti finnst það mjög kúl, svo líklega mun hún láta sig hafa það að taka á auganu. Hún er ekki norn fyrir ekki neitt.
Við matarborðið í gærkvöldi sagði Kata systrunum að hún hefði hitt Rósu (yfir- bókalesara-og-Rauðudeildar-Idol) í gær. Þær urðu eiginlega báðar dálítið móðgaðar og spurðu samtímis, heldur hvasst: "Er Rósa í vinnunni þinni?" Kata sagðist hafa hitt Rósu á fundi og þær héldu áfram að vera fúlar: "O-o-o-o!" Greinilega óskaplega ósanngjarnt að mamma þeirra fengi að hitta Rósu. En þær tóku enn og aftur af okkur loforð að bráðum færum við í heimsókn á leikskólann, því þótt Rósa sé farin þaðan þá eru þar enn Linda, Guðrún, Gunna og allar hinar. Ég verð að hafa samband og bóka opinbera heimsókn Það er kannski spurning um að bíða í svosem viku í viðbót, þá verða fleiri tennur farnar. Um leið og þær systur misstu tennur um daginn losnaði um næstu tennur við hliðina.
Ég stríddi þeim á að þetta tannleysi þýddi að þær yrðu bara að fá súpu um jólin. Elísabet panikaði, hún ætlaði sko aldeilis að fá hangikjöt. Margréti fannst þetta ekki eins slæm hugmynd, en spurði hvort hún mætti ekki frá grjónagraut frekar en súpu. Grjónagrautur er í slíku uppáhaldi hjá henni að hún tók sérstaklega fram í gær að hún ætlaði sko að fara í skólann í dag, því boðið yrði upp á grjónagraut í hádeginu.
Í morgun fóru þær systur báðar í skólann. Þegar við komum inn fyrir dyrnar leit starfsmaður á Margréti og spurði: "Er hún alveg búin að jafna sig?"
Ójá, hún er sko búin að jafna sig á því sem ekkert var, krúttið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2007 | 13:18
Kósýkast
Í morgun var hringt úr skólanum: Margrét hafði kastað upp. Að þessu sinni úti á leikvelli. Ég varð auðvitað að ná í blessaðan ungann minn, þótt ég væri sem fyrr afskaplega skeptísk á að eitthvað amaði að. Hún hefur örugglega bara séð eitthvað sem vakti með henni klígju.
Hún var komin heim um kl. 11 og hefur síðan verið í fantaformi, engin ógleði, eintóm hamingja.
Þessi skyndilegu "veikindi" hennar þýða að ég næ í systur hennar núna kl. hálf tvö, hún nennir sko ekki að vera mínútunni lengur í skólanum þegar systir er heima í sérmeðferð.
Óvæntur kósýdagur í Logalandinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.11.2007 | 09:36
Skörð
Systur héldu áfram að bera saman skörð þegar þær vöknuðu í morgun.
"Margrét, þú ert með T í munninum!" sagði Elísabet full aðdáunar. Og vissulega er Margrét með T þegar hún brosir, þ.e. tvöfalt skarð í efri gómi og einfalt í neðri.
Svo borðuðu þær morgunmatinn. Elísabet hló eitthvað framan í systur sína sem sagði: "Elísabet, þú ert ennþá sætari með svona skarð." Elísabetu fannst ekki vont að heyra það.
Við gengum í skólann og þær möluðu alla leiðina, eins og venjulega. Margrét mundi skyndilega að hún tognaði lítillega á fæti um daginn, svo hún var orðin draghölt þegar við loks komum að skólanum. En jafnaði sig um leið og við komum inn og hún gat farið að sýna skarðið.
Elísabet, sem alltaf þarf að kryfja allt til mergjar, hóf upp langt mál um hversu frábært það væri nú að eiga mömmur, sem gætu gert allt. Eða, sko, önnur gæti sumt og hin gæti sumt og saman gætum við sko allt. "Sko, þú ert mjög góð að taka tennur. En þú ert ekki mjög góð með hár, mamma er nú eiginlega duglegri að greiða og gera snúð og svoleiðis," sagði hún varfærnislega, eins og hún óttaðist að móðga mig.
Þetta vissi ég þó alveg fyrir. Mér nægir líka alveg að vera "góð að taka tennur". Alla vega þessa dagana.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2007 | 23:41
Tvær tennur
Systur misstu báðar fyrstu tönnina sína í dag. Alla vega voru þetta fyrstu tennurnar sem fóru af sjálfsdáðum og það var mikil upplifun.´
Á síðasta ári þurfti að taka tvær framtennur í efri góm úr Margréti og í þokkabót skera í burtu tvær aukatennur sem leyndust uppi í gómnum. Hún var svæfð, vaknaði miður sín og upplifunin var öll hin versta. Hún hefur hins vegar verið nokkuð stolt af skarðinu sínu.
Tvær framtennur voru dregnar úr neðri góm Elísabetar í sumar. Fullorðinstennurnar voru komnar upp á bakvið þær, en barnatennurnar rótuðu sér ekki. Elísabet var deyfð lítillega og svo fuku þær alveg ótrúlega létt. En hún var leið, af því að hún fékk ekki skarð, fullorðinstennurnar sáu til þess.
Undanfarið hefur Elísabet verið spennt, af því að hægri framtönn uppi var orðin laus. Hún hefur látið okkur rífa í hana af og til, en ekkert gengið. Í kvöld kom dálítið blóð og hún linnti ekki látum fyrr en ég hafði náð tönnina úr. Það var nú reyndar ekki mikil fyrirstaða. Og sú var stolt og glöð!
Margrét bað mig að reyna að ná úr lausu framtönninni í neðri góm á sér. Það gekk ekki. Svo fóru þær inn í rúm að sofa. Margrét kom fram stuttu síðar og sagði að nú væri tönninn enn lausari og hvort ég gæti ekki tekið hana. Í þetta sinn gekk það greiðlega.
Þær systur ætluðu að ærast úr fögnuði. Báðar með fínustu skörð og í þetta sinn var þetta alveg marktækt, tennurnar losnuðu og duttu svo úr, alveg eins og þetta á að gerast
Þær ætluðu aldrei að sofna. "Það er mjöööög skrítið að vera með svona skarð," sagði Margrét, rétt eins og hún hefði ekki verið tannlaus síðasta árið.
"Það er mjöööög skrítið að tala með svona skarð," sagði Elísabet, en dró nú ekkert af sér í málæðinu fremur en fyrri daginn.
Tvö skörð og tvíburahamingja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar