Færsluflokkur: Bloggar
13.11.2007 | 17:26
R
R er stafur vikunnar og systur kláruðu heimalærdóminn áður en þær fóru í afmæli til bekkjarsystur. Fyrst lásu þær og fóru létt með það.
Margrét reið á vaðið með stafablaðið, að vanda. Hún var snögg að draga upp hring, teikna á hann mynd af fiski og tölustafina 001: Króna (o.k. reyndar 100 krónur, eða 001 krónur, en hverjum er ekki sama? Og, ef maður veltir því fyrir sér, þá er 001 auðvitað ein króna. Vá, klár stelpa!)
Næst tilkynnti hún að hún ætlaði að teikna mynd af "róta". Ég sagði ekki eitt einasta orð, sannfærð um að hún myndi leysa málið. Sem hún gerði. Bleikklædd stelpa beygir sig yfir dótakassann, búin að taka bolta upp úr en leitar að einhverju öðru. Rótar.
Þriðja myndin er af þéttum skógi. Í honum miðjum er lítil stelpa, alveg sallaróleg, af því að hún ratar.
Síðasta myndin er eins konar skýringarmynd af stóru, stóru dýri. Píla bendir framan á dýrið. Þar er rani.
Elísabet var mjög snögg að draga upp fyrstu myndina: Rós. Rauð og falleg.
Svo fannst henni auðvitað liggja beint við að teikna uppáhalds Bróður-minn-Ljónshjarta-upplesarann-og-bestu-fóstru: Rósu.
Þriðja myndin er af kátri stelpu að róla.
Þegar Elísbet var komin að fjórðu myndinni sinni var Margrét búin og var að hreykja sér af hversu mörgum R-um hún hefði komið fyrir. Að vísu bara eitt í króna og rani, en tvö bæði í rótar og ratar.
Elísabet toppaði þetta. Hún teiknaði í snarheitum konu og spurði svo hvernig ætti að skrifa Ragnhildur Sverrisdóttir. Sem hún svo gerði og vandaði sig stórkostlega.
Myndin af Ragnhildi Sverrisdóttur er afar áhugaverð. Ragnhildur er með eldrauðar og þykkar varir, af því að svoleiðis eru allar konur sem Elísabet teiknar þessa dagana. Hún horfði líka stíft á eyrnasneplana á mér, en ákvað svo að hunsa fyrirmyndirnar og teiknaði væna eyrnalokka. Hún litaði hins vegar bolinn minn og gallabuxurnar í samræmi við raunverulegan lit.
Ég spurði hana af hverju ég væri með svona stórar hendur á myndinni. "Þú ert að gera svona" sagði hún og breiddi út faðminn. Svo sá hún viðbrögð mín og flýtti sér að skella brosviprum inn á myndina, við rauða, stóra munninn.
Ég var ákaflega upp með mér af þessari mynd af fallegu, brosmildu konunni með útbreiddan faðminn. Aðeins eitt stendur í mér. Ég veit að það eru einhvers konar Bratz-áhrif, þótt þær systur eigi nú ekki slíkar dúkkur: Á milli gallabuxna og bols skín í magann á Ragnhildi Sverrisdóttur, með vandlega teiknaðan nafla á honum miðjum.
Ekki alveg minn stíll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.11.2007 | 11:03
Andrés
Margrét er heima hjá mér í dag. Hún er búin að vera með leiðindahósta undanfarið og nær ekki að hrista þetta af sér. Í dag ætlum við að slaka á og reyna að klára dæmið.
Hún er alsæl. Ég fór með Elísabetu í skólann klukkan 8 og þá kúrði Margrét í stóra rúminu. Þegar ég kom heim fór Kata í vinnuna. Ég ætlaði að skríða upp í, en Margrét ákvað þá að nóg væri komið af hangsi, settist fram með Andrés-möppu og las af miklum móð. Fljótlega vildi hún fá að horfa á mynd og fyrir valinu varð hin stórskrítna og skemmtilega franska teiknimynd Flóðið mikla. Ég svaf hana næstum alla af mér í sófanum, en Margrét ýtti við mér af og til, svo ég missti ekki af flottustu atriðunum.
Nú hrópar hún og kallar, vopnuð Andrés-möppunni enn á ný. Núna nennir hún ekki að skoða hana upp á eigin spýtur.
Gisp! Úakk! Gasp!
Ég er farin að lesa Andrés.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.11.2007 | 00:50
Eggið og hænan
Í dag fórum við saman á bíó, ég og stelpurnar, á meðan Kata sat heima og las handritið að bókinni minni - og ekki seinna vænna, því ég skila henni af mér á morgun og hún á að koma út fyrir jól!
Stelpurnar voru kátar í bíó, en Elísabet kvartaði að vísu undan hávaða. Og hávaðinn var nánast óbærilegur. Ég veit að það er voða töff að vera með öflugt THX kerfi eða hvað þetta nú heitir, en þegar áhorfendur eru flestir 3-8 ára þá er þetta kannski ekkert sniðugt?
Við borðuðum svið í kvöld, sem afi Ís færði okkur í vikunni. Þær voru alsælar og óþarflega áhugasamar um þessa kindahausa, hvað væri nú hvað og hvort tungan væri ógeðsleg eða ekki. Elísabet ánægð með rófustöppuna, sem Margrét leit ekki við, en báðar þokkalega sáttar við kartöflumúsina. Afskaplega þjóðleg kvöldstund hjá okkur.
Elísabet æfði sig aðeins á gítarinn og ég spilaði með á gítarinn hennar Margrétar. Elísabet var nú ekkert sérstaklega hrifin af tilþifum mínum og sagði að ég væri allt of lengi að skipta úr D í G. Ég beygði mig að henni, horfði í augun á henni og sagði alvarlega: "Er nú eggið farið að kenna hænunni?"
Ég reiknaði nú ekkert með að hún myndi skilja þetta, en hún hugsaði sig um örstutta stund og skaut svo til baka: "Þótt hænan eigi kannski að kenna egginu, þá má nú eggið alveg segja það sem það vill!"
Hún VERÐUR að eiga síðasta orðið. Alltaf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.11.2007 | 16:27
Kítar
Góður dagur og enn ekki nema hálfnaður.
Systur æfðu sig á gítarinn fyrir gítartíma kl. eitt. Margrét spændi í gegnum hvert lagið á eftir öðru, á meðan Elísabet fór í umferðarleikinn á netinu, með innipúkanum og hans kompaníi. Reyndar laumaði Elísabet miða til mín á meðan ég spilaði og söng með Margréti.
Á miðanum stóð: "É er fs í u frþrsili"
OK, fyrst hún var "föst í umferðarspilinu" þá stökk ég inn á skrifstofu og kom henni aftur af stað og minnti hana á að bráðum þyrfti hún að æfa á gítar.
Hún var mjög ánægð að ég hefði skilið miðann.
Skömmu síðar barst annar miði: "É æla eiki aþ æva á kítri"
Nú jæja, svo hún "ætlaði ekki að æfa á gítarinn?"
Þriðji miðinn kom: "Framhl í nsta miþa skrvar Elísabet"
OK, ég beið spennt eftir "framhaldi á næsta miða" eins og Elísabet skrifaði.
Og sá miði kom: "Nsti mþi er núna É vl aki æva á kítar"
Einmitt, svo "næsti miði er núna, ég vil ekki æfa á gítar."
Og þetta var ítrekað af hörku: "É sþi aþ é vl aki æva á kítar srifai Elísabet".
Nokkrir miðar svipaðir bárust, en hún æfði sig nú samt á gítar og hafði gaman af.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2007 | 10:32
Soltin eins og kæfa
Systur voru að horfa á barnatímann þegar við Kata fengum okkur kaffi og ristað brauð í morgun. Þær ætluðu að fá morgunmatinn aaaaaðeins seinna, svo þær misstu ekki af spennandi þætti. Við Kata vorum sáttar við að ná rólegri stund við morgunverðarborðið áður en hún rauk af stað í vinnuna.
Við vorum varla sestar niður þegar Elísabet birtist, glorhungruð. Hún mændi á brauðsneiðina mína, sem ég hafði bitið eitt hornið af. Ég rétti henni sneiðina og þá spurði hún hinnar eilífu tvíburaspurningar: "Hvað með Margréti?" Kata rétti henni ósnerta brauðsneiðina sína fyrir Margréti og hún skoppaði alsæl aftur niður í sjónvarpshol.
Örskömmu síðar hófust mikil ramakvein að neðan, því þær voru svo agalega svangar. Ég ristaði brauð, eina og hálfa sneið á mann, og skar niður stóran banana. Aftur fengu þær að borða við sjónvarpið, sem er toppurinn á tilverunni á laugardagsmorgni.
Ég hellti kalda kaffinu mínu og fékk mér nýtt. Eftir fyrsta sopann hófust enn hróp að neðan. "Ég VERÐ að fá eitthvað. Ég er soltin eins og kæfa!" hrópaði Elísabet og greinilega bara mínútuspursmál hvenær blessað barnið færist úr hungri.
Auðvitað helltist yfir mig samviskubit. Þarna sat ég, að súpa á kaffibolla, á meðan dóttirin var "soltin eins og kæfa" á neðri hæðinni. Það hlaut að vera skelfilega líðan.
Í þetta sinn ristaði ég tvær sneiðar á mann og skar niður stórt epli. Þær voru lukkulegar og fóru að tína þetta upp í sig fyrir framan sjónvarpið. Svei mér þá, þetta virtist ætla að duga.
Rétt í þessu spurði ég þær hvort þær væru nú orðnar saddar. "Já," sagði Elísabet, "en getum við farið í bröns á kaffihúsi á eftir?"
Soltin eins og kæfa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.11.2007 | 23:15
Vertu ekki að plata mig
Systur heyrðu gamla, góða HLH- og Siggu Beinteins-lagið "Vertu ekki að plata mig" í bílnum um daginn. Og urðu yfir sig hrifnar. Nú er staðan orðin sú að mæður reyna að aka sem allra, allra minnst með þær systur, því lengri túrar kalla á 8-10 umferðir af þessu eðal-lagi. Þetta æði hefur staðið í rúma viku og þótt lagið sé allra góðra gjalda vert, af og til, einstaka sinnum, þá er þetta ekki á nokkurn mann leggjandi.
Þær þurftu að fá skýringar við textann. Hver var þessi Brenda Lee, sem Sigga minnti Bjögga svona á? Og hvað var hann eiginlega að gera þegar hann "skellti krónu í djúkboxið og hækkaði vel í því?"
Þegar allur textinn var kominn á hreint hlustuðu þær nokkrum sinnum og rauluðu með. Sigga þagði bara og lakkaði á sér neglurnar og þóttist ekki taka eftir Bjögga, sem gekk að borðinu hennar og sagði hátt: "Komdu með....." o.s.frv.
Svo fóru þær að tjá sig um stöðu mála hjá Bjögga og Siggu.
"Mér finnst bara gott hjá Siggu að fara ekki með honum, af því að hún þekkir hann ekki neitt," sagði Elísabet, sem myndi aldrei umgangast ókunnugt fólk með engum fyrirvara.
Margrét var innilega sammála. Og hneyksluð á Bjögga: "Já, hann gekk bara að borðinu þótt hann þekkti hana ekki neitt og sagði þetta HÁTT!" sagði hún og var alveg að rifna úr vandlætingu.
Svona ruddahegðun virkar sko ekki á dömur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.11.2007 | 13:46
U er undurfríð Una
U er stafur vikunnar.
Margrét byrjaði, rösk að vanda. Hún var afskaplega fljót að skrifa stórt U og lítið u.
Svo hófust myndskreytingar. Fyrsta myndin var af afskaplega fínni stúlku: Undurfríð.
Sú næsta var með tveimur U-um: Hundur.
Þriðja myndin kostaði allnokkrar tilfæringar. Margrét er fremur nákvæm stúlka, svo það tók dálítinn tíma fyrir hana að rifja upp hvernig leiðin í Umferðarspilinu er. Það er uppáhalds spilið þessa dagana og þær systur ýlfra af hamingju og Þórðargleði þegar mæðurnar fara flatt á einhverri umferðarreglunni og færast marga reiti aftur á bak: Umferðarspilið.
Fjórða myndin var mjög fljótgerð, enda eins gott enda hafði litli sjónvarpssjúklingurinn uppgötvað að barnatíminn var að byrja. Margrét leit til hliðar á diskinn sem ég setti á borðið, skellti svo nokkrum brúnum klessum á blaðið og skrifaði undir: Piparkökur.
Elísabet fór svipaða leið og systir hennar í fyrstu myndinni, nema hvað fína stúlkan á fyrstu myndinni var ekki einhver óskilgreind, heldur náfrænka hennar: Una.
Hún byrjaði að teikna mynd nr. 2 af miklum áhuga og neitaði að segja mér hvað þetta ætti að verða, en sór og sárt við lagði að orðið byrjaði á U. Hún teiknaði hönd sem hélt á blaði og á blaðinu var fín mynd af húsi, tré og sól. Undir blaðinu lá blýantur. Undir.
Þriðja myndin var af stelpu að kalla á hundinn sinn: Komdu, hundsi!
Loks teiknaði hún mynd af stóru húsi. Við hlið þess var reistur stigi. Miðja vegu í stiganum var einhver örvera að príla og á þakinu sat einhver önnur vera. Uppi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.11.2007 | 13:45
Rándýr smádýr
Systur eru afskaplega hrifnar af leikföngum sem kallast Littlest Pet Shop. Þetta eru agnarsmá dýr og með þeim fylgir alls konar aukabúnaður. Þær eru þegar búnar að koma sér upp töluverðu safni og fjölbreyttu, enda gæta þær þess að fá aldrei eins pakka.
Hagkaup auglýsir þessi dýr á heilli síðu í Fréttablaðinu í dag. Þar kemur fram að minnsti pakkinn, með einu agnarsmáu dýri og einum fylgihlut, kostar 629 kr. Næsta stærð af pakka hefur tvö dýr að geyma og einhvern fylgihlut að auki: 749 kr. Loks er svo hægt að fá gjafaöskjur með þremur dýrum og fullt af aukahlutum saman í pakka á 2.299 kr.
Efst í auglýsingunni stendur: GERÐU VERÐ- SAMANBURÐ.
Ég ákvað að gera verðsamanburð, en auðvitað hvarflaði ekki að mér að gera hann hér innanlands, þar sem fastlega má reikna með að skeiki bara einni krónu frá einni verslun til annarrar, í okkar ofboðslega hörðu samkeppni.
Í Bandaríkjunum er hægt að fá tvö dýr með aukahlut á 270 krónur. Hérna er ódýrasta útgáfan eitt dýr á 629 krónur.
Í Bandaríkjunum er hægt að fá gjafaöskju með fimm dýrum og fullt af aukahlutum á 959 krónur. Hérna kostar þriggja dýra gjafaaskjan 2.299.
Hagkaup auglýsir líka "Flypaper", myndir af þessum gæludýrum sem festast við slétta veggi og gler og hægt er að taka þær niður og setja upp aftur og aftur.
Hagkaup selur þessar myndir á 1.799 krónur.
Að áeggjan Hagkaups gerði ég enn og aftur verðsamanburð: Þessar myndir kosta 780 krónur út úr búð í Bandaríkjunum.
Og rúsínan í pylsuendanum: Hagkaup auglýsir að vísu ekki í Fréttablaðinu stærsta Pet Shop dótið, sem er eins konar leikskóli og útstillingarhús fyrir litlu dýrin. Ég sá svoleiðis hins vegar í verslun hér á landi um daginn og dæturnar ætluðu alveg að missa sig af hrifningu. Ég leit á verðmiðann á þessu harðplastdóti, fölnaði og dró þær í burtu.
Ef þær fá slíkt dót þá verður það ekki keypt hér á landi á 7.990 krónur. Ég kaupi það frekar þegar ég fer til London á 3.700 krónur. Og finnst alveg nóg um það verð.
Að lokum vil ég færa Hagkaup bestu þakkir fyrir að hvetja mig til verðsamanburðar. Það á eftir að koma sér vel fyrir jólin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
5.11.2007 | 21:30
M
Á síðasta degi í vetrarfríi mundu mömmur að stafur vikunnar er M.
Systur settust niður, æfðu sig á litlu og stóru M-i og teiknuðu svo fjórar myndir.
Margrét teiknaði fyrst mynd að lítilli stelpu í bláum buxum og rauðri peysu: Margrét.
Svo teiknaði hún kisu, afskaplega sællega og makindalega: Mala.
Þriðja myndin var af einhverju hnöttóttu og gulu: Melóna.
Og svo tilkynnti hún að fjórða myndin ætti að vera af Madagaskar. Ég, með minn ferkantaða þankagang, var nú ekki viss um að hún vissi hvernig sú mikla eyja væri í laginu og fór auðvitað að draga úr barninu kjark. Margrét lét allt slíkt sem vind um eyru þjóta og teiknaði kápu myndbandsins með teiknimyndinni Madagaskar. Hún hefur ekki séð þá mynd í nokkra mánuði, en fór létt með að rifja upp aðalhetjurnar: Ljónið, gíraffann og flóðhestinn. Fínasta mynd: Madagaskar.
Elísabet fór auðvitað sínar eigin leiðir. Fyrsta myndin var fremur skelfileg, einhver gráleit vera teygði fram kræklóttar hendurnar. Múmía.
Næsta mynd var öllu kristilegri, mærin helga í sínu fínasta pússi og Jesúbarnið í vöggu við hliðina á henni. María mey.
Þriðja myndin var fljótleg, eitthvað kringlótt og appelsínugult: Mandarína.
Síðasta myndin var af ósköp sætu, litlu dýri: Mína mús.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2007 | 17:23
Jólin koma
Systur eru farnar að huga að jólum. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
Í morgun ræddu þær fram og til baka um hvernig þær ætluðu að skreyta kofann sinn í garðinum. Þær ætla auðvitað að hafa jólaseríu á þakskegginu og svo þarf alveg helling af jólaskrauti inn í kofann.
Þær hafa líka skoðun á því hvernig skreyta eigi húsið. Vissulega vilja þær hafa marglitar seríur á þakskegginu framan á húsinu og á svölunum og þeim fannst fínt að hafa upplýst jólatré við dyrnar. En það er auðvitað alls ekki nóg. Þær vilja hafa upplýstan jólasvein, sem er að klifra upp á svalirnar og helst á hann að vera í stiga sem nær alveg niður í garð, svo þær geti líka klifrað upp og niður. Lofthrædda ég sagði að það myndi ekki ganga, ég vildi ekki að þær væru að klifra upp á svalir. "Við getum bara haft dýnu á jörðinni, svo við meiðum okkur ekki ef við dettum," sagði Elísabet, en ég haggaðist ekki.
Þær vilja ólmar hafa jólasvein í sleða með átta hreindýrum uppi á þaki. Frábær hugmynd sosum, en sú lofthrædda sló hana út af borðinu.
Margrét hugsaði sig lengi um og fann svo lausnina: Jólasveinninn, sem væri að klifra upp á svalir, gæti skilið tóma sleðann sinn eftir að þakinu á kofanum þeirra. Meira að segja ég hlyti að þora að fara upp á þakið á kofanum. Við sjáum nú til með það.
Mamma þeirra sló algjörlega í gegn með því að lofa þeim piparkökubakstri í kofanum. Í honum er nefnilega rafmagn og af því að við eigum lítinn ofn þá er hægur vandi að baka þar nokkrar kökur og skreyta þær.
Eftir allar þessar jólaumræður urðum við að fara í Blómaval og skoða jólasveinalandið þar og allt skrautið. Þær áttu ekki til orð yfir dásemdunum.
50 dagar til jóla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar