Færsluflokkur: Bloggar
3.11.2007 | 22:52
Frænkur farnar
Vistin í Logalandi var heldur daufleg í morgun, fannst systrum, sem undanfarna viku fengu að vakna með frænkum sínum frá Svíþjóð. Svíþjóðarbúarnir fóru héðan óguðlega snemma í morgun og systur sváfu á sitt græna heima hjá mömmu á meðan ég kom familíunni í flugið.
Það var óttalegur órói í þeim systrum framan af degi, þeim fannst hundleiðinlegt að vera frænkulausar. Elísabet rölti fram í herbergi þeirra systra, sem gestirnir höfðu haft til afnota og kom svo aftur og staðfesti að þarna væri alls enginn, þau væru öll farin. "Þau gengu mjög fallega frá rúmunum" sagði hún spekingslega.
Við fórum í langa fjöruferð út í Gróttu um miðjan daginn til að ná úr þeim vansældinni. Við fundum alls konar skrítna steina, fullt af flottum skeljum og skelbrotum, eitt ígulker og nokkur glerbrot. Mömmu gáfust upp á kalsanum í fjörunni þegar búið var að fylla eina plastfötu af alls konar dýrgripum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2007 | 00:14
Skelfilegar
Hérna eru þær klárar í slaginn, nornin skelfilega og afturgangan ógurlega:
Önnur var með kórrétta beinagrind framan á lakinu og hin reið kústskafti um loftin blá:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.11.2007 | 16:05
Hellingur
Ég barmaði mér við Kötu í morgun að ég hefði ekki fengið mér morgunkaffið fyrr en seint og síðar meir og þess vegna væri að hellast yfir mig höfuðverkur.
Margrét vappaði í kringum mig og spurði allt í einu: "Varstu að skipta um föt?"
"Nei," sagði ég, "ég var alls ekki að skipta um föt. Af hverju spyrðu að því?"
"Nú, af því að höfuðverkurinn helltist yfir þig!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.11.2007 | 00:36
Þolinmæði þrautir vinnur allar
Þegar systur voru að koma sér í háttinn var ég eitthvað að argast í þeim inni á baði. Allt í einu horfði Margrét einlæg á mig og sagði blíðlega: "Þú ert alltaf mjög þolinmóð við okkur."
Ég fékk bullandi móral og sagði að það væri nú ekki rétt, núna hefði ég til dæmis ekki verið mjög þolinmóð.
"Þetta var kaldhæðni," sagði blessað barnið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
31.10.2007 | 12:45
Tungl og sími
Þegar nornin og draugurinn gengu af stað í frístundaheimilið ákváðu þau að hafa með sér banana í nesti.
Margrét greip gula, bogna bananann sinn, hélt honum hátt yfir höfðinu, æddi í hringi á strákústinum sínum og vældi: "Ú-Ú-Ú.... TUNGLIÐ!!" Afar nornaleg.
Elísabet stakk sínum banana í vasann. En tók hann aftur upp: "Ég ætla að hafa hann fyrir síma. Og ég nenni ekki að hafa hann í vasanum, þá er svo mikið vesen að ná í hann ef hann hringir!"
Ég sé hana alveg í anda, panikka við að krafla BANANA upp úr vasanum áður en hann hættir að hringja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.10.2007 | 12:41
Norn og draugur
Systur voru skelfilega ógnvekjandi þegar þær fóru loks úr húsi í morgun, undir hádegi.
Í gær var öll familian Friðriksson í mat, systur höfðu eytt klukkutima í heita pottinum síðdegis með frænkum sínum Ellen og Agnesi frá Svíþjóð, Magga frænda og Einari frænda og svo léku þær yfir sig með öllum frændsystkinunum í matarboðinu. Þær voru örmagna af hamingju þegar þær skriðu í rúmið.
Heimilisfólk og næturgestir í Logalandi hrutu til tæplega 9 í morgun, en svo fengum við okkur góðan morgunmat og því næst var kominn tími til að gera systur klárar fyrir daginn. Í dag er ekki kennsla í skólanum, en frístundaheimilið er opið og þar er hrekkjavaka. Margrét átti ekki í minnstu vandræðum með að ákveða hvað hún ætlaði að vera: Norn, enn einu sinni. Hún er líka alveg sérstaklega fín norn, hlær ískrandi og hrollvekjandi hlátri svo skín í skörðóttan tanngarðinn. Svartir sokkar, svartar buxur, svartur kjóll með stjörnum og tunglum, skupla á höfuð og krímótt andlit. Loks greip hún strákústinn og þá var hún fullkomin.
Elísabet ákvað í gær að vera draugur. Ég fann hvítt lak og klippti gat á það. Mér tókst að klúðra því, gatið var eiginlega of stórt. Þetta voru augljóslega of flóknar hannyrðir fyrir mig. Þar með lauk mínum afskiptum af draugabúningnum og Kata snikkaði hann til. Maggi bróðir hennar sló svo algjörlega í gegn þegar hann greip tússpenna og teiknaði beinagrind framan á búninginn. Þar var hvert bein á sínum stað, enda maðurinn læknir og ætlaði sko ekki að klikka á einni einustu kjúku.
Elísabet horfði á frænda sinn teikna beinagrindina og spurði svo allt í einu: "Af hverju veistu alveg hvernig beinagrind á að vera, þegar þú ert heila-eitthvað?"
Heilaskurðlæknirinn Maggi sagði að vissulega hefði hann sérhæft sig á því sviðinu, en útskýrði svo að allir læknar þyrftu að byrja á að læra hið sama. Þar á meðal um beinagrindina. Elísabet spurði mikið út í þetta. "Hvernig lærir maður um beinin? Eru myndir í skólabókunum? Eru stórar beinastyttur? Æfirðu þig á alvöru fólki?"
Maggi gat til allrar hamingju upplýst að hann hefði ekki æft sig á alvöru fólki, heldur fyrst lesið, skoðað myndir og líkön og svo byrjað að aðstoða aðra lækna, áður en hann fékk sjálfur að krukka í beinum og heilum. Okkur var öllum mjög létt að heyra það.
Ég málaði stelpurnar í framan, Margréti með djúpar hrukkur og alla grákrímuga í framan. Elísabet hvíta í framan, en svarta um augu og með bláar varir. Hún hafði vit á að harðneita að greiða sér, enda var úfna hárið miklu flottara lúkk.
Ég verð að muna að setja inn mynd af þeim seinna í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.10.2007 | 17:19
Hár eða tá?
"Ég myndi ekki vilja skipta um eitt hár á þér, ekki eina tá eða einn fingur!" sagði Elísabet þegar hún knúsaði mig fyrir svefninn.
Mamma sem fær svona kveðjur þarf engin sjálfstyrkingarnámskeið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
27.10.2007 | 22:53
Bollur og brauð
Við fengum góða gesti í dag, Magga Kötu-bróður, Helene og stelpurnar þeirra, Ellen og Agnesi. Systur eru búnar að vera mjööööög spenntar í allan dag, enda bestu vinkonur systranna frá Svíþjóð. Hérna urðu miklir fagnaðarfundir.
Fyrr í dag var Elísabet með mér í matvöruverslun og við vorum að ákveða hvað við ættum að bjóða gestunum upp á í kvöldmat. Ég var búin að velja skötusel fyrir fullorðna fólkið, en Elísabet vildi endilega bjóða frænkum sínum upp á uppáhalds fiskibollurnar sínar.
Svo fékk hún allt í einu bakbanka: "Kannski finnst þeim svona fiskibollur ekki góðar. Af því að þær eiga heima í Svíþjóð. Ég man að mér fannst brauðið þeirra í Svíþjóð ekki gott."
Elísabet kortleggur líf sitt eftir máltíðum og mundi þetta mjög vel, þótt nær hálft ár sé frá Svíþjóðarheimsókn okkar.
Við tókum sénsinn, gáfum frænkum frá Svíþjóð fiskibollur og þær voru borðaðar með bestu lyst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2007 | 22:28
Sjúkk !
Mikið hlýtur hún Steinunn að vera glöð. Gagnkynhneigðir fá að halda hjónabandinu út af fyrir sig og þar með er hún kona áfram og maðurinn hennar er karl áfram. Röksemdafærslan hennar var alla vega einhvern veginn á þá leið að ef hommar og lesbíur gætu gengið í hjónaband þá yrðu barasta kyn og kynhlutverk þurrkuð út. Hvað yrði þá um hana, hann og hjónabandið? Það hefði bara lent á sorphaugunum, svei mér þá.
Sumt fólk.
Og vinir þess.
25.10.2007 | 22:25
Flær
Margrét sat ekki kyrr á meðan hún las í lestrarbókinni sinni. Og sagðist ekki geta það, því hana klæjaði bæði á baki og maga.
"Ætli ég sé kannski með flær?" spurði hún.
"Nei, Margrét, þú ert ekki með flær," sagði ég.
"Ég var nú auðvitað að grínast!" sagði hún og ranghvolfdi í sér augunum af hneykslan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar