Færsluflokkur: Bloggar
25.10.2007 | 13:38
Eftir-á-skýringar
Elísabet skreið upp í stóra rúm í nótt, enn einu sinni. Hún veit að hún á að reyna að stilla sig um þetta, en hún volaði eitthvað um vonda drauma og stakk sér í hlýja holu.
Þegar fjölskyldan vaknaði í morgun sáum við að það lak úr loftinu á herbergi stelpnanna, beint yfir rúmi Elísabetar. Líklega kemur lekinn einhvers staðar af svölunum, en það er nú ekki aðalatriði sögunnar. Það var nefnilega ljóst að ekki hafði lekið lengi, það var lítill blettur á koddanum hennar Elísabetar og lófastór á sænginni.
Elísabet var fljót að grípa tækifærið: "Sko, ég vaknaði og heyrði eitthvað svona drop-drop-drop og ég var svo hrædd og þá varð ég að fara í stóra rúmið!"
Sennilegt.
Margrét spratt upp úr sínu rúmi hinum megin í herberginu og trúði ekki eigin augum. Það var alla vega það eina sem hún sagði næsta hálftímann: "Ég trúi ekki mínum eigin augum!"
Hún sagðist líka hafa sofið heldur órólega vegna vatnsflaumsins í herberginu.
Líka mjöööög sennilegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2007 | 12:52
Fullur heili
Systur vilja fremur ræða um allt sem þær eiga eftir að læra en það sem þær eru búnar að læra.
Í gærkvöldi, þegar þær voru búnar að borða kvöldmatinn, byrjaði Margrét: "Ég held ég geti ekki verið í skóla, af því að ég veit ekki nógu mikið."
Við sannfærðum hana um að skólarnir væru nú einmitt til að uppfræða hana, svo hún þyrfti engar áhyggjur að hafa af þessu.
"Já, en ég veit samt ekki margt sem ég á að vita," sagði Margrét og vísaði í bók sem hún hafði verið að skoða. "Jörðin var skorin í sundur og það var eitthvað appelsínugult innan í henni."
Mæður lögðu saman í lærðan jarðfræðifyrirlestur. Sem dugði skammt, af því að þá sneri hún sér að öðru: "Hvernig eru ljósaperur búnar til? Af hverju eru engar risaeðlur lengur? Hvernig smíðar maður regnhlíf?"
Úff.
Hún fór afskaplega vítt og breitt yfir og systir hennar studdi hana dyggilega. Sumt af því, sem við mæður reyndum að útskýra, vissu þær nú alveg. Elísabet hneykslaðist óskaplega á óþarfa upplýsingum: "Það vita nú allir af hverju regnboginn kemur og það vita nú allir að það er ekki nógu heitur sjórinn hérna við Ísland til að stóru hákarlarnir vilji vera í honum," sagði hún, en það skal tekið fram að mæður voru ekki með neinar yfirlýsingar um hitastig sjávar og hákarla, þótt þær hefðu reynt að rifja upp einhver regnbogavísindi.
Allt í einu baðst Margrét vægðar: "Heilinn minn er alveg að verða fullur," sagði hún.
10 mínútum síðar, þegar hún var búin að bursta tennur og komin upp í rúm, vildi hún vita meira. Allt um krókódíla, snjókomu, sjónvörp og fugla, takk.
Kata var að knúsa Elísabetu, svo ég sat ein undir þessum ósköpum. Og varð að biðjast vægðar. Ég ætlaði að nota sama ráð og Margrét og vísa í að heilinn minn þyldi ekki meira.
"Af hverju ekki? Þú ert ekkert að fylla hann, þú ert að taka úr honum," sagði litli fróðleiksmolinn, en sættist loks á að fara að sofa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.10.2007 | 15:04
Múmínálfar
Ég er Snusmumriken
Heitir hann ekki Snabbi í íslensku þýðingunni?
Ég er sífellt að taka einhver bjánapróf á Netinu. Ég hef þegar uppgötvað að ég er kaffi latté og bókin um Jurassic Park og núna bætist við að ég er eins og Snabbi.
"Du er Snusmumriken! Du er modig og rolig. Du er også selvstendig og kan ta vare på deg selv, men du er likevel venn med alle."

Það er ábyggilega fínt að vera Snabbi.
Hérna er prófið:
http://quiz.start.no/?p=qplay&quizID=1136
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
23.10.2007 | 12:03
Skuldin
Magga systir getur verið óskaplega seinheppin stundum, en sem betur fer hlær enginn meira að því en hún
Hún skrifaði blaðapistil í sumar um sjálfsafgreiðslu, hvernig fólk á nú að afgreiða sig sjálft á bensínstöðvum, sjá um bankamál á netinu, bóka flug á netinu og, síðast en ekki síst, að afgreiða sig sjálft á bókasöfnum. Þar finnur fólk bækurnar sjálft, fer með þær að skanna, sér um að afgreiða þær út og sami prósess endurtekur sig þegar þeim er skilað. Nema hvað enn sem komið er þarf fólk ekki að setja þær á sinn stað.
Magga fann þessu svosem ekki allt til foráttu, en sagði að sér þætti nú þægilegra að fá meiri þjónustu í bókasafninu og einhverjar áhyggjur hafði hún af því að þetta gæti vafist fyrir eldra fólki, En auðvitað er starfsfólk alltaf boðið og búið að hjálpa.
Nema hvað, að þessum formála sögðum: Magga hefur notað hvert tækifæri til að grínast eitthvað í starfsfólki Borgarbókasafnsins út af þessu fyrirkomulagi. Á dögunum fékk hún senda tilkynningu um að hún hefði ekki skilað tímariti, sem hún kannaðist reyndar ekki við að hafa afgreitt sig með. En leitaði samt dyrum og dyngjum heima hjá sér. Árangurslaust. Hún fór því á bókasafnið til að borga skuldina, því ekkert fannst tímaritið.
Og nú var hún komin með enn eitt tilefnið til að grínast með sjálfsafgreiðsluna. Fyrst hún átti að finna bækur, skanna inn bækur og sjá um þetta allt saman, hvers vegna þá ekki líka að sjá um þetta alla leið? Hún sagði því hátt og snjallt við starfsmanninn, að hér væri hún komin með bækur, sem hún ætlaði að skanna inn og skila og svo væri hún hérna með rukkun út af þessu tímariti og hún hefði tekið þá ákvörðun að fella skuldina niður!
Starfsmaðurinn starði á hana í forundran. Um leið og Magga sleppti orðinu áttaði hún sig á að þessi starfsmaður vissi líklega ekkert um þessa endalausu sjálfsafgreiðslubrandara hennar. Hann horfði bara kjaftstopp á hrokafullan forseta borgarstjórnar, en tuldraði svo eitthvað í þá veru að kannski gæti hún tekið ákvörðun um það, já. En virtist aðallega gjörsamlega forviða á framkomunni.
"Nei, nei, þetta var grín, þetta var grín, sko út af sjálfsafgreiðslunni," hrópaði virðulegur forsetinn, ekki svo virðulega, og fór að útskýra brandarann.
Allir vita hins vegar hversu vonlaust það er að útskýra brandara.
Ég sagði henni að hún yrði að færa viðskipti sín annað. Hún missti æruna í Borgarbókasafninu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.10.2007 | 09:18
Sofandi húmoristi
Það sannast á Elísabetu að fólk þarf ekki að vera með rænu til að hafa húmorinn í lagi.
Um miðnætti breiddi Kata yfir stelpuna sína sem rumskaði aðeins, lét rifa í augun, breiddi út faðminn og byrjaði sinn venjulega, blíða söng: "Mamma, mamma, mamma..."
Kata knúsaði stelpuna og sagði: "Æ, það segir enginn "mamma" eins og þú, gullið mitt."
Um leið breyttist muldrið í Elísabetu í hátt og hvæsandi org: "M-A-M-M-A!"
Svo hló hún aðeins, velti sér á hliðina og hélt áfram að sofa. Og mundi ekkert eftir þessum svefnhúmor sínum daginn eftir.
Ég gerði svo þau mistök að segja Margréti frá þessu í gærkvöldi, um leið og ég var að tannbursta hana. Margrét hlustaði af athygli og um leið og ég hermdi eftir Exorcist-hljóðinu í Elísabetu þegar hún sagði "M-A-M-M-A" sprakk Margrét úr hlátri.
Í fanginu á mér.
Með munninn fullan af tannkremi.
Bolurinn minn er í þvotti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.10.2007 | 00:11
Mamma hans Bamba litla
Stundum halda mæður að stelpur séu miklu viðkvæmari en þær eru.
Fyrir allnokkru velti ég mjög fyrir mér hvort stelpurnar þyldu að horfa á myndina um Bamba litla, enda afskaplega dramatískt þegar mamma hans er skotin. Ég leigði samt myndina, en settist á milli þeirra og horfði á hana með þeim.
Svo kom að dramatíkinni. Mamman og Bambi hlupu yfir engi á æðisgengnum flótta undan mönnum með byssur. Allt í einu heyrðist ógnarhvellur. Bambi hljóp einn áfram og komst í skjól í skóginum. Þar tók faðir hans á móti honum. Mamman var dáin.
Ég beið með öndina í hálsinum og reiknaði með ekkasogum frá systrum. Ekkert slíkt kom.
"Er mamman dáin?" spurði Elísabet. Ég sagði, eins og satt var, já, mamman var dáin.
Engin sérstök viðbrögð við því.
Í næstu senu er Bambi á einhverju vappi og sér þá reyk stíga upp frá búðum mannanna. Þá snýr Margrét sér að mér og spyr: "Eru þeir núna að sjóða mömmu hans?"
Mér þótti nú alveg nóg um þetta kaldlyndi.
Ég rifjaði þessa sögu upp á dögunum. Þá sagði Magga systir mér sögu af Eddu dóttur sinni. Hún var á svipuðu reki og systurnar þegar mamma hennar bar svið á borð. Edda spurði hvað þetta væri og Magga sagði að þetta væru lambahausar.
Þá spurði Edda, með ósvikinni aðdáun: "Vá, mamma, sástu bara lömb og skertirðu hausana af þeim?"
Þetta kaldlyndi er ekki bundið við systurnar í Logalandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.10.2007 | 00:33
Fullorðin
Við fórum á kaffihús í dag, öll familían. Stelpurnar fengu krakkakakó, í háum glösum sem stóðu á undirskálum, með þeyttum rjóma og marglitu kökuskrauti stráð yfir.
Margrét horfi á þetta, mjög hrifin. Og tautaði svo við sjálfa sig: "Ég fékk undirskál. Vá, hvað ég er fullorðin!"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.10.2007 | 10:40
Toys "R" óskrifandi
Er nokkuð óraunhæft að ætlast til að auglýsingar í íslenskum blöðum séu á íslensku?
Toys "R" Us auglýsir í dag í Fréttablaðinu og auglýsingin er hrein hörmung.
Yfirskriftin er Á LAUGADAGINN. Engin ástæða til að splæsa R-i á þann dag, greinilega.
Svo eru tilteknir opnunartímar, "Virkadaga" "Nema fimmtudaga", "laugadaga" og sunnudaga, sem ég skil nú ekkert í að ekki hafi verið hægt að skrifa vitlaust, svona til að hafa samræmi.
"Á FÖSTUDAGINN mun Teenage Mutant Ninja Turtles koma til okka ogo heilsa upp á ig."
"Á FÖSTUDAGINN kl. 16.30 Í róttaálfurinn kemur í heimsókn í TOYS "R" US og spjallar við krakkana og syngur jafnvel nookkur lög. Það má enginn missa af essu!"
Og ef fólk vill hringja, þá er auðvitað tiltekið TLF.: 55 00 800. Ekki símanúmer að sjálfsögðu, það er svo hallærislegt, heldur TLF.
Þá veit fólk hvert það á að hringja til að kvarta.
Einhvers staðar las ég að eigandi Rúmfatalagersins ræki þessa verslun. Það er alla vega líklegt að sá sem sér um bæklingana fyrir Rúmfatalagerinn hafi líka tekið að sér að gera auglýsingar fyrir leikfangaverslunina. Hérna í eina tíð voru þeir bæklingar alla vega hroðalegasta moðsuða af vondri íslensku og dönskuslettum sem sást. Einu vinni var dreifing bæklings meira að segja stöðvuð, af því að íslenski fáninn var þar notaður á hverri síðu í auglýsingaskyni og skrifað ofan í hann á mörgum stöðum "födselsdagspris" (á sömu kjarngóðu íslenskunni og ávallt einkenndi þá bæklinga).
Með örsmáu letri upp með hlið auglýsingarinnar frá Toys "R" Us segir: "Tilboð gildir til og með 20.10.2007 og aðeins í Smáratorg. Birt með fyrirvara um prentvillur og vöruframboð."
Já, birt með fyrirvara um prentvillur! Miðað við auglýsinguna er kannski varasamt að treysta því að allar LEGO vörur séu á hálfvirði, eins og þó stendur stórum stöfum? Restin af auglýsingunni er bull, svo kannski gildir hið sama um tilboðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
19.10.2007 | 10:16
Leikrit
Margrét ætlaði aldrei að vakna í morgun, eftir tæplega 11 tíma svefn. Helsta ástæðan var sú, að hún hafði skriðið upp í stóra rúm einhvern tímann í nótt og þar er greinilegt best að kúra.
Kata taldi sig hafa séð við þessu þegar hún sagði: "Margrét, þú manst að þú átt að leika í leikriti í dag?"
Þetta virtist ætla að virka, því Margrét glennti allt í einu upp augun. En svo áttaði hún sig auðvitað á til hvers leikurinn var gerður, kreisti augun saman aftur og sagði: "Já, það er best að ég hvíli mig aðeins lengur svo ég verði hress þegar ég fer að leika!"
Hún fékkst nú samt á fætur fyrir rest og passaði vel að allir leikmunir væru með. Hún á að leika ömmu, svo hún tók með sér virðulegan hálsklút. Svo fékk hún svartar gleraugnaumgjarðir og var þegar búin að endurskrifa leikritið til að koma þeim vel til skila: "Sko, ég ætla að byrja á að segja: Hvar ætli gleraugun mín séu? Og svo finn ég gleraugun á borðinu og þá get ég byrjað að leika."
Elísabet fylgdist vel með þessu öllu og fannst greinilega alveg nóg um þegar mömmur voru búnar að rífa gler úr gömlum gleraugnaumgjörðum og voru á þönum í kringum leikkonuna. Sjálf leikur Elísabet í leikriti í skólanum eftir þrjár vikur. "Ætlið þið líka að hugsa svona mikið um mitt leikrit?" spurði hún. Við lofuðum að gera það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.10.2007 | 20:37
Svefn
Rétt í þessu kallaði Margrét úr rúminu: "Má ég fá svefnpillu?"
Ég hélt nú ekki, sagði að það væri engin ástæða til að taka svefnpillu.
Hún var ekki sammála mér og suðaði dálíitið:
"Er ekki til bara smá svefnpilla fyrir börn sem eru spennt?"
Hún er að fara að leika í leikriti í skólanum á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar